Litli Bergþór - jul. 2018, Side 47

Litli Bergþór - jul. 2018, Side 47
Litli-Bergþór 47 Ferjuðu líkflutningmennirnir líkið yfir í snarhasti og lokaðist vökin jafnskjótt og komið var austur yfir. Runólfur var jarðsettur í Skál- holtskirkjugarði í leiði sem nú ber númerið A-27. Ekkja hans Guðrún Markúsdóttir var síðar einnig jarðsett þar. Afdrif fjölskyldunnar Runólfur og kona hans, Guðrún Markúsdóttir (1873-1965) voru bæði ættuð austan úr Meðallandi. Höfðu Runólfur og mágur hans flutt í Tungurnar úr Skaftafellssýslu ásamt fjölskyldum sínum. „Ég hef litið svo til Skaftfellinga, að þeir séu þrautseigir, nægjusamir, ráðvandir og góðsamir,“ sagði séra Magnús á Torfastöðum. Runólfi var lýst sem efnismanni, duglegum og fylgnum sér, auk þess sem hann ófædds sonar sem kom í heiminn sjö mánuðum síðar, hlýtur maður að spyrja sig hvernig fjölskyldu Runólfs reiddi af eftir fráfall hans. Sú saga er að mörgu leyti merkileg og er viðfangsefni síðari hluta greinarinnar. „hafði á sér almenningsorð“. Hann var 37 ára að aldri og lét eftir sig auk eiginkonunnar þrjú börn, aldraðan föður og „uppgefna föðursystur.“ Þegar fyrirvinnan, til þess til að gera ungur maður, fellur frá og eftir situr fjölskylda sem telur eiginkonu, þrjú börn, föður og föðursystur, auk Hjónin Runólfur Bjarnason og Guðrún Markúsdóttir hvíldu síðar hlið við hlið í Skálholtskirkju- garði Raflagnir - Viðgerðir Jens Pétur Jóhannsson LÖGGILTUR RAFVERKTAKI Tökum að okkur nýlagnir, hönnun raflagna og alla almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum. Efnissala og varahlutaþjónusta. Fljót og góð vinna. Sumarbústaðaeigendur athugið að við sækjum um öll leyfi fyrir heimtaug að sumarhúsum og lagningu raflagna. Heimasími 486 8845 Verkstæði 486 8984 GSM 893 7101

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.