Litli Bergþór - Jul 2018, Page 27

Litli Bergþór - Jul 2018, Page 27
Litli-Bergþór 27 Vígslubiskupskosningar. Í byrjun apríl var endurtekin kosning til embættis vígslubiskups í Skálholti, en fyrri kosning í haust var ógild. Kosið var aftur á milli sr. Axels Árnasonar (89 atkv.), sr. Eiríks Jóhannssonar (246 atkv.) og sr. Kristjáns Björnssonar (305 atkv.). Þar sem enginn hlaut meirihluta greiddra atkvæða, þurfti að kjósa aftur milli þeirra tveggja, sem flest atkvæði hlutu, þ.e. sr. Eiríks og sr. Kristjáns og lauk þeirri kosningu 14. maí. Úrslit urðu þau að Kristján Björnsson var kjörinn vígslubiskup í Skálholti með 371 atkvæðum eða 54%. Eiríkur hlaut 301 atkvæði eða 44%. Á kjörskrá voru 939 og kjörsókn 72%. Hundur finnst dauður. Tíkin Kókó fannst dauð í skurði í Laugarási 25. apríl eftir að hafa verið saknað í nokkra daga. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hundar drepast í skurðum þar. Nýlega þurfti að aflífa tíkina Töru eftir að hún brann illilega í heitu afrennsli þar. Íbúar þorpsins eru orðnir langþreyttir á opnum skurðum og vilja úrbætur. Regína Rósa leikskólastjóri hefur sagt upp störfum og mun hætta í vor. Hún hyggst halda á heimaslóðir í Reykjanesbæ og eru henni þökkuð góð störf. Ónýt klæðning á vegum. Vegir hér í Bláskógabyggð hafa verið ákaflega lélegir í vetur og hafa alls ekki þolað mikla vetrarumferð, en hún hefuraukist ár frá ári undanfarið. Undirlagið þolir ekki álagið þegar frost, snjór, þýða og rigningar skiptast á. Umferðin veldur því að smátt og smátt myndast göt í efsta lag klæðningarinnar. Það veldur grjótkasti og framrúðutjóni og algengt er að dekk springi og felgur eyðileggist. Óvíst er um að tryggingar greiði slíkt tjón. Við lá að vegurinn frá Múla suður fyrir Holtakot breyttist í malarveg og aðrir vegir voru missignir og brotið úr köntum. Í blaðaviðtali líkti oddvitinn ástandinu við rússneska rúllettu þegar ekið væri á helstu stofnbrautum sveitarfélagsins í vetur og kallaði eftir stórátaki í samgöngumálum og vegaviðhaldi, t.d. í formi þjóðargjafar í tilefni 100 ára fullveldis Íslands í sumar. Fingralangir leiðsögumenn. Margeir Ingólfs- son hefur sett upp hestagerði og bílaplan við þjóðveginn neðan við bæinn Brú, til þess að ferðamenn geti komist í návígi við íslenska hestinn án þess að stofna öðrum vegfarendum í hættu með því að nauðhemla í hvert sinn sem þeir sjá hesta við veginn. Setti hann einnig upp sjálfsafgreiðslu fyrir hestaköggla svo ferðamenn geti gefið hestum. Hann kvartar hinsvegar undan þjófóttum leiðsögumönnum og bílstjórum, sem hann segir taka ófrjálsri hendi mikið magn köggla og deila til ferðamanna á sínum vegum. Kveður svo rammt að þessu að sölunni kann að verða hætt. Hrútaheimtur. Síðast liðið haust hurfu þrír kollóttir hrútar úr heimalandi Miðhúsa og fundust þeir ekki þrátt fyrir ítrekaða leit. Tveir þessarra hrúta heimtust síðan óvænt þ. 26. apríl s.l. í sumarbústaðalandinu á Efri-Reykjum. Voru þeir vel fram gengnir og ekkert á því að láta góma sig. Afmælishátíð á Espiflöt. Haldið var upp á 70 ára afmæli garðyrkjustöðvarinnar 1. maí ásamt formlegri opnun viðbyggingar, þar sem pökkun, vökvunarbúnaður og kælir ásamt öðru verður staðsettur. Margmenni mætti og gestir fengu höfðinglegar móttökur. Boltar, vesti og keilur KSÍ gaf ung- mennafélögum Biskupstungna og Laugdæla nýja bolta, vesti og keilur til nota á æfingum hjá félögunum. Samanlagt eru um 70 börn að æfa fótbolta með þessum félögum og vakti aukin þátttaka uppsveitabarna í fótboltanum svo mikla athygli KSÍ manna að þeir sendu fulltrúa sinn á staðinn til að afhenda gjöfina og hitta börnin á æfingu. Þjálfarar ungmennafélaganna hafa unnið mikið og gott starf á undanförnum árum og haldið vel utan um krakkana, og eflaust skemmir ekki hve árangur íslensku karla- og kvennalandsliðanna síðustu misserin hefur verið góður. Malbiksskemmd og 2 ónýtar felgur.

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.