Fréttablaðið - 05.01.2013, Page 16
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 16
Það eru tíðindi þegar for-
ystukona Samfylkingar-
innar í Reykjavík telur
sig ekki hafa annað þarf-
ara að gera en að veitast
að Agnesi Sigurðardóttur,
biskupi Íslands, fyrir hug-
mynd hennar um að þjóð-
kirkjan beiti sér fyrir
landssöfnun í þágu tækja-
kaupa til Landspítalans.
Sigríður Ingibjörg Inga-
dóttir hefur verið áhrifa-
manneskja í fjárlaganefnd
á þessu kjörtímabili og
átt sinn þátt í ákvörðunum um
að hlunnfara þjóðkirkjuna árum
saman. Skýrsla sem unnin var
fyrir innanríkisráðherra sýnir
svo ekki verður um villst að þjóð-
kirkjunni, svo og öðrum trúfélög-
um í landinu, hefur verið gert
að taka á sig miklu meiri skerð-
ingar en stofnanir ráðuneytis-
ins á þrengingartímum. Þessar
umframskerðingar teljast í millj-
örðum króna á kjörtímabilinu.
Sjálfstætt trúfélag
Þjóðkirkjan er samkvæmt lögum
sjálfstætt trúfélag sem nýtur
sjálfræðis innan lögmæltra
marka. Fjárhagur hennar bygg-
ir á samningum við ríkisvaldið
vegna afraksturs af kirkjujörðum
og samkomulagi um innheimtu
sóknargjalda. Sigríður Ingibjörg
kýs að viðurkenna ekki þennan
grundvöll og kallar kirkjuna í
fjölmiðlum ríkisstofnun! Þetta
er af sama meiði og barátta fjár-
laganefndar á síðustu árum gegn
mörkuðum tekjustofnum. Það er
hægt að vera þeirrar skoðunar að
lögfestir samningar og mörkun
tekjustofna til ákveðinna verk-
efna séu börn síns tíma, og þurfi
endurskoðunar við. En það er hins
vegar ekki hægt að komast fram
hjá því að ákvarðanir þar um
eiga sér sína sögu, byggja á sam-
komulagi og samningum frá liðn-
um árum, sem lifandi fólk man og
skilur, enda þótt nýir þingmenn
vilji geta verið frjálsir af sögunni.
Ósvífni
Það er hægt að gera þá kröfu til
þingmanna að þeir þekki söguleg-
an bakgrunn málaflokka
sem þeir taka ákvarðan-
ir um þótt hann sé þeim
ekki að skapi. Þannig
er það ósvífni af Sigríði
Ingibjörgu að halda því
fram að kirkjan hafi sótt
fast á auknar fjárveit-
ingar. Hún hefur á hinn
bóginn farið þess auð-
mjúklega á leit að ríkið
skili einhverju af því
sem það hefur oftekið af
kirkjunni miðað við sann-
gjarna mælikvarða. Það
er líka óþarfi að tala um „meint-
an“ fjárskort þegar fyrir liggja
upplýsingar hjá stjórnvöldum
um hvernig ofurniðurskurðurinn
hefur bitnað á safnaðarstarfi. Og
gamalt trikk um að tefla fjárlaga-
liðum hverjum gegn öðrum ætti
að vera fyrir neðan virðingu odd-
vita í stjórnmálum.
Fjandskapur þingmannsins í
garð þjóðkirkjunnar er öllum ljós
þegar hér er komið sögu. Hann
er ekki í samhljómi við afstöðu
almennings í landinu eins og
vel kom fram í nýlegri atkvæða-
greiðslu meðal landsmanna um
stjórnarskrárákvæði. Það lýsir
líka mikilli vanþekkingu á kirkju-
starfi að tala um að „ríkisstofnun“
sem „þiggi fé frá ríkinu“ eigi helst
ekki að liðsinna annarri ríkis-
stofnun. Þarna talar valdsmaður-
inn niður til þúsunda virkra með-
lima í söfnuðum landsins, sem svo
sannarlega eru vanir því að taka
til hendinni í söfnunum. Um það
vitnar Hjálparstarf kirkjunnar
sem er ein virtasta hjálparstofn-
un landsins á erlendum sem inn-
lendum vettvangi. Það fer einn-
ig vaxandi að söfnuðir standi við
messuliðinn „kollektu“ og efni
til samskota til góðra málefna í
hverri guðsþjónustu. Þannig skila
samskot í þeim söfnuði sem ég til-
heyri nærri þremur milljónum
króna til hjálpar- og líknarstarfs
árlega.
Frjáls framlög
Frumkvæði Agnesar biskups er
því í góðum samhljómi við það
kirkjustarf sem fram fer í land-
inu. Það kemur fjárhagsmálum
kirkjunnar raunar ekkert við því
biskup er að hvetja til frjálsra
framlaga og beina styrk þjóð-
kirkjufólks sem virkra einstak-
linga um land allt að afmörk-
uðu og þörfu verkefni. Ástandið
í tækjamálum Landspítalans er
síður en svo eingöngu á ábyrgð
núverandi ríkisstjórnar en þörf-
in á úrbótum í þágu landsmanna
allra er almennt viðurkennd.
Auðvitað ættu þingmenn að
fagna þessu frumkvæði. Sérstak-
lega konur úr þeirra hópi því ekki
má gleyma að í hornstein gömlu
spítalabyggingarinnar, sem lagð-
ur var í júní 1926, er þetta greypt:
„Hús þetta – LANDSPÍTALINN –
var reistur fyrir fje, sem íslensk-
ar konur höfðu safnað og Alþingi
veitti á fjárlögum til þess að:
LÍKNA OG LÆKNA.“ Æ síðan
hafa konur verið í fararbroddi
þegar um hefur verið að ræða
framfarir í heilbrigðismálum og
nýja áfanga hjá Landspítalan-
um. Hingað til hefur ekki verið
kvartað yfir slíku liðsinni af hálfu
Alþingis. Án þess að ég viti það
er ekki ólíklegt að Agnes biskup
hafi haft þessa sögu í huga þegar
hún sem fyrsta konan á biskups-
stóli lætur að sér kveða með lofs-
verðu framtaki.
Biskup í góðum samhljómi
LANDSSÖFNUN
Einar Karl
Haraldsson
sjálfstætt starfandi
í almannatengslum
➜ Það er hægt að gera þá
kröfu til þingmanna að
þeir þekki sögulegan bak-
grunn málafl okka sem þeir
taka ákvarðanir um þótt
hann sé þeim ekki að skapi.
Þannig er það ósvífni af
Sigríði Ingi björgu að halda
því fram að kirkjan hafi
sótt fast á auknar fjárveit-
ingar. Hún hefur á hinn
bóginn farið þess auðmjúk-
lega á leit að ríkið skili
einhverju af því sem það
hefur oftekið af kirkjunni
miðað við sann gjarna
mælikvarða.
Skoðun visir.isKlipptu út
ávísunina og
m
æ
ttu á næ
sta sölustað
Ef þú kaupir fyrir 20.000 kr. þá færðu næstu 5.000 kr. frítt með því að framvísa þessari ávísun
5.000,-
Gildir áramótin 2012-2013 Alvöru Flugeldar
Elvis hefði fílað þessa!
REYKJAVÍK
KÓPAVOGUR
Suðurlandsbraut 48 ( bláu húsin við hliðina á Subway) Einar 899-6005
Stórhöfði v/Gullinbrú Rúnar 660-0565
Bæjarlind 16 (verslunin Persía) Jóhann & Ragnar 690-7424
Nýbílavegur 10 (við hliðina á gamla Toyota) Jóhann & Ragnar 690-7424
Lækjagata 2 (áður videoleiga) Emil 694-4150 & Guðni 618-0560HAFNARFJÖRÐUR
(við Eimskip)Vitinn, Oddeyrarbryggju 696 6042AKUREYRI
REYKJAVÍK
KÓPAVOGUR
Suðurlandsbraut 48 ( bláu húsin við hliðina á Subway) Einar 899-6005
Stórhöfði v/Gullinbrú Rúnar 660-0565
Nýbílavegur 10 (við hliðina á gamla Toyota) Jóhann & Ragnar 690-7424
(við Eimskip)Vitinn, Oddeyrarbryggju 696 6042AKUREYRI
OPIÐ Í DAG laugardag frá ..................................12-22
OPIÐ Á MORGUN Þrettánda n frá ......................12-20
RISAAFSL
ÁTTUR
Hefði ég ekki verið
með gleraugu hefði flug-
eldurinn farið inn í augn-
tóftina og hreinlega rifið
af mér höfuðið – ég hefði
aldrei lifað það af.“
Baldur Sigurðarson var heppinn að sleppa
með skaða á öðru auga þegar skotterta
sprakk framan í hann á gamlárskvöld.
„Það hefur lengi tíðkast
á Íslandi að frjáls félaga-
samtök safni miklu fé til
tækjakaupa fyrir sjúkrahús
og heilbrigðisstofnanir og
þau hafa kannski gert það
af meiri auðmýkt en kirkjan
og ekki básúnað um þessi
góðverk sín í áramóta-
spjalli.“
Þingkonan Sigríður Ingibjörg Ingadóttir var
ekki par sátt við að Þjóðkirkjan ætlaði að
standa fyrir söfnun fyrir Landspítalann.
„Frumvarpið að nýrri
stjórnarskrá […] býr líka til
allt annað stjórnkerfi en við
höfum búið að frá lýðveldis-
stofnun; yrði tilraun um
stjórnkerfi sem ætti sér
engan líka á Vesturlöndum.“
Ólafur Ragnar Grímsson forseti hvetur til
þess að tillögur að nýrri stjórnarskrá verði
endurskoðaðar rækilega.
ORÐ VIKUNNAR
30.12.2012 ➜ 04.01.2013
UMMÆLI VIKUNNAR
1.488
MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR
Ef amma væri að lesa
Sif Sigmarsdóttir pistlahöfundur.
695
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR
Eva Joly og afk væmið
Kristín Þorsteinsdóttir fv. fréttamaður.
304
LAUGARDAGUR 29. DESEMBER
Trúleysingjar í jólafríi
Jón Sigurður Eyjólfsson pistlahöfundur.
279
MÁNUDAGUR 31. DESEMBER
Gíslar á Uppsölum
Guðmundur Andri Thorsson pistlahöfundur.
273
MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR
Söfnun undir merki samkenndar
Ólafur Stephensen ritstjóri.
181
MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR
Tolkien sýnd nægileg virðing?
Gunnsteinn Ólafsson tónlistarmaður.
124
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR
Rökþrota prestur
Reimar Pétursson hæstaréttarlögmaður.