Fréttablaðið - 05.01.2013, Síða 10
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
KJARAMÁL Alþýðusamband Íslands
(ASÍ) og Samtök atvinnulífsins
(SA) hófu í gær viðræður um end-
urskoðun gildandi kjarasamn-
inga. Fulltrúar aðila vinnumark-
aðarins funduðu í höfuðstöðvum
ASÍ í Guðrúnartúni í gærmorgun
en ASÍ hefur sett fram kröfu um
hærri launahækkanir en gert er
ráð fyrir í samningunum.
Samkvæmt kjarasamningum
munu laun á vinnumarkaði hækka
um 3,25% um næstu mánaðamót.
Aðilar vinnumarkaðarins hafa hins
vegar hvorir um sig rétt á því að
krefjast endurskoðunar á samn-
ingnum en ákvörðun um slíkt þarf
að liggja fyrir í síðasta lagi 21.
janúar næstkomandi.
„Við vorum einfaldlega að ræða
þá stöðu sem upp er komin. For-
sendur kjarasamningsins hafa
ekki allar haldið,“ segir Vilhjálmur
Egilsson, framkvæmdastjóri ASÍ,
og bætir við: „Þessi forsendubrest-
ur bitnar á báðum og við erum nú
að ræða hvernig sé best að bregð-
ast við.“
Vilhjálmur segir að SA muni
ekki hafa frumkvæði að því að
opna kjarasamninginn en telji
jafnframt að fremur væri rétt að
lækka umsamdar launahækkanir
en að hækka þær. „Við teljum að
það sé best til lengri tíma að vinna
bug á verðbólgunni og þú gerir það
ekki með því að búa til meiri verð-
bólgu,“ segir Vilhjálmur.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir liggja fyrir að ASÍ hafi sett
fram kröfu um hærri launahækk-
anir þar sem verðbólga hafi reynst
hærri en forsendur kjarasamnings-
ins gerðu ráð fyrir. Hann vill hins
vegar ekki tjá sig um hvað fór fram
á fundinum í gær fyrr en að lokn-
um formannafundi ASÍ á mánudag.
Núgildandi kjarasamningur var
undirritaður í maí 2011. Byggði
hann á nokkrum forsendum sem
ekki hafa staðist en þannig var
gert ráð fyrir 2,5% verðbólgu nú
um áramótin og því að gengisvísi-
tala krónunnar væri 190 stig. Verð-
bólga mælist hins vegar 4,2% og þá
er gengisvísitalan rúm 231,5 stig. Í
samningum var einnig sú forsenda
að kaupmáttur hefði aukist á árinu
2012 og sú forsenda hefur staðist
þótt kaupmáttaraukningin hafi
orðið minni en vonast var eftir.
Seðlabanki Íslands hefur lýst
yfir áhyggjum af því að endurskoð-
un kjarasamninga myndi hafa í för
með sér meiri launahækkanir en
þegar hefur verið samið um. Telur
Seðlabankinn að frekari launa-
hækkanir myndi leiða út í verðlag
og hefur bankinn því lýst því yfir
að þörf gæti verið á vaxtahækkun-
um, verði laun hækkuð frekar.
magnusl@frettabladid.is
Ræddu endur-
skoðaðan
kjarasamning
Aðilar vinnumarkaðarins funduðu í gær um endur-
skoðun kjarasamninga. Gildandi samningar kveða á
um 3,25% hækkun í febrúar en forsendur hafa brostið.
FUNDURINN Í GÆR Fulltrúar aðila vinnumarkaðarins funduðu á skrifstofu ASÍ í
Guðrúnartúni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÞJÓÐGARÐAR Staðarval fyrir „nýja Valhöll“ á Þingvöllum er enn til
umræðu hjá Þingvallanefnd. Á fundi nefndarinnar í desember var
kynnt verkfræðileg úttekt sem tók til samgöngukerfis, veitukerfis,
jarðfræði, verndar vatnasviðs og fleira.
„Uppbygging við Hakið fellur best að þeim matsþáttum sem til
skoðunar voru. Næst væri það Gjábakki, svo Efri-Vellir og að lokum
Valhallarsvæðið,“ segir í fundargerð Þingvallanefndar sem undir-
strikar að mat verkfræðistofunnar byggist eingöngu á tæknilegum
forsendum. „Eftir er að skoða svæðin með tilliti til sjónrænna áhrifa,
notagildis og annarra þátta sem skoðaðir verða í framhaldi af þessari
úttekt.“ - gar
Tæknilegt mat verkfræðinga en eftir að vega sjónræn áhrif:
Hakið hentar nýrri Valhöll best
HÓTEL VALHÖLL Brann til kaldra kola í júlí 2009.