Litli Bergþór - jul 2018, Qupperneq 35

Litli Bergþór - jul 2018, Qupperneq 35
Litli-Bergþór 35 Heyskapur, sauðburður, smalamennska, rúningur, stinga út úr fjárhúsum, svo nokkuð sé nefnt. Búskapurinn var að miklu leyti samtvinnaður við búskap Steina. Það verður að segjast að það samstarf var hávaðasamt. Rómurinn var oft mjög hár og stór orð féllu gjarnan. Ekki var alltaf auðvelt að umbera það. Engu að síður báru þeir umhyggju hvor fyrir öðrum. Þar fóru ólíkir menn í lund. Faðir minn hvatvís en Steini varfærinn, íhugull og hægur í hreyfingum. ,,Einkennilegt með þessa bræður mína“ sagði Eiríkur bróðir þeirra einhvern tíma. ,,Þeir geta ekki saman verið, en mega ekki hvor af öðrum sjá“ Bílstjórinn Akstur vörubíla var atvinna Tómasar í Helludal frá því um 1940 fram á áttunda áratuginn. Hann tók bílpróf árið 1934, 18 ára gamall. Á þeim árum var sjaldgæft að unglingar tækju bílpróf, en á þeim aldri hefur hann verið tæknilega sinnaður. Ég hygg að menn sem voru bílstjórar fyrir miðja öldina hafi tilheyrt virðingarstétt. Það voru því nálægt sjötíu ár sem hann hafði ökuréttindi. Hann ók tjónlaus allan þann tíma. Enda var hann varkár undir stýri og ók sjaldan hraðar en á sextíu til sjötíu kílómetra hraða. Þeir höfðu sameiginlegan boðskap í umferðinni, þjóðsagnapersónan Ólafur Ketilsson og pabbi: Keyra hægt, keyra hægt og keyra hægt og hleypa helst ekki þessum glæpamönnum í umferðinni fram úr sér. Sem sem höfðu þekkingu á því sviði. Í hans huga var það beitilandið sem öllu skipti. ,,Það hefur ekkert að segja“ sagði hann einhvern tíma um fengitíma, þegar við Steini, sem var glöggur á fé, undruðumst að pabbi skyldi skilja eftir hrút í hópi þar sem Steini greindi að móðir hrútsins og systur tvær væru fyrir í krónni. Ekkert bókhald yfir hvaða ær væri hvað, það var bara mont að hans mati að vera með eitthvað slíkt kjaftæði. Stöðugt var verið að berja lóminn í búskapnum, enda afkoman ekki sver. Engu að síður kom faðir minn vel fram við skepnur, hann fóðraði ágætlega. En það fór mikið hey í súginn. Hann hafði ekki þolinmæði til að bíða eftir að heyið þornaði áður en það var hirt. Andstætt við Steina, sem vildi þurrka heyið mikið. Gjarnan sjóðhitnaði í, og gæðin urðu lítil. Það var bætt upp með kjarnfóðurgjöf sem kostaði sitt. Um tíma áttu foreldrar mínir um 300 varphænur. Móðir mín hafði umsjón með þeim. Hún kvartaði eitthvert kvöldið yfir að illa gengi með varp. Þá tók pabbi sig til að slátraði öllum hænunum eitt kvöldið og fjarlægði hræin, gleymdi að láta móður mína vita af því. Ekki vissi hún hvað hafði skeð þegar hún ætlaði að sinna um hænsnin morguninn eftir. Pabbi farinn í burtu á vörubílnum. Hún hélt að þau hefðu sloppið út og leitaði þeirra í góða stund. Pabbi var alltaf að svo lengi sem heilsan leyfði, fann sér endalaust verkefni, þörf og óþörf. En stundum hefði verið betra að staldra við og hugsa sinn gang. Í mínu búskaparbasli var talsvert umleikis og þar munaði vel um handtök þess gamla. ,,Gerum ekki tímann að engu“ sagði hann oft. Gilti þá einu hvort var sunnudagur eða annar dagur. Ein regla var þó í þessum efnum: að slátra ekki skepnum á helgum dögum. Margt þurfti að vinna með látum, fyrirgangi og mörgum orðum. Tómas 1946 við Nýjan Austin vörubíl sem hann keypti þá.

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.