Litli Bergþór - jul 2018, Qupperneq 26
26 Litli-Bergþór
Íslandsmet í afurðum eftir kind. Eiríkur
Jónsson í Gýgjarhólskoti gerði sér lítið fyrir og
setti Íslandsmet í sauðfjárafurðum, með 48,1 kg
fallþunga eftir hverja kind árið 2017. Frjósemin
var 2,02 lömb á kind. Eiríkur rekur blandað bú,
með um 50 kýr, 100 geldneyti og 285 vetrar-
fóðraðar ær.
Nýr skólastjóri TÁ. Um áramótin tók
Tungnakonan Helga Sighvatsdóttir frá Miðhúsum
við sem skólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga af
Róbert A. Darling, sem hætti þá sem skólastjóri
eftir 17 ára starf. Áður starfaði Helga sem
aðstoðarskólastjóri við sama skóla.
Þorrablót Tungnamanna var haldið að venju
á bóndadaginn, 19. janúar, í Aratungu. Var það
Torfastaðasókn sem sá um blótið í þetta sinn,
og var það með hefðbundnu sniði: Heimatilbúin
skemmtiatriði á kostnað sveitunganna, snæddur
þorramatur úr trogum og ball á eftir. Til gamans má
geta þess að það var veitinganefnd Kvenfélagsins
sem ákvað það, þegar þegar Aratunga var tekin í
notkun 1961, að á þorrablótum í Aratungu skyldi
borðað úr trogum og að fólk kæmi með matinn
með sér. Hefur sá siður haldist fram á þennan dag.
Þar fór glerið. Þann 2. febrúar lenti stór
flutningabíll með tengivagn út fyrir veg við
Smalaskála, rétt ofan Spóastaða. Sem betur fer
urðu ekki slys á fólki, en bíllinn stórskemmdist og
einnig farmurinn sem hann flutti: gler í veitingasal
nýju hótelbyggingarinnar við Geysi. Vegna þessa
þurfti að útvega nýtt gler í bygginguna erlendis
frá. En þrátt fyrir þetta slys og slæmt veður í vetur,
er byggingin á áætlun að sögn Mábilar Másdóttur.
Leiksýningar. Leikdeild Umf. Bisk. frumsýndi
þ. 3. febrúar leikritið Sálir Jónanna ganga aftur,
farsa eftir Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu
Óskarsdóttur og Unni Guttormsdóttur, í leikstjórn
Gunnars Björns Guðmundssonar. Alls urðu
sýningar 12, en veður setti strik í reikninginn, svo
fella þurfti niður tvær sýningar.
Fyrsta skóflustunga að Brúarvirkjun.
Sigurður Ingi Jóhannesson, samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra, tók fyrstu skóflustunguna
að Brúarvirkjun 23. mars. Virkjunin er 9.9 MW
rennslisvirkjun í efri hluta Tungufljóts og verður í
eigu HS Orku. Náttúruverndarsamtök Suðurlands
og Landvernd hafa kært framkvæmdaleyfið og
krafist stöðvunar framkvæmda.
Hvutta stolið. Lögreglan í Reykjavík auglýsti
31. mars á fésbókarsíðu sinni eftir eiganda hunds
sem fannst við Litlu Kaffistofuna á Svínahrauni. Í
ljós kom að um var að ræða Pöndu frá Brautarhóli
og svo virðist sem að hún hafi með einhverjum
hætti fengið far með ókunnugum úr Tungunum
að Litlu Kaffistofunni. Auglýsingin skilaði sér og
komst hún samdægurs til Bjarna og Oddnýjar.
Gleym - mér - ei Í síðasta blaði var kynnt
samkeppni um nafn á bókakofann í Slakka.
Fjölmargar tillögur bárust en tillaga Katrínar Evu
Árnadóttir bar sigur úr býtum og nú kallast kofinn
GLEYM - MÉR - EI.
Mannslát. Sá hörmulegi atburður varð á
Gýgjarhóli laugardaginn fyrir páska, 31. mars,
að Valur Lýðsson bóndi þar er talinn hafa orðið
Ragnari bróður sínum að bana. Beðið er úrskurðar
héraðssaksóknara um ákæru.