Fréttablaðið - 05.01.2013, Síða 8

Fréttablaðið - 05.01.2013, Síða 8
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8 1.500 metra dýpi Olía Jarðlög Hafsbotn Móttakarar Bylgjusendir Drekasvæðið ORKUMÁL Orkustofnun gaf í gær út fyrstu tvö leyfin til rannsókna og vinnslu á Drekasvæðinu svokall- aða, suður af Jan Mayen. Þetta er í fyrsta sinn sem slík leyfi eru gefin út hér á landi, en norska ríkisolíu- félagið Petero er aðili að báðum verkefnunum. Rannsóknir taka nú við en það kemur að öllum líkindum ekki í ljós fyrr en eftir fimm til sex ár hvort olíu- eða gaslindir er að finna á svæðinu og rúmur áratug- ur er í að vinnsla hefjist, gangi allar áætlanir eftir. Þá munu hóp- arnir tveir hafa rétt til vinnslu, að uppfylltum ýmsum skilyrðum. „Alvörustimpill“ Guðni Jóhannesson orkumála- stjóri segir þessa leyfisúthlutun vera afar mikilvægt skref. „Þetta er afar mikilvægt því að þessi fyr- irtæki eru nú búin að skuldbinda sig til að halda áfram rannsókn- um og í gegnum þau munum við fá stóraukna þekkingu á svæðinu, fyrir utan þann möguleika sem við höfum auðvitað að þarna finnist sannarlega eitthvað.“ Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráð- herra tekur undir það að hér sé um ákveðin tímamót að ræða. „Það er sannarlega kominn meiri alvöru- stimpill á leit og rannsókn en áður. Þarna eru komnir sterkir aðilar sem ráða við verkefnið.“ Leyfin eru tímasett og er skýrt kveðið á um rannsóknarferlið. Hjá hópnum sem Valiant Petrol fer fyrir er leyfið til tíu ára. Fyrsta rannsóknartímabilið er til fjög- urra ára, þar sem farið verður yfir fyrirliggjandi gögn og nýjum gögnum um jarðlög safnað með endurkaststækni. Á öðru tímabili, frá 2017 til 2020, skal safna þrí- víddargögnum af jarðlögum og á síðasta tímabilinu er gert ráð fyrir tilraunaborunum. Hjá Faroe Petroleum-hópnum er leyfið til sjö ára. Fyrsta tímabilið er tvö ár þar sem farið skal yfir og endurmeta fyrirliggjandi gögn af svæðinu en á öðru tímabilinu, sem er einnig til tveggja ára, skal gera nýja endurvarpsrannsókn og safna gögnum af hafsbotni áður en tekið er til við rannsóknarboranir á árunum 2017 til 2020. Gunnlaugur Jónsson, stjórnar- formaður Kolefnis, sem fer fyrir fyrrnefnda hópnum, segist í sam- tali við Fréttablaðið fagna áfang- anum. Nú taki við rannsóknavinna sem útheimti talsverð fjárútlát. Hann giskar á að kostnaðurinn við fyrstu tvö stig rannsóknanna gæti verið á bilinu tíu til tuttugu millj- ónir Bandaríkjadala, en tilrauna- boranirnar gætu kostað um 200 milljónir dala. „Allt er þetta vissu- lega kostnaðarsamt en vinnsluleyf- ið er forsenda þess að leggja út fyrir slíkum rannsóknum.“ Þátttaka Noregs Aðkoma Norðmanna vekur athygli, en þetta er í fyrsta sinn sem þeir taka beinan þátt í verkefnum utan eigin landgrunns. Steingrímur segir það ekki síður marka tíma- mót. „Það að Norðmenn komi inn í þetta verkefni af krafti er mikill styrkur. Það bæði þéttir samstarf- ið milli Íslands og Noregs og eins fáum við aðgang að þeirra tækni og þekkingu og ekki síst hvað varðar umhverfismál, öryggi og annað slíkt.“ Steingrímur bætir við að Norðmenn séu að hefja sama ferli sín megin á Drekasvæð- inu og það gefi ákveðna öryggistil- finningu, til dæmis þegar komi að því að hefja vinnslu. Kristján Jóhannsson, stjórnar- formaður Íslensks kolvetnis, sem er með Faroe Petroleum, segir aðkomu Petoro hafa gefið verk- efninu meira vægi. „Það gladdi okkur mjög að Petoro ákvað að vera með og það sannfærði okkur um að við erum ekki með neinar ranghugmyndir um svæðið.“ Sterkari umhverfisviðmið Eitt stærsta atriðið varðandi olíu- eða gasvinnslu á norðurslóðum er umhverfisþátturinn og hætta á mengunarslysum. Steingrímur segir að áhættan sé ljós. „Þarna verður stigið varlega til jarðar og gerðar ýtrustu kröfur. Það sem miklu máli skiptir fyrir Ísland er að nota tímann vel á meðan rann- sóknir standa yfir í næstu fimm til sjö árin eða svo, að við búum okkur vel undir að takast á við næstu skref, hugsanlega hvort eigi að leyfa boranir.“ Orkumálastjóri segir brýnt að huga að umhverfismálum. Miðað verði við norskar reglur, sem hann segir þær ströngustu í heimi. „Hins vegar má taka fram að þrátt fyrir að svæðið sé norðan heim- skautsbaugs er það í Golfstraumn- um þannig að um tiltölulega hlýtt og ísfrítt svæði er að ræða. Þetta eru í sjálfu sér ekki erfiðari nátt- úrulegar aðstæður en til dæmis í Norðursjó eða Barentshafi.“ Vonir og væntingar Þótt miklar væntingar séu gerðar til Drekasvæðisins og hugsanlegr- ar olíuvinnslu þar og áhrifa sem slíkt gæti haft á íslenskt efnahags- líf eru enn mörg ár þar til ljóst verður hvort olía er þar og hvort hún verður í vinnanlegu magni. Kristján hjá Íslensku kolefni segir til dæmis margt enn á huldu þó að ýmislegt lofi góðu. „Þetta er verkefni til langs tíma þannig að þolinmæði er undirtónn- inn. Vonin er vissulega fyrir hendi en við vitum ekki hvernig fer.“ thorgils@frettabladid.is Drekaleyfin tvö talin marka skýr kaflaskil Orkustofnun gaf í gær út tvö leyfi til rannsókna og vinnslu á olíu og gasi á Dreka- svæðinu við Jan Mayen. Þetta eru fyrstu leyfin af þessari gerð og marka tímamót að mati atvinnuvegaráðherra. Norsk stjórnvöld taka þátt í verkefnunum. BERGMÁLSMÆLINGAR Rannsóknirnar á Drekasvæðinu munu meðal annars felast í kortlagningu á hafsbotni og jarðlögum þar undir með bergmálsmælingum. Rannsóknarskipin draga á eftir sér kapla með nemum sem taka við merkjum frá sendi. Þegar gróf mynd er komin af svæðinu er svo farið betur yfir líklegustu svæðin og þau skoðuð í þrívídd áður en tilraunaboranir hefjast. Styrkir til náms í hafrétti Hafréttarstofnun Íslands er rannsókna- og fræðslustofnun á sviði hafréttar við Háskóla Íslands og er meginmarkmið stofnunarinnar að treysta þekkingu á réttarreglum á sviði hafréttar. Að stofnuninni standa Háskóli Íslands, utanríkisráðuneytið og atvinnu- og nýsköpunar- ráðuneytið. Hafréttarstofnun auglýsir hér með eftirfarandi styrki til náms í hafrétti til umsóknar: 1. Styrk til framhaldsnáms í hafrétti á háskólaárinu 2013 - 2014. 2. Styrki til þátttöku í sumarnámskeiði Ródos-akademíunnar í hafrétti 30. júní - 19. júlí 2013. Umsóknir berist Hafréttarstofnun Íslands, utanríkisráðuneytinu, Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík fyrir 1. febrúar nk. Nánari upplýsingar veitir Tómas H. Heiðar, forstöðumaður stofnunarinnar, í síma 545 9900. Í vetur verður 12 spora námskeið í Háteigskirkju sem ber nafnið Andlegt ferðalag með vinum í bata. Námskeiðið hefst á tveimur kynningarfundum í safnaðar- heimili kirkjunnar miðvikudagana 9. janúar og 16. janúar og hefjast þeir báðir kl 19.30. Samverurnar verða svo vikulega í safnaðarheimili kirkjunnar á miðviku- dögum milli kl. 19.30 - 21.30. Saman göngum við öruggum skrefum í gegnum sporin tólf. Síðasta samveran verður 15. maí. Allir eru hjartanlega velkomnir og það er ekkert þátttökugjald. Nánari upplýsingar veittar á netfanginu hateigskirkja@hateigskirkja.is eða í síma 511 5400. Andlegt ferðalag í Háteigskirkju – 12 spora námskeið Lagersala Tilboð óskast í lítinn rafvörulager í heild sinni. Lagerinn verður til sýnis milli kl. 16.30 og 18, fimmtudaginn 8. janúar 2013 að Hafnarbraut 3, Hvammstanga. Tilboð skulu miðuð við staðgreiðslu auk vsk. Kaupandi sér um að pakka vörum og flytja af staðnum á eigin kostnað. Tilboð sendist rafrænt á póstfangið olafur.jonsson@landsbankinn.is fyrir kl. 12, mánudaginn 14. janúar 2013. BESTU BROTIN ÚR ÞÁTTUM BYLGJUNNAR FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP - oft á dag Annað sérleyfið fer til hóps sem er svo skipaður með eignarhlutfall í sviga: Ís- lenskt kolvetni (7,5%), Faroe Petroleum (67,5%) og Petoro Iceland (25%) sem er í eigu norska ríkisins. Rannsóknarsvæði er 2.704 ferkílómetrar að flatarmáli. Eigendur Íslensks kolvetnis eru Olís, verkfræðistofan Verkís og eignarhalds- félagið Dreki Holding, sem er í eigu Gísla Baldurs Garðarssonar, stjórnarfor- manns Olís. Um hitt leyfið eru félögin Kolvetni (18,75%), Valiant Petroleum (56,25%) og Petoro Iceland (25%). Rannsóknarsvæðið er 1.119 ferkílómetrar að flatarmáli. Eigendur Kolvetnis eru Jón Helgi Guðmundsson, aðaleigandi Byko, Gunn- laugur Jónsson, Norðmaðurinn Terje Hagevang og verkfræðistofan Mannvit. Hverir standa á bak við sérleyfin? TÍMAMÓT Steingrímur J. Sigfússon, Guðni Jóhannesson og Ola Borten Moe Olíu- málaráðherra Noregs. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Það er sannarlega kominn meiri alvöru- stimpill á leit og rannsókn en áður. Þarna eru komnir sterkir aðilar sem ráða við verkefnið. Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.