Litli Bergþór - Jul 2018, Page 32
32 Litli-Bergþór
Ágætu lesendur!
Nú þegar er að síga á seinni hlutann á þessu
fyrsta skólaári mínu í Reykholti, drep ég penna
á blað í þessum merka miðli Ungmennafélags
Biskupstungna, að segja ögn frá starfinu að beiðni
ritnefndar. Skemmst er frá því að
segja að vel hefur gengið í skólanum.
Samstarf okkar Láru Bergljótar
Jónsdóttur aðstoðarskólastjóra, sem
líka hóf störf í haust, hefur verið
ljómandi gott. Við höfum í aðalatriðum
sömu stefnu og skoðun á starfinu og
bætum hvort annað upp á margan
hátt. Starfsfólkið í skólanum, sem
er vel hæft og trútt sínum skyldum,
hvert með sín sérkenni auðvitað,
hefur og tekið okkur stjórnendum
vel svo enga skugga hefur borið þar
á. Það ber að þakka. Einnig höfum við átt gott
samtal við starfsfólk skrifstofu Bláskógabyggðar,
sveitarstjóra, oddvita og sveitarstjórnarmenn.
Þegar vel árar er fallegt í sveitinni!
Við trúum því að lesturinn og þjálfun hans sé
lykilatriði fyrir nám og framtíð nemendanna og
á hann ætlum við að leggja mikla áherslu. Það
sama má segja um stærðfræði og náttúrugreinar.
Mikilvægi þess að byggja upp og viðhalda góðri
sjálfsmynd hvers og eins, ásamt þekkingu á sterku
og veiku hliðunum, verður seint ofmetið og er
leiðarstef í nýjustu aðalnámskrá. Þá stefnum við að
því að spjaldvæða skólann og höfum þegar stigið
ákveðin skref í þá átt. Í haust vonumst við eftir
að getum tekið lokahnykkinn; að fá
spjaldtölvur fyrir unglingastigið. Við
horfum til nágrannanna í Flúðaskóla
með fyrirkomulagið, en þar hefur nú
í nokkur ár verið unnið með þessa
tækni í skólastarfinu. Börnin fá
afhenta spjaldtölvu til afnota í náminu,
eins og hverja aðra námsbók í eigu
skólans. Kvenfélag Biskupstungna
hjálpaði okkur veglega undir jól við
endurnýjun spjaldakosts á miðstigi,
sem nýttist yngsta stiginu líka,
þannig að þar er staðan viðunandi.
Okkur í skólanum langar að freista þess að leita
fanga víðar hjá félagasamtökum byggðarlagsins
um hjálp við þetta átak. Kennarar hafa líka fengið
spjaldtölvu og eru að prófa sig áfram og reyna
kosti tækjanna. Endurmenntun þeirra mun taka
mið af þessum nýju vinnubrögðum svo tækin
nýtist sem skyldi.
Enginn skyldi álykta sem svo að við,
skólafólkið, teljum snjalltæknina svör við öllum
Frá Bláskógaskóla
Á skautasvellinu í Egilshöll eru frá vinstri: Guðný Helga E.
Sæmundsen, Unnur Kjartansdóttir, Diljá Björg Matthíasdóttir,
Guðrún Birna Þórarinsdóttir og Jóna Kolbrún Helgadóttir
krjúpandi fyrir framan.
Á þemadögum. Frá vinstri í fremri röð: Ásdís Erla Helgadóttir,
Þórunn Ósk Alvinsdóttir, Metta Malín Briddé, Lilja Björk Sæland,
Saga Natalía Óskarsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Kristín María
Jóhannesdóttir, Jóna Kolbrún Helgadóttir, Dísa Ósk Grétarsdóttir,
Lísa Katrín Káradóttir.
Hreinn Þorkelsson.