Litli Bergþór - júl. 2018, Blaðsíða 42

Litli Bergþór - júl. 2018, Blaðsíða 42
42 Litli-Bergþór Inngangur Árnar hér í uppsveitunum eru einkennandi fyrir svæðið og þær hafa ávallt haft afgerandi áhrif á ferðalög. Nýjasta dæmið er hvernig nýja Hvítárbrúin gerbreytti ferðamynstri íbúa í Bláskógabyggð og Hrunamannahreppi. Nú er samgangur íbúa orðinn meiri og samnýting þjónustu og samstarf félaga orðið meira, svo dæmi séu tekin. Samgöngur um þetta svæði voru ekki hættulausar hér áður fyrr. Það er raunar sláandi hve margir hafa látið lífið við árnar hérna í gegnum tíðina. Fyrirsögn þessarar greinar vísar til texta úr blaðagrein sem sagði frá drukknun ferjumannsins Runólfs Bjarnasonar á Iðu við störf sín haustið 1903 og lýsir aðstæðum fjölskyldu sem missti fyrirvinnu sína af slysförum. Eftir stóð ekkjan með börnin, ólétt og tvo aldraða fjölskyldumeðlimi. Þó nokkuð hefur verið ritað um þetta slys og afleiðingar þess en á mismunandi máta og ég geri hér tilraun til að draga saman þessar frásagnir og bera þær saman. Það verður þó að benda á að þótt ég rýni all ítarlega í lýsingar sjónarvottanna þá er minni manna ákaflega ótraust heimild. Mikilvæg atriði eiga það til að breytast og oft lýsa frásagnir sjónarvotta fremur upplifun þeirra af atburðinum byggða á fyrri reynslu fremur en hreinum staðreyndum. Þegar jafn hörmulegt slys verður og þegar maður í blóma lífs síns fellur frá á jafn voveiflegan hátt og Runólfur, þá hefur það mikil áhrif á fjölskyldu hans. Það er von mín að geta gert lesendum ljósa erfiðleikana sem blöstu við fjölskyldu Runólfs eftir slysið. Ferjuslysið Árið 1903 vildi það óhapp til að Runólfur Bjarnason (1866-1903), bóndi á Iðu 2 árin 1900 til 1903 og ferjumaður við Hvítá fórst við störf sín. Orsök slyssins má rekja til þess að verið var að breyta um ferjubúnað. Átti að leggja niður gamla háttinn að ferja stöðugt með árabáti og settur hafði verið upp strengur yfir ána til að nýta með dragferju. Svo vildi til að Hannes Þorsteinsson (1860-1935) frá Brú og sr. Ólafur Ólafsson (1855-1937) urðu vitni að slysinu. Þeir áttu það „Þrjú börn, aldraðan föður og uppgefna föðursystur“ Skúli Sæland: sameiginlegt að vera báðir ritstjórar auk þess að vera þingmenn Árnesinga þetta árið. Mennirnir skrifuðu um atburðinn í blöðum sínum auk þess sem lýsing þriðja vitnisins hefur verið skrásett. Ferjustaðurinn sjálfur var á þeim stað sem brúin var síðar byggð 1958. Hún stendur á milli klapparhóla, sá syðri heitir Iðuhamar en sá nyrðri Skálholtshamar. Áin er um 110 metra breið á þessum stað og út af syðri hamrinum myndast straumkast og hringiða í ánni. Aðdjúpt er beggja megin og gott sund fyrir hesta. Áin liggur þannig að mikið léttara var að synda framyfir frá Skálholtshamri. Ef þeir fóru rétt bar straumurinn þá yfir á örskammri stund. Öðru máli gegndi er hestar voru sundlagðir uppyfir frá Iðuhamri. Straumkastið sem myndast af syðri hamrinum er þrjá til fjóra metra frá landi, en straumröstin er örmjó. Tækju hestar vel út í strenginn var sundið uppyfir ekki erfitt, en ef útaf því bar sem oft kom fyrir er um óvana hesta var að ræða vildu þeir hrekjast undan straumi og gat sundið þá orðið nokkuð langt. Ferjað var á Iðu á öllum tímum árs, en vegna ísskriðs gat orðið ófært svo dögum skipti. Upp úr aldamótum fengu Tungnamenn áhuga á að skipta út ferjunni við Iðu og setja upp dragferju í staðinn og var sr. Magnús Helgason á Torfastöðum mikill hvatamaður að því verki. Um vorið 1903 var dragferjan sett upp og var Páll Jónsson (1853-1939) vegaverkstjóri fenginn til þess að stjórna verkinu. Páll þessi hafði mikla Páll Jónsson vegaverkstjóri (1853-1939) var afar sérstakur maður. Hann valdi dragferjunni stað og setti hana upp. Fannst svo hann bera vissa ábyrgð á slysinu sem varð og kom því ekkjunni Guðrúnu Markúsdóttur og börnum hennar til hjálpar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.