Litli Bergþór - júl. 2018, Blaðsíða 29
Litli-Bergþór 29
haust. Verkið er nánast full fjármagnað. Á fund-
inum gengu þau Karl Sigurbjörnsson, Hildur
Hákonardóttir og Þorfinnur Þórarinsson úr
stjórninni, en þau hafa átt sæti í stjórn félagsins frá
upphafi og þakkaði fundurinn þeim þeirra störf.
Í stjórn voru kjörin þau Erlendur Hjaltason,
formaður, Guðmundur Ingólfsson, Bergþóra
Bjarnadóttir, Bjarni Harðarson og Halldóra
Þorvarðardóttir. Í varastjórn voru kjörin Páll
M. Skúlason, Katrín Andrésdóttir og Anna
Stefánsdóttir.
Í lok fundar var fráfarandi vígslubiskupi,
Kristjáni Val Ingólfssyni þakkað fyrir hið mikla
starf sem hann hefur sinnt í Skálholti þann tíma
sem hann hefur gegnt embætti vígslubiskups í
Skálholti.
Skálholtsgluggar Undanfarið ár hefur ver-
ið unnið að lagfæringu listglugga Gerðar
Helgadóttur í Skálholtskirkju og því verki lýkur
á komandi hausti. Þessa dagana er verið að taka
niður og flytja til Þýskalands síðasta skammtinn,
en þetta verk er unnið í skrefum. Kostnaðurinn við
þetta mikla verk reyndist verða umtalsvert minni
en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir og það hefur
tekist að safna nánast alveg fyrir kostnaðinum,
sem er í kringum 24 milljónir. Verndarsjóður
Skálholts hefur haft veg og vanda af söfnun fjár
til viðgerðanna.
Framundan er síðan að meta ástand altarisverks
Nínu Tryggvadóttur, en það hafa komið í ljós
sprungur í því, eftir Suðurlandsskjálftana, sem
Viðlagatrygging hefur ekki fengist til að bæta.
Barokkvöld 14. og 15. júní voru haldin
barokkvöld í Selfosskirkju og Skálholtskirkju, að
frumkvæði Jóns Bjarnasonar organista og kantors
og með styrk frá Uppbyggingarsjóði Suðurlands.
Ásamt Jóni komu fram á tónleikunum þau
Jóhann I. Stefánsson og Vilhjálmur I Sigurðarson
á trompeta, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir messó-
sópran og strengjasveit, en hana skipuðu Guðbjörg
Hlín Guðmundsdóttir og Gunnhildur Daðadóttir
á fiðlu, Ásdís Hildur Runólfsdóttir á víólu,
Sigurður Halldórsson á selló og Gunnlaugur Torfi
Stefánsson á kontrabassa.
Þarna var um að ræða mikla veislu eftir helstu
barokktónskáld sögunnar.
Hulda Gústavsdóttir Sæland
fædd 24.12.1926, lést á Fossheimum á
Selfossi 22. janúar 2018. Hulda bjó lengst af
á Espiflöt ásamt manni sínum Eiríki Sæland.
Útförin fór fram frá Selfossi.
Gústaf Ólafsson frá Arnarholti, f. 27. 8.
1966, lést í Sundsvall í Svíþjóð þ. 29. janúar
2018. Minningarathöfn fór fram
í Skálholti þ. 7. apríl.
Ragnar Lýðsson frá Gýgjarhóli,
f. 24.11.1952, lést 31. mars 2018.
Útförin fór fram frá Skálholtsdómkirkju
14. apríl 2018. Jarðsett var í Haukadal.
Bjarni Sigurðsson á Geysi, f. 26.4.1935,
lést 2. maí 2018. Útförin fór fram frá
Skálholtsdómkirkju 18. maí 2018.
Jarðsett var í Haukadal.
Guðjón Gunnarsson frá Tjörn f. 17.6.22
lést 24. júní. Útförin fór fram frá
Skálholtsdómkirkju 16. júlí 2018, jarðsett
var að Torfastöðum.
Andlát
Frá fundi Skálholtsfélagsins 7. Júní.