Fréttablaðið - 05.01.2013, Blaðsíða 18
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 18
Forsetinn tók það fram að orðan væri þakklætisvottur frá allri þjóð-inni og ég er mjög ánægð og hreyk-in, ég verð að segja það alveg eins og er,“ segir Eva Sigurbjörnsdóttir, hótelstjóri í Djúpavík á Ströndum,
um þá tilfinningu að taka við riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu úr hendi forset-
ans fyrir starf sitt. Síðan heldur hún áfram.
„Maðurinn minn, Ásbjörn Þorgilsson, á heið-
urinn náttúrlega með mér, fyrst og fremst.
Síðan börnin okkar og aðrir sem hafa tekið
þátt í þessu með okkur. Mér finnst þetta vera
viðurkenning til þeirra allra.“
Þurftu næstum að beita byssu
Eva og Ásbjörn eru einu íbúarnir í Djúpa-
vík að vetrinum en líflegra er á öðrum árs-
tímum því nokkrir eiga sumarhús í víkinni,
auk þess sem staðurinn heillar ferðalanga.
Hótel Djúpavík var opnað sumarið 1985 og
Eva segir það opið allt árið. „Ef fólk kemst til
okkar tökum við á móti því. En við verðum
alltaf að vara það við ef veðurspáin er vond
og um tvísýnu er að ræða því möguleikarnir
á að komast um svæðið eru svo takmark-
aðir þegar snjóar. Vegakerfið hjá okkur er
þannig.“
Snjór, ófærð og rafmagnsleysi hafa sett
svip sinn á daglegt líf í Árneshreppi undan-
farið, eins og stundum áður. Hvernig skyldi
Evu hafa gengið suður? „Við hjónin þurftum,
lá við, að setja byssu í bakið á vegagerðar-
mönnum til að ryðja fyrir okkur. Við feng-
um líka að heyra að ekki væri víst að þessi
eini snjómokstur sem okkur er skammtaður
fram á vormánuði yrði neitt á næstunni. Við
eigum því ekkert tryggt að komast heim í
bráð.“
Aðspurð segir Eva rafmagnið hafa farið
af í Djúpavík rétt eftir að þau hjón fóru
suður og verið úti í þrjá og hálfan sólarhring.
Hefur hún ekki áhyggjur af matnum í fryst-
inum? „Fyrst frystigeymslurnar voru ekkert
opnaðar ætti hann að hafa sloppið.“
Pússa og fægja starfsemina
Hótel Djúpavík var byggt á þriðja áratug
síðustu aldar. Þar eru átta tveggja manna
herbergi og matsalur. Eva og Ásbjörn hafa
bætt við gistirýmið með því að taka í notkun
annað hús sem þau áttu og byggja eitt í við-
bót. „Við höfum náttúrlega verið að pússa
og fægja starfsemina látlaust og Ásbjörn er
líka alltaf að taka gömlu síldarverksmiðjuna
í gegn. Þar eru ýmsar listsýningar og ljós-
myndasýningar settar upp og eins erum við
með fasta sýningu sem heitir Sögusýning
Djúpavíkur.“
Spurð hvort hún sjái um að elda og baka
ofan í gesti svarar Eva hógvær: „Ég geri það
vor og haust og auðvitað að vetrinum því þá
er ég ekki með neitt starfsfólk en á sumrin
koma börnin okkar tvö ásamt öðrum ætt-
ingjum. Systir mín eldar dálítið en ég fer
frekar í þjónustustörfin. Þetta er mikil sam-
vinna.“
Var leikskólastjóri í Kópavogi
Það er vonum seinna sem Eva er innt eftir
því hvaðan hún sé af landinu. „Ég er úr
Garðabæ en við Ásbjörn bjuggum í Kópa-
vogi áður en við fluttum á Strandirnar, ég
var í starfi sem nú kallast leikskólastjóri.“
Spurð hvort hún hafi fengist við kennslu
síðan svarar hún: „Já, aðeins. Ég kenndi tvo
vetur í Finnbogastaðaskóla, sem er skólinn
okkar, þegar börnin okkar voru yngri.
Einnig kenndi ég vetrarpart á Reykhólum
og vetrarpart á Hólmavík. En svo lengd-
ist skólaárið í báða enda, byrjar snemma
hausts og stendur fram í júní, og ég gat ekki
farið að skera af minni starfsemi til að sinna
kennslu, svo ég hef ekkert verið í henni
síðan veturinn 1999-2000.“
En finnst Evu ekki gaman að koma suður,
verandi af höfuðborgarsvæðinu? „Jú, auð-
vitað er gaman að koma suður. Við eigum
börnin okkar hérna, fimm barnabörn og
tvö skábarnabörn, þannig að það er góður
hópur. Svo á ég móður mína hér þannig að
ég nýt þess að koma hingað. Við sætum líka
lagi og förum í leikhús og bíó og stundum
pössum við barnabörnin svo að börnin okkar
geti farið í bíó. En það er alltaf best að vera
heima og það er Hótel Djúpavík, því hótelið
hefur alltaf verið heimili okkar.“
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Atli Fannar Bjarkason,
Bjartri framtíð
Afmæli og æfi ng
„Það er auðvitað alltof mikið
að gera eins og venjulega. En
ég ætla að reyna að komast
í afmæli hjá vini, drykk með
vinkonum og á körfubolta-
æfingu með snillingum.“
Daði Freyr Pétursson
tónlistarmaður
Potter-maraþon
„Ég fer heim í sveitina og
ætla að hafa það rólegt þar.
Svo ætla ég að vera með
Harry Potter-maraþon og
horfa á allar myndirnar á
þremur dögum.“
Saga Garðarsdóttir
leikkona
Dýrin í Hálsaskógi
„Ég ætla að hafa eiturlyfja- og
barnaþema. Horfa á myndir
um börn í heróínneyslu og
sýna svo Dýrin í Hálsaskógi,
eða ópíum barnanna eins og
ég orða það.“
Margrét Erla Maack fjölmiðlakona
Húllasessjón fyrir matarklúbb
„Laugardagur: Húllasessjón heima við með karmenrúll-
ur til að koma mér í stemningu fyrir matarklúbb um
kvöldið. Sunnudagur: Vonandi vakin með harmoniku-
leik en býst annars við að vera lítil í mér þar til ég
fagna þrítugsafmæli Arnórs, vinar míns, með sushi.“
HELGIN
Meira seldist af hvítum
iPhone og iPad fyrir jólin
en svörtum græjum sem
hafa verið vinsælli hingað
til samkvæmt upplýsingum
frá Epli, umboðsaðila Apple
á Íslandi. Hjá Nova fengust
þær upplýsingar að ekki
munaði miklu á vinsældum
svartra og hvítra síma en
svartir hafa vinninginn.
Hvítur var lengi einkennis-
litur Apple og til að mynda
var iPod einungis kynntur
í hvítu og litagleðin í þeirri
græju er síðari tíma upp-
finning. iPhone var hins
vegar markaðssettur svartur
sem gæti skýrt yfirburði
svarta símans.
Samkvæmt upplýsingum
Idealo, vefsíðu sem ber
saman verð og safnar ýmiss
konar tölfræði um tísku í
tækjanotkun, kemur fram að
70% notenda Apple kjósa
svartar græjur frekar en
hvítar. Á síðunni kemur fram
að iPhone er alls staðar í
Evrópu vinsælli í svörtu en
hvítu. Munurinn er mestur
í Bretlandi þar sem hátt í
80% eru með svartan síma
en minnstur í Frakklandi
þar sem rúm 70 % eru með
svartan síma. iPad er hins
vegar vinsælli í hvítu en
svörtu bæði í Frakklandi og
á Ítalíu.
Hjá Epli.is fengust þær
upplýsingar að konur væru
í flestum tilfellum áhuga-
samari um hvítar græjur
en svartar en karlar veltu
litnum ekki eins mikið fyrir
sér. Aðrir litir hafa ekki verið
fáanlegir í símum og spjald-
tölvum en orðrómur um að
næsta kynslóð iPhone kæmi
í mörgum litum fór sem
eldur í sinu um netheima í
vikunni. Forvitnilegt verður
að vita hvort svarti liturinn
mun halda vinsældum
sínum eða litagleðin ná yfir-
höndinni.
SVART EÐA HVÍTT?
Í EVRÓPU FYRSTU 9 MÁNUÐI ÁRSINS 2012. UPPLÝSINGAR IDEALO.CO.UK
69% 31%
Kemst vonandi
heim fyrir vorið
Eva Sigurbjörnsdóttir, hótelstjóri á Hótel Djúpavík á Ströndum, hlaut
fálkaorðu á nýársdag fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu í dreifðum byggð-
um. Hún hefur rekið hótelið í rúm 27 ár og sýnt mikla þrautseigju.
HÓTELSTÝRAN „Við hjónin þurftum, lá við, að setja byssu í bakið á vegagerðarmönnum til
að ryðja fyrir okkur,“ segir hún um ferðina hingað suður til að taka við fálkaorðu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fregnir bárust
af því í vikunni
að iPhone6 yrði
framleiddur í
nokkrum litum
en ekki bara í
svörtu og hvítu.
Apple-græja Svört eða hvít