Fréttablaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 96
Þar sem Konráð og
Lísaloppa voru á gangi
í kjarrlendi sáu þau
eitthvert lítið dýr skjótast
um í kjarrinu. „Hvað var
þetta?“ spurði Konráð.
Þá sáu þau dýrið hoppa
grein af grein og að þetta
var pínulítill fugl með
skemmtilega uppsperrt
stél. „Þetta er örugglega
einn minnsti fugl sem ég
hef séð,“ sagði Lísaloppa.
„Já, hann er mjög lítill,“
sagði Konráð og bætti
við: „Hvað skyldi hann
heita?“
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
353
Gæti
þetta verið rauðbrystingur, maríuerla eða músarrindill?
?
?
?
Lausn á gátunni
Þessi fugl heitir músarrindill?
Hans er þrettán ára, alveg að verða
fjórtán og er nýlega fermdur. Hann
fékk smiðsgen í vöggugjöf enda er
hann völundur á tré.
Hans, manstu hvenær þú byrjaðir
að smíða? Ég byrjaði um tveggja
ára aldurinn eitthvað að reyna að
hjálpa til og þannig.
Ertu helst með föður þínum
að smíða? Ég var mikið með afa
mínum einu sinni, Hans Indriða-
syni, og hann leiddi mig áfram í
smíðunum. En ég er aðallega einn
núorðið.
Áttu mörg smíðatól? Já, fullt. Bíl-
skúrinn er hálffullur af verkfærum
frá mér. Ég er mjög oft úti í skúr að
dunda.
Hvar nærðu þér í efni? Ég fer bara
í Húsasmiðjuna og Byko og slíkar
búðir.
Hvað ertu aðallega að smíða? Það
er alls konar. Borð og blómastandar,
meðal annars og svo saga ég mikið
út með sérstakri útskurðarsög, hef
gert fullt af jólaskrauti, klukkum og
fleiru. Svo er til kofi eftir mig líka.
Hvert er uppáhaldsverkfærið
þitt? Bútsög. Það er vélsög, frekar
stór og það er hægt að stilla gráð-
urnar í henni, saga 90 gráðu horn
og 45 gráðu og alls konar svoleiðis.
Hún er mjög hentug þegar maður
gerir grindverk og palla.
Kaupir þú þér verkfæri sjálfur?
Já, svo hef ég fengið fullt af þeim
sem gjafir, afi hefur gefið mér ýmis-
legt og ég á líka gömul verkfæri frá
langafa mínum sem var húsgagna-
smiður og rak trésmíðaverkstæði.
Hann hét Indriði Níelsson.
Fékkstu eitthvað sniðugt í ferm-
ingargjöf sem fellur að þessu
áhugamáli þínu? Já, ég fékk verk-
færi og ætla að kaupa mér eitt verk-
færi með fermingarpeningunum
mínum. Það er bútsög. Ég er bara
með eina í láni núna frá frænda
mínum, bróður afa, sem er mjög
handlaginn, og nú ætla ég bara að
kaupa hana – eða nýja, ég er ekki
alveg búinn að ákveða það.
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
Ég er að fara í unglingavinnuna og
svo er ég að fara að smíða grindverk
fyrir foreldra kærasta systur minn-
ar og halda áfram að selja hluti sem
ég hef smíðað.
Þú hyggst náttúrlega leggja fyrir
þig smíðar í framtíðinni? Já, ég
ætla að verða húsgagnasmiður.
Á gömul
verkfæri frá
langafa
Hans Haraldsson er ekki í vafa um hvað
hann vill verða þegar hann verður stór.
Ég er mjög oft úti í skúr að dunda, segir Hans Haraldsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það er ekki á hverjum degi sem við
fáum myndir af fallegum smíðis-
gripum eftir börn en hér er borð
og blómastandur eftir hann Hans
sem er í viðtalinu hér við hliðina.
Smíðisgripir
1 8 . M A Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R46 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR