Fréttablaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 60
Kennari
Verzlunarskóli Íslands óskar að ráða
dönskukennara fyrir skólaárið 2019-2020. Um
er að ræða 50% stöðu á haustönn og 100%
stöðu á vorönn.
Hæfnikröfur:
Háskólapróf í dönsku.
Kennslufræði erlendra tungumála.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Við bjóðum:
Góða vinnuaðstöðu.
Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Inga Sívertsen
starfsmanna – og þróunarstjóri gunninga@verslo.is
Umsóknarfrestur er til 24. maí og skal senda
umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið
gunninga@verslo.is
Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með um 930 nemendur. Skólinn
er bekkjarskóli. Nemendur geta valið á milli fjögurra mismunandi brauta
og útskrifast með stúdentspróf af öllum brautum. Samkvæmt lögum um
framhaldsskóla nr. 92 frá 2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa
sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og
því er beðið um sakavottorð áður en ráðið er í starfið.
Framhaldsskóla-
kennarar, 2 stöður
Menntaskólinn í Kópavogi auglýsir eftir framhaldsskólakennurum
til kennslu í félagsfræði og tölvufræði. Um er að ræða fulla stöðu
í hvorri grein. Kennsla í félagsfræði er vegna afleysingar í eitt ár.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi lokið háskólanámi í
kennslugrein sem auglýst er og námi til kennsluréttindi á
framhaldsskólastigi. Umsækjendur þurfa einnig að hafa góða
almenna tölvukunnáttu, vera skipulagðir og hafa færni í mann-
legum samskiptum. Þá er góð íslenskukunnátta nauðsynleg.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Margrét Friðriksdóttir
skólameistari margret.fridriksdottir@mk.is og Helgi Kristjánsson
aðstoðarskólameistari helgi.kristjansson@mk.is og í síma 594
4000.
Sótt er um störfin á starfatorgi eða í netfang skólameistara
og skulu afrit prófskírteina og starfsferilskrá fylgja umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 3. júní n.k. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Launakjör eru sam-
kvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og KÍ.
Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mk.is.
Skólameistari
Sérfræðingur á skrifstofu
heilbrigðisþjónustu.
Skrifstofa heilbrigðisþjónustu annast verkefni sem varða skipulag
heilbrigðisþjónustu, sérhæfingu og verkaskiptingu þjónustuaðila.
Einnig eru á hennar sviði sjúkrahús, heilbrigðisstofnanir, heilsugæsla,
heilbrigðisþjónusta utan stofnana, hjúkrunar- og dvalarheimili,
læknisfræðileg endurhæfing og sjúkratryggingar.
Starfið felst meðal annars í að fylgja eftir uppbyggingu nýrra
hjúkrunarheimila, viðbygginga og viðhaldsframkvæmda á
heilbrigðisstofnunum þar með talið undirbúning, áætlunargerð,
samningagerð og eftirfylgni vegna framkvæmda í samstarfi við m.a.
Framkvæmdasýslu ríkisins og Ríkiseignir. Í starfinu felast einnig
samskipti við framkvæmda-, eftirlits- og rekstraraðila hjúkrunarheimila
auk annarra verkefna sem falla undir málefnasviðið.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun í verkfræði, arkitektúr, byggingarfræði eða
byggingatæknifræði eða önnur sambærileg menntun.
• Þekking og reynsla af verkefnastjórnun.
• Þekking á sviði áætlanagerðar, stefnumótunar og markmiðasetningar.
• Þekking á greiningarvinnu og kunnátta í að miðla upplýsingum með
skýrum hætti.
• Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, auk hæfni
til að taka virkan þátt í teymisvinnu.
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Gott vald á íslensku og ensku, önnur tungumálakunnátta er kostur.
• Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg.
Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi
þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði. Upplýsingar
um starfið veita Elsa B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri (elsa.
fridfinnsdottir@hrn.is) og Sveinn Bragason, sérfræðingur (sveinn.
bragason@hrn.is) í síma 545 8700. Um launakjör fer samkvæmt
kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins
og fjármála- og efnahagsráðherra. Áhugasamir einstaklingar, án tillits
til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 11. júní 2019. Umsóknum skal skila rafrænt á
Starfatorgi – starfatorg.is. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá
og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsóknir geta gilt í sex mánuði
frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996,
um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Heilbrigðisráðuneytið 17. maí 2019
Undirfyrirsögn
Meginmál
Fyrirsögn, to ex everis
áhersla ullabor ibusc
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu og
veita trausta og
persónulega ráðgjöf.
capacent.is
Ef þú ert með rétta
starfið – erum við með
réttu manneskjuna
16 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 8 . M A Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R