Fréttablaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 62
Vélavörður
Dögun ehf. leitar að vélaverði á Dag SK 17.
Leitað er að aðila með réttindi(750 kw). Reynsla af togveiðum
æskileg. Afleysingar í nokkra túra eða fast fram á haustið.
Þarf að geta byrjað strax.
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn, með upplýsingum
um menntun og fyrri störf, með tölvupósti til: oskar@dogun.is
og/eða olafur@reyktal.is.
Nánari upplýsingar veitir Óskar Garðarsson í síma 892-1586.
Dögun ehf. var stofnað árið 1983. Fyrirtækið stundar
rækjuvinnslu og útgerð, og er með aðsetur á Sauðárkróki.
Forstöðumaður á
búsetusviði Akureyrarbæjar
A k u r e y r a r b æ r • G e i s l a g a t a 9 • S í m i 4 6 0 1 0 0 0 • a k u r e y r i . i s
Búsetusvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða forstöðumann
í fullt starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf frá og
með 15. ágúst eða eftir nánara samkomulagi.
Næsti yfirmaður er sviðsstjóri búsetusviðs Akureyrar.
Auglýst er eftir kraftmiklum stjórnanda til að reka búsetu-
þjónustu fyrir fólk með verulegar fatlanir.
Búsetusvið Akureyrarbæjar sér um að veita fólki fjölbreytta
þjónustu sem miðar að því að styðja við sjálfstæða búsetu
þess og skapa því aðstæður til að lifa sem eðlilegustu lífi
á heimili sínu sem og utan, þrátt fyrir skerðingu á færni og
breytingum á högum sem kunna að vera samfara hækkandi
aldri, fötlun eða veikindum.
Búsetusvið vinnur eftir hugmyndafræði valdeflingar og
þjónandi leiðsagnar. Ætlast er til þess að forstöðumaður
tileinki sér og hafi forystu um kennslu og eftirfylgd með þeim
hugmyndafræðum sem búsetusvið vinnur eftir á hverjum
tíma.
Helstu verkefni:
• Stjórnun, áætlanagerð, rekstur og samhæfing.
• Ber ábyrgð á þjónustueiningum, innra starfi, starfsmanna-
málum og samskiptum við aðstandendur og samstarfs-
aðila.
• Ber ábyrgð á starfs-, þjónustu- og rekstraráætlunum
eininganna og veitir leiðsögn og ráðgjöf til þjónustunot-
enda og starfsmanna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Umsækjandi þarf að hafa lokið BA námi í þroskaþjálfa-
fræðum eða hafa háskólapróf á sviði félags-, heilbrigðis-
eða menntavísinda
• Reynsla og þekking í faglegri og rekstrarlegri stjórnun,
áætlanagerð, rekstri, starfsmannahaldi og daglegri
stjórnun er æskileg.
• Viðkomandi þarf að hafa góða vitund fyrir sjálfum sér,
ríka ábyrgðartilfinningu,
• Vera tilbúinn til að tileinka sér nýjar hugmyndir og hafa
metnað í starfi.
• Krafist er að minnsta kosti tveggja ára reynslu af starfi
með fólki með þroskahömlun og krefjandi hegðun.
• Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor
og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans
samrýmist starfinu.
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu
Akureyrarbæjar, www.akureyri.is þar sem sótt er um rafrænt.
Umsóknarfrestur er til og með 2. júní 2019
Félagsmálaráðuneytið auglýsir
til umsóknar þrjár lausar stöður
Stöðurnar sem um ræðir eru staða sérfræðings á skrifstofu barna- og
fjölskyldumála, lögfræðings á skrifstofu húsnæðis- og lífeyrismála og
lögfræðings á skrifstofu vinnumarkaðar og starfsendurhæfingar.
Hlutverk skrifstofanna er að undirbyggja stefnumarkandi ákvarðanir
ráðherra og hafa heildarsýn yfir þau verkefni sem skrifstofunum er
falið.
Um er að ræða mjög áhugaverð og fjölbreytt störf í krefjandi
starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði.
Starf sérfræðings hjá skrifstofu barna- og fjölskyldumála
í félagsmálaráðuneytinu.
Félagsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings í
100% stöðu á skrifstofu barna- og fjölskyldumála. Skrifstofan fer meðal
annars með málefni félagsþjónustu og barnaverndar, málefni fatlaðra,
aldraðra og flóttamanna.
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga og reynslu af málefnum
barna og félagsþjónustu og er tilbúinn að takast á við krefjandi,
áhugaverð og fjölbreytt verkefni þar sem reynir á öguð vinnubrögð,
ábyrgð og sjálfstæði.
Starf lögfræðings á skrifstofu húsnæðis- og lífeyrismála.
Félagsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf lögfræðings á
skrifstofu húsnæðis- og lífeyrismála.
Leitað er að einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við krefjandi,
áhugaverð og fjölbreytt verkefni á sviði húsnæðis- og mannvirkjamála
þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði.
Helstu verkefni tengjast löggjöf um mannvirki og byggingarmál,
húsnæðismál, húsnæðisbætur, sérstakan húsnæðisstuðning
sveitarfélaga, almennar íbúðir, félagslegt íbúðarhúsnæði, stuðning
við íbúðarkaup, húsaleigumál, frístundabyggð, fjöleignarhús,
húsnæðissjálfseignarstofnanir, húsnæðissamvinnufélög og
byggingarsamvinnufélög. Starfið felst meðal annars í stefnumótun,
gerð lagafrumvarpa og reglugerða, þátttöku í nefndarstörfum,
verkefnisstjórn, svörun erinda, skýrslugerð, samráði og samstarfi
við önnur ráðuneyti, stofnanir, Alþingi, sveitarfélög, samtök aðila
vinnumarkaðarins og aðra hagsmunaaðila á sviði húsnæðis- og
mannvirkjamála.
Starf lögfræðings á skrifstofu vinnumarkaðar og
starfsendurhæfingar.
Félagsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf lögfræðings
á skrifstofu vinnumarkaðar og starfsendurhæfingar. Meginhlutverk
skrifstofunnar er að taka þátt í mótun stefnu stjórnvalda á málefnasviði
skrifstofunnar. Enn fremur er skrifstofunni ætlað að hafa yfirsýn yfir
framkvæmd stefnu stjórnvalda og fylgja henni eftir, meðal annars með
gerð lagafrumvarpa, þingsályktunartillagna og reglugerða sem og með
þátttöku í nefndarstörfum innanlands og erlendis. Lögð er áhersla
á gott samráð og samstarf við stofnanir sem starfa á málefnasviði
skrifstofunnar, svo sem Vinnumálastofnun og Vinnueftirlit ríkisins, sem
og Alþingi og ýmsa hagsmunaaðila.
Leitað er eftir einstaklingi sem er reiðubúinn að takast á við
krefjandi, áhugaverð og fjölbreytt verkefni á sviði vinnumarkaðar og
starfsendurhæfingar þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og
sjálfstæði í starfi. Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni tengjast löggjöf á málefnasviði skrifstofunnar,
svo sem um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum,
atvinnuleysistryggingar, vinnumarkaðsaðgerðir, atvinnuréttindi
útlendinga, Ábyrgðasjóð launa og fæðingar- og foreldraorlof.
Félagsmálaráðuneytið, 17. maí 2019
Umsóknarfrestur er til 3. júní 2019.
Æskilegt er að umsækjendur geti
hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um störfin
má finna á starfatorgi
Stjórnarráðsins, www.starfatorg.is