Litli Bergþór - jul. 2018, Side 31
Litli-Bergþór 31
einstaklingar, félög, fyrirtæki og stofnanir
hafa lagt sitt af mörkum í smáu eða stóru. Hér
eru einungis tilgreindir þeir aðilar sem gáfu
hæstu upphæðirnar til verkefnisins, en það eru
Uppbyggingarsjóður Suðurlands, Kvenfélag
Biskupstungna, Bláskógabyggð, Lionsklúbburinn
Geysir í Biskupstungum og Vegagerðin. Þakklæti
okkar, sem að undirbúningnum höfum staðið,
fyrir hönd allra þeirra sem munu njóta þessarar
lýsingar á dimmasta tíma ársins næstu árin, til allra
þeirra sem lögðu sitt til, er djúpt. Þarna er ekki
eingöngu um að ræða að fólk fái notið fagurrar
lýsingar í skammdeginu, heldur stóreykur lýsingin
umferðaröryggi við og á þessari einbreiðu brú.
Í lok athafnarinnar á brúnni hófu gestir kyndlana
32 á loft og héldu í blysför í Dýragarðinn í
Slakka. Þar tóku húsráðendur á móti gestunum
af einstökum höfðingsskap og velvild, eins og
þeim er lagið. Fyrir utan heitt kakó, kaffi og
smákökur sem Slakkafólkið bauð gestum, lögðu
fjölmargir íbúar í Skálholtssókn og reyndar víðar
að, allskyns góðgæti á borð í því sem kallast mun
„Pálínuboð“.
Í Slakka var myndasýning á tjaldi, þar sem
sýndar voru gamlar myndir frá því fyrir daga
brúarinnar og meðan á byggingu hennar stóð. Þá
tóku einnig ýmsir til máls, þar á meðal Marinó
Þ. Guðmundsson, sem vann við lokaáfanga
brúarbyggingarinnar haustið 1957.
Í kaffisamsætinu í Slakka afhentu systkinin
frá Iðu, þau Jóhanna, Guðmundur, Hólmfríður
og Loftur peningagjöf til minningar um foreldra
sína þau Margréti Guðmundsdóttur og Ingólf
Jóhannsson. Gjöfinni er ætlað að vera fyrsti
vísirinn að gerð söguskiltis við Hvítárbrú.
Það verður að segjast, að laugardagurinn 9.
desember, var meðal þeirra mest gefandi, sem
undirritaður hefur reynt. Ótal bros, gæsahúð,
hlátur, jafnvel eitt og eitt tár, gleðitár, að sjálfsögðu.
Fólki hefur farið hratt fjölgandi í Laugarási á
síðustu árum, en það er stutt síðan börn úr „Þorpinu
í skóginum“ voru að hverfa af sjónarsviðinu. Nú
sækja þaðan, í leikskóla og grunnskóla, 17 börn
og bjartsýni ríkir um framhaldið. PMS.
Ásta Skúladóttir og Guðmundur Ingólfsson Mynd: Páll M Skúlason. Ljósin tendruð. Ásta Skúladóttir, Guðmundur Ingólfsson, Kristján Valur
Ingólfsson, Unnur Malín Sigurðardóttir og Páll M. Skúlason.
Mynd: Marinó Már Magnússon.
Gestir á brúnni. Ásta Skúladóttir og Guðmundur Ingólfsson standa
fremst. Mynd: Marinó Már Magnússon.
Unnur Malín Sigurðardóttir og Kristján Valur Ingólfsson
Mynd: Páll M Skúlason.