Fréttablaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 114
Lífið í
vikunni
12.05.19-
18.05.19
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Vandaður, stillanlegur botn
sem fullkomnar slökun þína á
meðan þú sefur.
Á þráðlausri fjarstýringu getur þú
fest þína bestu stellingu í minni.
Botninn er knúinn tveimur
hljóðlátum nuddmótorum sem
gefa þér hámarks hvíld um leið
og nuddbylgjurnar örva blóð flæði
líkamans.
Botninn dregst að vegg þegar
honum er lyft svo höfuðsvæði
helst á sama stað.
Á fjarstýringu er hnappur sem
nefnist Gravity Zero (þyngdarleysi),
en hann kemur rúminu í stellingu
sem tryggir líkamanum lágmarks
áreynslu.
Vinsæl stilling á fjarstýringu kemur
þér í þá stellingu sem reynst hefur
hjálpa hvað mest í baráttu við
kæfisvefn og hrotur.
Enda- og hliðastopparar sjá til
þessa að dýnurnar hreyfast
sem minnst. USB tengi er á hlið
botnsins.
Aðeins 214.835 kr.
Perfect T með Infinity heilsudýnu. Stærð: 90 x 210 cm. Fullt verð: 286.900 kr.
HLIÐARSTOPPARAR ENDASTOPPARAR USB-TENGI ÞRÁÐLAUS
FJARSTÝRING
35%
AFSLÁTTUR AF DÝNU
OG 20% AF
BOTNI
DORMA
SUMARTILBOÐ
Sumartilboð
í verslunum Dorma
Afgreiðslutími Rvk
Mánud. til föstud. kl. 11.00–18.30
Laugard. kl. 11.00–17.00
Sunnud. kl. 13.00–17.00 (Smáratorgi)
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
OP
IÐ
Á
SU
NN
UD
ÖG
UM
Í
DO
RM
A
SM
ÁR
AT
OR
GI
Perfect T
stillanlegt heilsurúm með Infinity heilsudýnu
HATRIÐ SIGRAÐI Á RAUÐA
DREGLINUM
Meðlimir Hatara voru stuttorðir
þegar þeir gengu rauða dregilinn
í Tel Avív fyrir viku. Þeir voru
klæddir íslenskri hönnun og
slógust fjölmiðlar um að ná tali af
meðlimum sveitarinnar. Klemens
sagðist ekki vanur hitanum og reif
því jakkann sinn í tvennt.
BESTU BARÞJÓNAR
LANDSINS
Færustu bar-
þjónar lands-
ins tókust á
um titilinn
barþjónn Ís-
lands á Kjar-
valsstöðum
síðastliðið
miðvikudags-
kvöld. Fjórir kepptu um titilinn en
þeim var gert að reiða fram átta
kokteila á jafn mörgum mínútum.
Sigmundur Þorsteinsson, bar-
þjónn á Sushi Social, fór með sigur
af hólmi.
ALBERT HALLDÓRSSON
LEIKUR 35 PERSÓNUR
Leikarinn Albert
Halldórsson
sýndi einleikinn
Istan í Frum-
leikhúsinu í
Reykjanesbæ í
gærkvöldi. Al-
bert er frá Kefla-
vík og langaði
mikið að sýna
verkið, sem
er eftir Pálma
Frey Hauksson,
í sínum heimabæ. Í verkinu fer
hann með hlutverk 35 persóna.
Á MÓTI SÓL OG GRL PWR Á
ÞJÓÐHÁTÍÐ
Kempurnar í
á móti stól og
stúlknasveitin
GRL PWR
verða meðal
þeirra sem
koma fram
á Þjóðhátíð í
Eyjum í ágúst.
Jón Gunn-
ar Geirdal,
kynningarfulltrúi hátíðarinnar,
segir miðasöluna fara vel á stað
og strax sé orðið uppselt í vin-
sælustu ferðirnar með Herjólfi.
Óli Hjörtur Ólason ætti að vera einhverjum k u n nu r end a va r hann af sumum kall-aðu r skem mt a na-
kóngur Reykjavíkurborgar á sínum
tíma. Hann hefur komið að opnun
tveggja vinsælla bara, starfaði um
árabil í blaðamennsku og var með
útvarpsþátt ásamt plötusnúðnum
Natalie, eða Dj Yamaho eins og hún
er einnig kölluð.
„Það er smá skemmtileg tilviljun
á tímasetningu viðtalsins. Kemur út
á Eurovision-deginum sjálfum og ég
einmitt framleiddi ásamt fleira góðu
fólkið myndbandið hennar Heru
Bjarkar á sínum tíma,“ segir Óli
hlæjandi.
Hann lagði einnig stund á nám
í Kvikmyndaskólanum, bæði við
leikstjórn og framleiðslu. Nú hyggst
hann gera heimildarmynd um
listamanninn Glenn Sandoval, en
myndin hefur fengið starfsheitið „A
very extraordinary story of an ave-
rage man“.
„Snemma á þessu ári kynntist ég
Glenn í gegnum samskiptaforritið
Instagram. Ég varð fyrir miklum
innblæstri af verkum hans og því
sem hann var að skapa. Þannig að
ég ákvað að senda honum skilaboð.
Í kjölfarið byrjuðum við að tala
saman og við urðum góðir vinir,“
segir Óli um fyrstu kynni sín af
Glenn.
Óla fannst alveg magnað hve fljótt
þeir mynduðu sterk tengsl. Þeir hafi
deilt ótrúlegustu hlutum með hvor
öðrum, án þess að hafa nokkurn
tímann hist.
„Hægt og rólega fór hann að
treysta mér fyrir ýmsu og ég honum.
Ég áttaði mig á að það er ótrúlega
merkileg og áhugaverð saga á bak
við þennan mann og það hefur
vafalaust mótað hann mikið og gert
að þeim listamanni sem hann er
í dag. Hann þráir ekkert heitar en
að geta lifað á listinni og slá í gegn.
Mér finnst þessi óbilandi trú líka
heillandi, að gefast ekki upp og að
trúa á eigin sköpun.“
Sandoval býr í Los Angeles en
er af mexíkóskum ættum. Hann
langar mikið að f lytja annað.
Hann er 33 ára gamall og býr enn
í foreldrahúsum í heimaborginni,
enda hefur þrjóskan við að lifa og
hrærast í listinni aftrað honum í að
sjá fyrir sjálfum sér.
„Eða ég hélt það væri málið. En
síðan áttaði ég á mig hvað baksaga
hans hefur haft mikil áhrif. Það er
eitt að vera bara þrjóskur og neita
að horfast í augu við að maður sé
ekki þessi stórfenglegi listamaður
sem maður hélt að maður væri.
Allir þurfa einhvern tímann að full-
orðnast. Hann upplýsti mig þó þegar
á leið að hrikalegir atburðir úr hans
fortíð hefðu haft svona sterk mót-
andi á hrif á hann,“ segir Óli.
Óli hefur starfað við framleiðslu,
leikstjórn og f leiri hliðar kvik-
myndagerðar. Hann hefur lengi
leitað að viðfangsefni fyrir heim-
ildarmynd og honum leið eins og
það væri engin tilviljun að hann
hefði kynnst Glenn.
„Mig var búið að dreyma lengi um
að finna hið fullkomna umfjöllunar-
efni. Saga hans er alveg ótrúleg og
höfðar til svo ótrúlega margra. Það
er eitthvað svo mannlegt og tært
við hann. Mér leið eins og það væri
ætlun örlaganna að við kynntumst á
þennan furðulega máta, að mér væri
ætlað að segja hans sögu.“
Óli segir myndina líka munu
snerta á kynþáttafordómum og
hvernig það sé að vera mexíkóskur
sonur innflytjenda í Bandaríkjum
nútímans.
„Ég er að vinna myndina nánast
einn. Sé um upptökur, framleiðslu og
leikstjórn. Það er mikil áskorun þótt
ég hafi starfað áður við kvikmynda-
gerð. Stefnan er tekin á að fara til
Los Angeles í byrjun september og
vera í tökum í nokkrar vikur. Undir-
búningsvinnan hefur staðið yfir
í nokkra mánuði, sem hefur bæði
verið skemmtilegt og krefjandi.“
Óli Hjörtur stendur nú fyrir hóp-
fjármögnun vegna myndarinnar.
Þeir sem vilja leggja Óla Hirti lið er
bent á að finna verkefnið á karolina-
fund.is.
„Þar hefur fólk möguleika á að
eignast upprunaleg verk eftir Sand-
oval með því að styrkja gerð mynd-
arinnar. Þar er líka hægt að fræðast
nánar um hann, mig og verkefnið í
heild,“ segir Óli Hjörtur að lokum.
steingerdur@frettabladid
Óvenjuleg saga af
venjulegum manni
Óli Hjörtur stendur að söfnun fyrir gerð heimildarmyndar um
listamanninn Glenn Sandoval. Verk og ótrúleg saga Glenn urðu
Óla að innblæstri. Hægt að leggja Óla lið á síðunni Karolina Fund.
Óli Hjörtur segir sögu Glenns alveg ótrúlega og hlakkar mikið til að festa hana á filmu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1 8 . M A Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R64 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð