Litli Bergþór - jul. 2018, Side 25

Litli Bergþór - jul. 2018, Side 25
Litli-Bergþór 25 Veðrið í vetur. Nóvember og fyrstu dagar desember einkenndust af nokkru frosti og éljagangi og síðar slydduéljum, sem hélst fram undir jól. Á jóladag létti til með frosti og fallegu gluggaveðri og áramótaveðrið var heiðskírt og fagurt skoteldaveður, þar sem stirndi á svellalögin undir fullu tungli. Veðrið eftir áramót var nokkuð kaflaskipt. Janúar var umhleypingasamur, skiptust á heiðskírir frostdagar, þíða, slydduslabb, snjór og rigning, þótt við slyppum oft betur hér í Tungunum en annarsstaðar á landinu. Svellalög töluverð í uppsveitum. Í febrúar tók þó steininn úr. Mánuðurinn byrjaði með nokkurra daga hláku þannig að upp tók snjó og nokkurn klaka. En síðan kólnaði aftur og fór að snjóa með skafbyljum eða slydduslagviðri og tilheyrandi hálku og ófærð á fjallvegum. Tvisvar varð ófært á öllu Suðurlandi, þ. 10. og 14. febrúar, þegar flestir vegir lokuðust. Innansveitar fólk komst ekki til vinnu né á Kviknaði í bíl. Litlu mátti muna að illa færi þegar fólksbíll með fimm ungmennum úr Menntaskólanum að Laugarvatni lenti út af vegna hálku, við vegamót Reykjavegar og Biskupstungnabrautar við Vegatungu, þann 8. desember 2017. Stakkst bíllinn ofan í skurð þar sem kviknaði í honum. Sluppu ungmennin naumlega út áður en bíllinn varð alelda. Sigríður Jónsdóttir frá Arnarholti fékk námsstyrk úr Vísinda- og rannsóknarsjóði Suðurlands þ. 11. janúar, 2018 að upphæð 750.000 kr. Styrkinn fékk hún til að vinna að MA verkefni sínu, „Beittar uppgræðslur á hálendi Íslands, - reynsla bænda, aðferðir og árangur“. Íþróttamenn ársins í Bláskógabyggð. Þann 18. janúar heiðraði Æskulýðsnefnd Bláskógabyggðar íþróttafólkið okkar, sem skarað hafði fram úr á árinu 2017. Það var gert í hófi, sem að þessu sinni var haldið í íþróttahúsinu á Laugarvatni, en Bláskógabyggð tók við rekstri hússins á síðasta ári. Sérstaka viðurkenningu fékk sameiginlegt lið Bláskógaskóla í Reykholti og á Laugarvatni fyrir góðan árangur í Skólahreysti – Suðurlandsriðli árið 2017, en liðið varð í 3. sæti. Liðið var skipað þeim Anthony Karli Flores, Jónu Kolbrúnu Helgadóttur, Sölva Frey Jónassyni og Láru Björk Pétursdóttur. Til íþróttamanns ársins voru tilnefndir tveir knapar, þau Bjarni Bjarnason frá Þóroddsstöðum úr hestamannafélaginu Trausta og Rósa Kristín Jóhannesdóttir frá Brekku, úr hestamannafélaginu Loga. Hlaut Bjarni titilinn í ár, en það er í þriðja sinn sem hann hlýtur hann. Hvað segirðu til? Fréttir úr Tungunum frá janúar til júní 2018 þorrablót á Laugarvatni, nema á traktorum og túristar komust ekki upp að Geysi og Gullfossi. Mánuðurinn endaði á slagveðurs rigningu og hláku. Í mars skipti um gír með heiðskírum frostdögum á auða jörð og hlýjum góðviðrisdögum á milli, en úrkomulitlum. Kalt var einnig fyrstu daga í apríl, en annars var hiti flesta daga yfir frostmarki og tók upp snjó og klaka á rigningardögum. Maí var hinsvegar afspyrnu leiðinlegur og lítið vorlegur. Hiti rétt ofan við frostmark með éljum, hagli, snjókomu, rigningu og roki og alvöru hvítasunnuhreti í kringum 20. maí. Eftir það skánaði þó veðrið aðeins svo hægt var að koma út lambfé og þann 29. maí kom sumarið með gróðrarveðrið. Júní heilsaði svo með blíðviðri og 6-12 stiga hita, en síðan tók að rigna..

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.