Fréttablaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 48
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Upplýsingar veitir:
Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júní nk.
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá
og kynningarbréf.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu liggur fyrir.
SVIÐSSTJÓRI KJARAMÁLASVIÐS EFLINGAR
Efling - stéttarfélag óskar eftir að ráða sviðsstjóra kjaramálasviðs.
Helstu verkefni
• Stjórnun og skipulag sviðsins
• Þróun og innleiðing á endurbótum verklags
við móttöku og afgreiðslu mála
• Samskipti við félagsmenn og atvinnurekendur
• Samstarf við lögmenn félagsins
Hæfniskröfur
• Reynsla af stjórnun og mannauðsmálum
• Þekking á vinnumarkaðsmálum og
kjarasamningum
• Reynsla og þekking á verkefnastjórnun
og þróun verkferla
• Rík samskiptahæfni og þjónustulund
• Skipulagshæfni og frumkvæði
• Íslensku- og enskukunnátta
Ertu að leita að sérfræðingi?
hagvangur.is
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Upplýsingar veita:
Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is
og Inga Steinunn Arnardóttir, inga@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til 5. júní.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Um er að ræða fullt starf. Einstaklingar af báðum kynjum
eru hvattir til að sækja um starfið.
Umsókn um starfið þarf að fylgja kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur
veittur fyrir hæfi viðkomandi í starfið.
Starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga ríkisins við
viðkomandi stéttarfélag.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
MANNAUÐSSTJÓRI
Biskup Íslands óskar eftir mannauðsstjóra. Starfið heyrir undir embætti biskups Íslands. Hjá embættinu starfa 137 prestar um land
allt og 36 starfsmenn á Biskupsstofu. Enn fremur veitir mannauðsstjóri prófastsdæmum, sóknum og stofnunum þjóðkirkjunnar
ráðgjöf og stuðning. Um fjölbreytt og krefjandi starf er að ræða.
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Umsjón með starfsmannahaldi biskupsstofu
• Stuðningur við prófasta vegna starfsmanna
í prófastsdæmum
• Yfirumsjón með launagreiðslum
• Tímaskráningar, leyfi og fjarvistir starfsmanna
• Endurmenntun og starfsþróun
• Umsjón með starfsþjálfun djákna- og prestsefna
• Ráðgjöf og stuðningur vegna samskiptamála
• Umsjón með starfsmannahandbók
• Skipulagning verkefna á sviði mannauðsmála
í samráði við biskup
• Vinnuvernd
• Fræðsla, námskeið og fyrirlestrahald
• Umbótastarf, nefndarstörf og teymisvinna
Menntunar- og hæfniskröfur
• Meistaragráða í mannauðsstjórnun eða
sambærileg menntun sem nýtist í starfi
• Yfirgripsmikil reynsla af mannauðsmálum
• Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu
er æskileg
• Þekking á kjarasamningum og reynsla af túlkun
þeirra
• Framúrskarandi samskiptahæfni og framkoma
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Skipulagshæfni og færni til að vinna í hóp
• Færni til að tjá sig í ræðu og riti
Biskupsstofa er embættisskrifstofa biskups Íslands, þar sem annast er um starfsmannahald vegna presta
þjóðkirkjunnar og stuðningur veittur í starfsmannamálum í sóknum, stofnunum og prófastsdæmum.
Hlutverk Biskupsstofu er umfram allt að hvetja og styðja söfnuði, presta og aðrar stofnanir kirkjunnar til að sækja fram
í starfi og þjónustu. Biskupsstofa sinnir m.a. í því skyni fræðslumálum, málefnum er varða kærleiksþjónustu, guðfræði
og þjóðmál, kirkjutónlist og helgihald, upplýsingamál og samkirkjutengsl.
Starfsmannastefnu Þjóðkirkjunnar má lesa á kirkjan.is.