Fréttablaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 46
1
1
4
4
2
2
5
5
3
3
6
6
7
7
A A
B B
C C
D D
E
E
E
E
Sérfræðingur á
fjármálasviði
Helstu verkefni:
• Áætlanagerð og greiningarvinna
• Afstemmingar, uppgjör og almenn bókhaldsstörf
• Verkbókhald og frávikagreining
• Reikningagerð og innheimta
• Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði
Hæfnikröfur:
• Háskólamenntun á sviði viðskiptafræði með áherslu á
fjármál eða sambærilegt
• Reynsla og þekking á bókhaldi, uppgjörsvinnu og rekstri
• Mjög góð Excel kunnátta
• Þekking og reynsla af Navision
• Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
• Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Umsóknarfrestur er til og með 29. maí.
Sótt er um starfi ð á heimasíðu Mannvits, www.mannvit.is.
Nánari upplýsingar veitir Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri í
síma 422 3401 og netfangi hildur@mannvit.is.
Mannvit óskar eftir að ráða öfl ugan sérfræðing á fjármálasvið. Um er að ræða fjölbreytt starf sem snýr að áætlanagerð,
greiningarvinnu og almennum bókhaldsstörfum.
Mannvit veitir ráðgjöf og þjónustu á sviði verkfræði, tækni og
nýsköpunar. Hjá okkur starfar öfl ugur hópur verkfræðinga og
tæknimenntaðs starfsfólks með fjölbreytta reynslu. Sérþekking
okkar liggur í verkfræði, jarðvísindum, umhverfi smálum,
verkefnastjórnun og heildarumsjón verkefna. Mannvit er
metnaðarfullur og skemmtilegur vinnustaður þar sem
starfsfólki líður vel og hefur tækifæri til að móta framtíðina.
2019 - 2022
Lögmaður
Borgarlögmaður
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum
og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Starf lögmanns hjá embætti borgarlögmanns er laust til umsóknar.
Í boði er krefjandi og fjölbreytt starf í starfsumhverfi þar sem reynir á góða alhliða þekkingu á flestum réttarsviðum
lögfræðinnar. Áhersla er lögð á símenntun og miðlun þekkingar milli starfsfólks. Embætti borgarlögmanns er með
aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur og þar eru stöðugildi átta lögmanna auk skrifstofustjóra.
Um er að ræða fullt starf og greiðast laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Stéttarfélags lögfræðinga.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ebba Schram borgarlögmaður í síma 411 4100 eða í gegnum netfangið
ebba.schram@reykjavik.is.
Umsóknarfrestur er til 5. júní nk.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi
til að gegna starfinu. Umsóknum skal skila rafrænt á vefsíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Embættispróf eða meistarapróf í lögfræði
• Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi
• Reynsla af málflutningi æskileg
• Þekking á stjórnsýslurétti er kostur
• Þekking á opinberum innkaupum og/eða útboðs- og
verktakarétti er kostur
• Góð færni til framsetningar máls í ræðu og riti
• Skipuleg og fagleg vinnubrögð
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Lipurð og færni í samskiptum
Helstu verkefni:
• Lögfræðilegar álitsgerðir og ráðgjöf til borgarstjórnar,
borgarráðs, borgarstjóra, stofnana og fyrirtækja
Reykjavíkurborgar
• Undirbúningur dómsmála og málflutningur
• Meðferð stjórnsýslumála
• Samningagerð
• Fyrirsvar vegna skaðabótakrafna sem beint er gegn
Reykjavíkurborg
• Uppgjör slysabóta á grundvelli kjarasamninga
kopavogur.is
Laus störf
hjá Kópavogsbæ
Kynntu þér fjölbreytt og spennandi störf
á heimasíðu okkar www.kopavogur.is
Hjá leikskólum Kópavogs er óskað eftir deildar-
stjórum, leikskólakennurum, sérkennara og
þroskaþjálfa.
Í grunnskólum Kópavogs er óskað eftir húsverði,
námsráðgjafa, heimilisfræðikennara, umsjónar-
kennara á miðstig, sérkennara, dönskukennara,
umsjónarkennara á yngsta stig, stuðningsfull-
trúa og skólariturum.
Á velferðarsviði er óskað eftir ráðgjafa í málefnum
fatlaðs fólks, sjúkraþjálfara, sjúkraliða og félags-
liða í Roðasali og starfsmönnum í íbúðakjarna.
Á bæjarskrifstofum Kópavogs er óskað eftir
leikskólaráðgjafa
Einnig eru laus störf frístundaleiðbeinenda í
félagsmiðstöðvunum Fönix og Igló.
2 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 8 . M A Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R