Litli Bergþór - jul. 2018, Side 53

Litli Bergþór - jul. 2018, Side 53
Litli-Bergþór 53 Í Kvenfélagi Biskupstungna eru nú 58 konur og þar er haldið uppi öflugu og skemmtilegu starfi. Aðal verkefni félagsins hefur í gegnum tíðina verið að afla fjár til þess að gefa til baka til verkefna sem nýtast samfélaginu hér í Tungunum og víðar og jafnframt að stuðla að því að konur kynnist og geri eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi saman. Á aðalfundi Kvenfélags Biskupstungna 2018, sem var haldinn í Bergholti þ. 14 mars s.l., voru kosnar í stjórn Kvenfélagsins næsta starfsárið: Agnes Geirdal formaður, Bryndís Malmo Bjarnadóttir gjaldkeri, Geirþrúður Sighvatsdóttir ritari og Herdís Friðriksdóttir og Oddný Jósefsdóttir meðstjórnendur. Varakonur eru þær Margrét Baldursdóttir og Margrét Sverrisdóttir, skoðunarmenn reikninga Geirþrúður Sighvatsdóttir og Guðrún Ólafsdóttir. Í veitinganefnd eru Sigríður J. Sigurfinnsdóttir formaður, Oddný Jósefsdóttir og Margrét Sverrisdóttir. Varakonur eru Elín Siggeirsdóttir og Mardita Andini. Í skógræktarnefnd eru Bryndís Malmo formaður, Agnes Geirdal og Herdís Friðriksdóttir. Fjáröflun félagsins felst aðallega í því að sjá um kaffiveitingar við ýmis tækifæri. Það væri ekki hægt nema vegna þess hvað konurnar í félaginu eru jákvæðar og duglegar að hjálpast að við þessi verkefni, sem oft eru ansi stór, eins og t.d. þegar hrista þarf fram úr erminni kaffi og meðlæti fyrir 600 manna erfidrykkju. Í þeim tilfellum hafa utanfélagskonur oft hlaupið undir bagga og hjálp þeirra verið þegin með þökkum. Þessi gleði og samheldni er ómetanleg og gerir allt starfið og samveruna svo miklu skemmtilegri. Frá því síðasti pistill birtist í vorblaði Litla- Bergþórs 2017 hafa helstu fjáröflunarverkefni Kvenfélagsins verið þessi: Við unnum við veitingar í Aratungu þegar forsetahjónin heimsóttu Bláskógabyggð 9. júní 2017. Töfruðum fram 17. júní kaffið í Aratungu nokkrum dögum seinna, sáum um kaffiveitingar og markað á sveitahátíðinni Tvær úr Tungunum í ágúst og eins á jólamarkaðinum í lok nóvember. Auk þess sáum við um kaffiveitingar í fjórum erfidrykkjum. Fyrir ágóðann af fjáröfluninni gáfum við gjafir til samfélagsins fyrir um 1,6 milljónir króna. Þar má telja: Öndunarmæli fyrir Heilsugæslustöðina í Laugarási (137.000), - 10 spjaldtölvur fyrir Bláskógaskóla í Reykholti (628.830), - styrk til lýsingar og uppsetningar ljósa á Iðubrú á Hvítá á 60 ára afmæli hennar (200.000), - styrk til viðgerða á steindu gluggunum í Skálholtskirkju (200.000), - styrk til 10. bekkinga í Bláskógaskóla v. gróðursetningar í Ingu-lund í landi Spóastaða (70.000), - fyrir Aratungu keyptum við nýja dúka á borðin og fjóra barnastóla (128.315), auk þess voru keyptar tvær stórar kaffiuppáhellingarkönnur og 20 hitakönnur, sem eru í eigu Kvenfélagsins en verða notaðar í Aratungu. - Við greiddum fyrir leigu og flutning á hoppukastala á hátíðina Tvær úr Tungunum (110.044), - styrktum jólaballið í Bláskógaskóla (39.200) - og styrktum 17. júnínefndina um 50.000, auk fleiri smærri styrkja. - Við buðum eldri borgurum í mat í ferð eldri borgara austur í Rangárvallasýslu s.l. haust (101.050) - og við höfum látið smíða stiga ofan í sundlaugina í Reykholti, svo allir geti gengið virðulega upp og niður úr lauginni! (282.720). Það eru haldnir fjórir félagsfundir á ári. Vorfundur Kvenfélagsins 2017 var haldinn í Myrkholti og þar sagði Ásborg Arnþórsdóttir ferðamálafulltrúi uppsveitanna okkur frá starfi sínu. Haustfundurinn var haldinn í Skálholtsskóla, og þar var gestur okkar Dröfn Þorvaldsdóttir í Laugarási, sem sagði okkur frá listsköpun sinni og sýndi okkur skemmtilega muni og málverk. Jólafundur var haldinn í Slakka með glensi og Kvenfélagspistill Afhending Öndunarmælis. Andri Kristinsson læknir blæs í tækið með aðstoð Önnu Ipsen hjúkrunarfræðings og Agnesar Geirdal. Geirþrúður og Oddný fylgjast með.

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.