Fréttablaðið - 05.01.2013, Side 6

Fréttablaðið - 05.01.2013, Side 6
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6 EFNAHAGSMÁL Fyrstu ellefu mánuði síðasta árs voru 1.605 einkahlutafélög nýskráð en fjöldi gjaldþrota nam 977. Fram kemur á vef Hagstofu Íslands að frá fyrra ári hafi nýskráningum fyrstu ellefu mánuði nýlið- ins árs fjölgað um tæplega þrjú prósent, en gjaldþrotum fækkað um rúmlega 32 pró- sent. Hagstofan birti í gær tölur um skráningu einkahlutafélaga og gjaldþrotaskipti í nóv- embermánuði síðastliðnum. „Í nóvembermánuði voru skráð 132 ný einkahlutafélög, flest í fasteignaviðskiptum og í fjármála- og vátryggingastarfsemi. Til samanburðar voru 165 ný einkahlutafélög skráð í nóvember í fyrra,“ segir í umfjöllun Hagstofunnar. Fyrstu ellefu mánuði ársins 2011 voru nýskráð 1.563 fyrirtæki, miðað við 1.605 á sama tíma á síðasta ári. „Þá voru 66 fyrirtæki tekin til gjaldþrota- skipta í nóvembermánuði, flest í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum.“ Gjaldþrot fyrstu ellefu mán- uði ársins fóru úr 1.441 árið 2011 í 977 árið 2012. Að því er fram kemur á vef Hagstof- unnar eru flest gjaldþrot sem fram eru komin á árinu 2012 í flokknum byggingar- starfsemi og mannvirkjagerð, 198 talsins. Fjöldinn nemur rúmum 20 prósentum allra gjaldþrota tímabilsins. - óká Fyrstu ellefu mánuði síðasta árs voru hér nýskráð 1.605 einkahlutafélög: 32 prósenta fækkun gjaldþrota BYGGINGARVINNA Fyrirtæki í byggingariðnaði fóru helst á hausinn í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 198 Fyrstu ellefu mánuði ársins 2012 hafa 198 fyrirtæki á sviði bygg ingar starf- semi og mann- virkja gerðar orðið gjald- þrota, eða fi mmtungur allra gjald þrota tímabilsins. VENESÚELA, AP Hugo Chavez, for- seti Venesúela, fær nú meðferð við „andnauð“ sem er fylgifisk- ur alvarlegrar lungnasýkingar, að því er fram kemur í yfirlýsingu stjórnvalda í Venesúela. Sýking- in kom upp eftir skurðaðgerð sem Chaves undirgekkst á sjúkrahúsi á Kúbu vegna krabbameins sem hann berst við í mjöðm. Forsetinn er 58 ára gamall. Chavez hefur ekki komið fram opinberlega, eða frá honum heyrst, síðan hann gekkst undir aðgerðina á Kúbu 11. desember síðastliðinn. Aðgerðin er sú fjórða sem hann fer í á Kúbu í krabbameinsmeðferð sinni frá því í júní 2011. Þá hefur hann einnig gengist undir lyfja- og geislameðferð. Yfirlýsing stjórnvalda rennir stoðum undir vangaveltur um að ekki verði hægt að sverja hann á ný inn í embætti forseta Venesúela eftir tæpa viku, tíunda janúar, líkt og til stóð. „Chavez þarf að fást við eftirköst alvarlegrar sýkingar í öndunar- færum. Sýkingin hefur leitt til and- nauðar sem leiðir af sér að Chavez forseti verður að fylgja nákvæm- lega eftir því sem sagt er fyrir um í læknismeðferð hans,“ sagði Ernesto Villegas, upplýsingaráðherra Vene- súela, í yfirlýsingu í sjónvarpi á fimmtudagskvöld. Leiddar hafa verið að því líkur út frá yfirlýsingu stjórnvalda að Cha- vez sé haldið í öndunarvél. Nánari upplýsingar var hins vegar ekki að finna í yfirlýsingu stjórnvalda, hvorki um heilsu Chavez, né með- ferðina sem hann undirgengst. Þó svo að ekki sé hægt að útiloka að Chavez sé svo illa haldinn, þá eru læknar sem fréttastofa AP hefur leitað til sammála um að óvarlegt sé að draga of víðtækar ályktanir út frá svo litlum upplýsingum. „Hann gæti verið í öndunarvél. Og hann gæti ekki verið í henni. Fólk getur fengið alvarlega öndunar- færaörðugleika án þess að þurfa að vera í öndunarvél,“ segir Michael Pishvaian, krabbameinslæknir við Lombardi-krabbameinsmiðstöðina við Georgetown-háskóla í Washing- ton í Bandaríkjunum. Stjórnvöld í Venesúela segjast hins vegar hafa fulla trú á heil- brigðisstarfsfólkinu sem annast Chavez og fordæma það sem þau nefna „leiðangur sálfræðihernaðar“ í alþjóðafjölmiðlum um ástand for- setans. Íbúar Venesúela eru hvattir til að gefa flökkusögum um heilsu- far forseta landsins ekki gaum. olikr@frettabladid.is Hugo Chavez berst við lungnasýkingu Sýking í lunga eftir skurðaðgerð á Kúbu ógnar bata Hugo Chavez, forseta Vene- súela. Sýkingin kom upp eftir fjórðu skurðaðgerðina sem gerð var á Chavez á Kúbu vegna krabbameins sem hann berst við. Sverja á hann í embætti á ný eftir viku. Í CARACAS Maður á biðstöð í Caracas í Venesúela undir veggspjöldum af Hugo Chavez, forseta landsins. Fregnir af heilsu forsetans hafa ýtt undir vangaveltur um að hann verði ekki svarinn aftur í embætti forseta 10. janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SMÁRALINDwww.hollandandbarrett.is STJÓRNMÁL Ríkisútvarpið sagði í gær- kvöld að til fordæmalausra orðaskipta hefði komið á ríkisráðsfundi á gamlárs- dag eftir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti lagði þar fram bókun um stjórn- arskrármálið. Fullyrti RÚV að engar heimildir væru um að áður hafi komið til orðaskipta í ríkisráði. Í tillögum um breytta stjórn- arskrá væri lagt til að ríkisráð yrði lagt niður. Bent var á að forsetinn hefði sagt í ávarpi á nýársdag að þá hyrfi vett- vangur fyrir samráð þjóðhöfðingja og ríkisstjórnar. „Ég var ekki óánægður með það sem þar kom fram og fannst þar margt af skýrleika mælt. Á þessum fundi fór ekk- ert óeðlilegt fram sem ekki var full- komlega í samræmi við leikreglur lýð- ræðisins,“ segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra spurður hvort þeir sem sátu ríkisráðsfundinn hafi verið óánægðir með það sem þar gerðist. „Ég tel að fundargerðir ríkisráðs eigi ekki að vera leyndarmál. Sú stofnun er þess eðlis, og sömuleiðis það sem þar fer fram, að það er engin þörf á því að hafa ekki fullkominn tærleika yfir fundar- gerðum hennar,“ bætir Össur við. Hvorki náðist í Jóhönnu Sigurðardótt- ur forsætisráðherra né Steingrím J. Sig- fússon atvinnuvegaráðherra í gærkvöld til að fá þeirra sjónarmið. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, segir í grein í Fréttablaðinu í dag að „íhlutun“ forsetans á ríkisráðsfundinum hafi verið „formbundin stjórnskipuleg athöfn en ekki orðagjálfur í ræðu“. Rík- isráðið sé réttur vettvangur fyrir forset- ann í þessum efnum. „Rétt er að gera þá kröfu til forsæt- isráðherra að hann bregðist við íhlutun forsetans með málefnalegum sjónarmið- um í ríkisráðinu,“ skrifar Þorsteinn. - gar / sjá síðu 12 Forsetinn tók stjórnarskrármálið upp í ríkisráði og fyrrverandi forsætisráðherra kallar eftir viðbrögðum: Forsætisráðherra bregðist við íhlutun forsetans NÝÁRSÁVARP Forseti Íslands sagðist í ríkis- ráði hafa hvatt „til samstöðu allra flokka“ í stjórnarskrármálinu. Á þessum fundi fór ekkert óeðlilegt fram sem ekki var fullkomlega í samræmi við leikreglur lýðræðisins. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.