Litli Bergþór - jul. 2018, Side 39

Litli Bergþór - jul. 2018, Side 39
Litli-Bergþór 39 Lionsklúbbi Skeiða-og Gnúpverjahrepps komu með okkur í þessa heimsókn og gerðu góðan róm að móttökum og allri framkvæmdinni. Við þáðum síðan boð um heimsókn frá Búr- fellsvirkjun 2, sem er á lokastigi og sem verður tekin í notkun á þessu ári. Stórhuga framkvæmd, sem á eftir að nýta mikið betur þá orku sem runnið hefur óbeisluð fram hjá gömlu Búrfellsstöðinni. Landsvirkjun lagði mikinn metnað í að sýna okkur framkvæmdina, sem er að mestu byggð neðanjarðar og þáðum við góðar veitingar á eftir. Hefð er fyrir sérstökum jólafundi í Skálholti, sem góður félagi, Kristján Valur hefur boðið til á jólaföstunni. Fundurinn er orðinn fastur punktur í jólaundirbúningi félagsmanna og endaði nú sem oft áður með fögrum söng Margrétar Bóasdóttur í Skálholtskirkju. Sannarlega vonumst við til að geta viðhaldið þessum sið þrátt fyrir fyrirhuguð húsbóndaskipti í Skálholti á vordögum. Á fundinum afhenti klúbburinn framlög til endurnýjunar á lýsingu Iðubrúar, annarsvegar, og hinsvegar til gluggasjóðs Skálholtskirkju. Villimannakvöldið tókst mjög vel að vanda. Samúel Örn var veislustjóri og Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri í Rangárþingi Ytra, var ræðumaður kvöldsins. Félagar úr Karlakór Selfoss sungu nokkur lög okkur til skemmtunar. Þetta kvöld nýtur töluverðrar hylli innan hreyfingarinnar og koma félagar langt að til að skemmta sér með okkur. Við heimsóttum Kiwanismenn á Selfossi á fund þeirra í Tryggvaskála, þar sem Dísa í Skálanum rakti fyrir okkur merkilega sögu Skálans og hlutverk hans í samgöngusögu Sunnlendinga. Skálinn var mjög illa farinn og stóð til að rífa hann þegar áhugamannafélag, „Skálafélagið“, tók til sinna ráða og réðist í myndarlega endurbyggingu þessa þjóðþekkta húss. Stórmerkileg saga sem sýnir hve samtakamáttur nærsamfélagsins getur tekið fram fyrir hendurnar á misvitrum stjórnmálamönnum og unnið glæsi- legt verk. Í mars skoðuðum við stórhuga uppbyggingu í ferðaþjónustu á Einholtsmelum. Þar fer saman glæsilegur stíll í anda íslenska burstabæjarins og vandaður frágangur í einu og öllu. Sigurður og Sjöfn í Dalsholti eru svo sannarlega að vinna merkilegt uppbyggingarstarf á Einholtsmelum sem okkur Tungnamönnum hafa ekki þótt í neitt brúklegir annað en sem flugvöllur á fyrri tíð. Í janúar fengum við góðan gest, Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumann Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi. Tómas er uppalinn í Laugarási, mikill náttúru- og fuglaáhugamaður. Hann var með áhugaverðan fyrirlestur um starf sitt og áhugamál. Elís Kjartansson lögreglumaður á Selfossi kom til okkar á fund með fræðandi og áhugavert erindi um heimilis- og kynferðisofbeldi. Eftirtektarvert var hve Elís átti auðvelt með að setja erfiðan málaflokk í búning sem fundarmenn áttu gott með að ræða og fræðast um. Sannarlega reynslubolti sem unnið hefur þrekvirki í þessum málaflokki á Suðurlandi og hefur brennandi áhuga á þessum málum þó erfið séu. Hreinn Þorkelsson, skólastjóri heimsótti okkur í apríl og ræddi málefni grunnskólans. Starfsári Lionsklúbbsins lýkur 1. júlí og tekur þá ný stjórn við. Þá ætlum við að vera búnir að fara í „vorhreingerningu“ í Fontana með félögum okkar í Lionsklúbbi Laugardals. Skemmtilegir félagar, Í vatnsverksmiðjunni Icelandic Glacial. Stjórn að undirbúa fund í Skálholti. Sveinn A. Sæland, Jóhannes Helgason og Þórarinn Þorfinnsson. Jólafundurinn í Skálholti. Kristján Valur flytur okkur hugvekju.

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.