Litli Bergþór - Jul 2018, Page 28
28 Litli-Bergþór
Afmælishátíð Jóa á Brekku. Jóhannes Helgason
á Brekku hélt veglega upp á fimmtugsafmæli sitt
þ. 4. maí í vélaskemmunni á Brekku. Þau hjón,
Jóhannes og Helga María, sögðu tilefnið hafa
verið að það þurfti að taka til í skemmunni og
lakka gólfið. Og þá var rétt að nota tækifærið að
halda upp á fimmtugsafmælið í leiðinni. Var það
gert með dúkuðum veisluborðum og gómsætum
veitingum frá Jóa í Múlakaffi undir veislustjórn
Arnar Arnarsonar, skemmtiatriðum „Hunds í
óskilum“ og fleiri og diskóteki Jóns Bjarnasonar
á eftir fram á rauða nótt. Margmenni var og menn
kátir.
Styrkir til menningarstarfs. Uppbyggingar-
sjóður Suðurlands hefur styrkt 3 menningar-
verkefni Tungnafólks á undanförnu ári. Jón
Bjarnason hlaut styrk að upphæð 700.000 vegna
barokkvölda í Selfosskirkju og Skálholtskirkju.
Aðstandendur brúarhátíðar, sem var haldin í
desember, í tilefni af 60 ára afmæli Hvítárbrúar
hjá Iðu hlutu kr. 300.000 og Páll M. Skúlason
hlaut styrk vegna verkefnisins Laugarás - þorpið
í skóginum, kr. 800.000.
Hjartastuðtæki gefin af starfsfólki
Friðheima. Þann 14. maí afhenti starfsfólk
Friðheima Björgunarsveit Biskupstungna og
Björgunarsveitinni Ingunni á Laugarvatni, sitt
hvort hjartastuðtækið að gjöf. Safnaði starfsfólkið
saman þjórfé sem ánægðir viðskiptavinir höfðu
skilið eftir og ákváðu að nýta upphæðina í anda
verkefnisins Ábyrg ferðaþjónusta, sem hvetur
fyrirtæki til að stuðla að því að Ísland verði
ákjósanlegur áfangastaður ferðamanna.
Friðheimabjór - Skálholtsbjór. Það er ekki á
hverjum degi sem kynntar eru nýjar bjórtegundir
hér í Biskupstungum, en nú vill svo til að í vor
hafa með stuttu millibili verið kynntar tvær
bjórtegundir hér innansveitar. Annars vegar
Friðheimabjórinn, sem kynntur var til sögunnar
þ. 12. apríl, en þar er um að ræða hvítan, sumar-
legan bjór, bruggaðan úr rauðum tómötum. Hins-
vegar Skálholtsbjórinn, sem var kynntur þ. 5.
maí í Skálholti, sjá nánar um það annarsstaðar í
blaðinu.
Kosningar. Kosið var til sveitarstjórnar þ. 26.
maí 2018. Þrír listar voru í boði í Bláskógabyggð,
N-listi Nýtt afl í Bláskógabyggð, T-listi tímamóta
og Þ-listi. Niðurstaðan varð sú að T-listinn hlaut
61,8% atkvæða og 5 menn kjörna, Þ-listinn 26,7%
atkvæða og 2 menn kjörna og N-listi 11,5%
atkvæða og engan mann kjörinn. Í sveitarstjórn
næsta kjörtímabil sitja því: Helgi Kjartansson (T),
Valgerður Sævarsdóttir (T), Óttar Bragi Þráinsson
(Þ), Kolbeinn Sveinbjörnsson (T), Guðrún S.
Magnúsdóttir (T), Eyrún M. Stefánsdóttir (Þ) og
Róbert Aron Pálmason (T). Kjörsókn var 83%.
Ermin tæmd. Þorsteinn Þórarinsson, „Steini í
Fellskoti“, sem hefur víða komið við undanfarin
allmörg ár í hlutverki sínu sem „Steini í Bisk-
verk“, hefur ákveðið að hefja samdrátt segla
þeirrar skútu. Frá síðustu áramótum hefur
starfsemi Bisk-verks verið breytt í samræmi við
þá ákvörðun. Steini segist í bili vera að tæma
ermina af gefnum loforðum, en síðan mun hann
halda áfram að taka að sér verkefni, þó umsvifin
verði minni.
Skálholtsfélagið hið nýja. Fimmti aðalfundur
Skálholtsfélagsins hins nýja var haldinn í
Skálholti fimmtudaginn 7. júní 2018, en félagið
var reist á grunni Skálholtsfélagsins gamla sem
var stofnað fyrir 70 árum. Tilgangur félagsins er
að vera bakhjarl, hollvinasamtök um Skálholt. Í
félaginu eru nú 185 félagsmenn.
Á liðnu ári hefur verið mikil starfsemi í félaginu,
haldin málþing og stutt almennt við starfið í
Skálholti. Haldnir voru 5 stjórnarfundir og sótti
vígslubiskup alla fundi þar sem hann kynnti
stjórnarmönnum stöðu mála í Skálholti. Jafnframt
sótti Drífa Hjartardóttir, formaður stjórnar Skálholts
flesta fundi. Verndarsjóðurinn, sem er stýrt af Jóni
Sigurðssyni, fyrrum formanni Skálholtsfélagsins,
hefur staðið fyrir viðgerðum á gluggum Gerðar
Helgadóttur sem eru í Skálholtskirkju. Það verk
gengur mjög vel og eru líkur á að því ljúki í Friðheimabjórinn.