Fréttablaðið - 05.01.2013, Page 24

Fréttablaðið - 05.01.2013, Page 24
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24 málaflokkum í einu máli og algjörlega ósammála í því næsta. Það er ólíklegt að ég muni hella mér út í stjórnmál eftir að ferlinum lýkur, og ég hef ekki hugleitt það,“ segir Guðjón og endurtekur að hann eigi yfirleitt erfitt með að sitja kyrr. Guðjón Valur og eiginkona hans, Guðbjörg Þóra Þorsteinsdóttir, eiga dæturnar Dagbjörtu Ínu, sem er þrettán ára, og Jónu Margréti, sem er níu ára. Það ríkir spenna á heimilinu því þriðja barnið er á leiðinni. „Við eigum von á barni í lok febrúar eða byrjun mars, og við vitum að þetta er strákur. Fjöl- skyldan hefur tekið þátt í þessu atvinnumanna- brölti mínu og stutt við bakið á mér. Stundum er maður með samviskubit yfir því að taka það frá dætrum mínum að fá að upplifa það að alast upp á Íslandi, þar sem meira frjálsræði ríkir t.d. í skól- anum, og geta ekki skotist í heimsókn til afa og ömmu þegar þeim dettur í hug. Ég var að hugsa um slíka hluti þegar ég var ekki viss um hvort ég ætl- aði að halda áfram með landsliðinu eftir Ólympíu- leikana. Ég vildi fá tíma fyrir fjölskylduna. Við höfum öll lært mikið á þessum tíma sem við höfum búið erlendis, ég er til dæmis alveg ágætur í dönskunni núna,“ segir Guðjón og glottir enn og aftur. „Dætur mínar eru með þrjú tungumál alveg á hreinu, íslensku, dönsku og þýsku. Og sú eldri er einnig að læra frönsku í skólanum. Ég hefði ekki getað tekið strætó upp í Breið- holt þegar ég var þrettán ára gamall án þess að það væri skrifað niður fyrir mig. Það hefur verið sagt oft um mig að ég sé nánast orðinn Þjóðverji en ég berst gegn því. Það eru ekki allir eins. Ég er stund- vís og ég er einbeittur og vinnusamur eins og þeir. En það er margt sem mér finnst þungt og þvingandi í Þýskalandi þrátt fyrir að mér líði vel þar.“ Margir áhrifavaldar Guðjón hefur kynnst fjölmörgum þjálf- urum og leikmönn- um í gegnum tíðina og hann er inntur eftir því hverjir hafi haft mest áhrif á hann sem handboltamann. „Alfreð Gísla- son hefur eflaust mótað mig mest í gegnum tíðina – ég hef alveg fengið góðar „hárblásara“- ræður frá Alla. Og ekki fengið að svara mikið fyrir mig á sama tíma,“ segir Guðjón og glottir, en Alfreð er núver- andi yfirmaður hans hjá þýska stórliðinu Kiel. Guðjón Valur fór út í atvinnumennsku frá KA árið 2001, 22 ára gamall, og þar komst hann í kynni við Iouri Chevtsov, sem var á þeim tíma þjálfari þýska liðsins Essen. „Chevtsov, sem er í dag þjálfari Hvíta-Rússlands, kenndi mér í raun alvöru hand- bolta þegar ég fór í atvinnumennskuna. Ég er búinn að vera með þjálfara frá Hvíta-Rússlandi, Króatíu, Svíþjóð og að sjálfsögðu Íslendinga sem þjálfara og hef lært af þeim öllum. Rússneski „skólinn“ er oft sagður þungur og leiðinlegur en ég fór í gegn- um þetta allt saman og hafði gott af því. Margir af bestu handboltamönnum Íslands fóru í gegn- um svipaða hluti hjá Boris Bjarna Akbachev hjá Val á sínum tíma og lærðu grunnatriði sem skipta öllu máli. Það bjó alltaf eitthvað á bak við það sem lagt var upp með og tímasetningar á hreyfingum og hlaupum voru fyrir fram ákveðnar. Ég vogaði mér t.d. ekki að gera bara eitthvað eftir mínu höfði undir stjórn Chevtsov. Ég hafði fengið að hlaupa af mér hornin í deildinni heima á Íslandi og ég var eflaust villtur leikmaður þegar ég kom út. Ólafur Stefánsson er t.d. með ótrúlega hæfileika til að fá leikmenn til þess að trúa á sjálfa sig, hann er kannski ekki mikið að spá í taktík og slíkt. Þegar maður var hættur að trúa á sjálfan sig gat Óli alltaf komið því í lag með einhverjum hætti. Patrekur Jóhannesson hafði einnig mikil áhrif á mig – hann tók við mér í Þýskalandi og var samherji minn þar. Ótrúlega góður og hjartahlýr. Ég fékk mitt fyrsta glóðarauga frá „Patta“ á æfingu hjá Essen. Ég var ekkert ánægður með það og blótaði allsvakalega en eftir æfinguna kom Patti brosandi og klappaði á öxlina á mér og spurði hvort ég væri enn reiður. Svona hlutir og atvik kenndu mér að verða aðeins harðari af mér. Oleg Velyky, fyrrum liðsfélagi minn hjá Essen, er líklega sá hæfileikaríkasti og einn sá eftirminni- legasti sem ég hef spilað með. Velyky var fæddur í Úkraínu en lék með þýska landsliðinu og hann var ótrúlegur. Ég hef alltaf sagt að maður þurfi að æfa gríðarlega mikið til að standa sig – en hann er algjör undantekning í því samhengi. Ég sá hann aldrei æfa almennilega en samt var hann allt- af langbestur. Hann fékk krabbamein og lést því miður langt fyrir aldur fram, aðeins 32 ára. Kiel er besta liðið sem ég hef verið í en tími minn hjá AG í Kaupmannahöfn var það skemmtilegasta sem ég hef upplifað hingað til. Leikmannahópurinn var stórkostlegur og það sem gekk á í búningsklef- anum var eins og atriði úr þáttunum Fóstbræðrum, eða Næturvaktinni. Það var alltaf eitthvað grín í gangi og ég man bara eftir mér hlæjandi. Það var gert grín að mönnum á góðan hátt – en þegar það var leikur eða einhver keppni í gangi var því öllu ýtt til hliðar. Ég hef aldrei skemmt mér jafn vel. Það var sorglegt og mikið áfall að fá þær fréttir að búið væri að leggja félagið niður í viðtali eftir leik í beinni sjónvarpsútsendingu á Ólympíuleikunum,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson. EM Í KRÓATÍU 2000 HM Í FRAKKLANDI 2001 EM Í SVÍÞJÓÐ 2002 HM Í PORTÚGAL 2003 EM Í SLÓVENÍU 2004 ÓL Í AÞENU 2004 HM Í TÚNIS 2005 EM Í SVISS 2006 HM Í ÞÝSKALANDI 2007 EM Í NOREGI 2008 ÓL Í PEKING 2008 EM Í AUSTURRÍKI 2010 HM Í SVÍÞJÓÐ 2011 EM Í SERBÍU 2012 ÓL Í LONDON 2012 STÓRMÓT GUÐJÓNS VALS SIGURÐSSONAR FJÖLDI MARKA 7 | 1,8 Í LEIK 15 | 2,5 Í LEIK 21 | 2,6 Í LEIK 39 | 4,3 Í LEIK 15 | 5,0 Í LEIK 32 | 5,3 Í LEIK 31 | 6,2 Í LEIK 37 | 6,3 Í LEIK 66 | 6,6 Í LEIK 34 | 5,7 Í LEIK 43 | 5,4 Í LEIK 39 | 4,9 Í LEIK 47 | 5,2 Í LEIK 41 | 6,8 Í LEIK 44 | 7,3 Í LEIK Markametið hjá landsliðinu er 1.571 mark og það á Ólafur Stefánsson. Guðjón Valur hefur skorað alls 1.400 mörk og þarf því að skora 172 mark til viðbótar ef hann ætlar að ná metinu af Ólafi. „Það er erfitt fyrir mig sem fyrir liða að ætla að setja það sem markmið að ná marka- metinu hans Óla. Það væri heiður eftir ferilinn að ná slíku markmiði en ég er vinnudýr að eðlisfari; ég hleyp fyrir liðið og ég geri það sem mér er ætlað. Ef þetta met fellur ekki er Ólafur Stefánsson vel að því kominn að eiga það.“ MARKAMETIÐ EKKI ÞAÐ MIKILVÆGASTA Guðjón Valur hefur í gegnum tíðina skorað ógrynni af mörkum úr hraðaupphlaupum fyrir íslenska landsliðið. Fáir handboltamenn hlaupa hraðar eða stökkva lengra. Og allir Íslendingar þekkja „vörumerki“ Guðjóns þar sem hann svífur tignarlega inn í vítateiginn eftir hraðaupphlaup. Hefur Guðjón einhvern tíma íhugað það að stökkva bara alla leið inn í markið með boltann, fyrstur allra, og búa til nýyrðið „handboltatroðsla“? „Ég efast um það, Jón Arnar Magnússon á Íslandsmetið í langstökki sem er 8 metrar, ég myndi kannski þora að prófa þetta í sandgryfju. Það væri ekkert sérstaklega gott að lenda í markinu og flækja sig í netinu. Það er slysahætta. Ég held ég hefði þurft að prófa þetta fyrr á ferlinum, þá var aðeins meiri kraftur í mér, þetta verður ekki síðasta markið hjá mér á ferlinum. Ég get lofað því. Jú, ég hlýt einhvern tíma að hafa getað þetta en það eru 6 metrar frá vítateignum og inn í markið. Það er töluverður spotti. Vandamálið er að blessaðir markverðirnir eru yfirleitt fyrir manni og erfitt að sveigja fram hjá þeim. Ég held ég láti „sirkusmörkin“ duga.“ ➜ Stekkur Guðjón alla leið inn í markið? Guðjón Valur var í mörgum íþróttum sem barn og unglingur. Fótboltinn skipaði stóran þátt í lífi hans og það voru ekki allir sáttir þegar hann valdi þá leið að leggja handboltann fyrir sig. „Sigurður Helgason var þjálfarinn minn í fótboltanum og hann telur að ég hafi valið rangt. Siggi Helga er á þeirri skoðun að ég hefði endað sem varnarsinnaður miðjumaður hjá einhverju stórliði á Englandi. Það eru hans orð. Ég fór beint inn í meistaraflokkinn þegar ég átti að vera í 3. flokki. Gauti Grétarsson, sem var þjálfari liðsins á þeim tíma, gaf mér góð ráð. Ég var ekki nema rétt um 68 kíló. Á einu ári þyngdist ég um 13 kíló. Ég æfði mikið, og var oft einn á æfingum þegar ég var um 14 ára gamall. Þjálfarinn var mark- vörðurinn Alexander Ravine. Það eina sem ég gerði á þessum æfingum var að dúndra á markið og reyna að skora. Ég skoraði oftast ekki mark fyrr en eftir 20 mínútur. Mér fannst æðislegt að hafa atvinnumann í markinu og láta hann verja frá mér. Ég er ekki með bakgrunn eins og margir aðrir sem koma úr stærri félögum. Ég fór beint í meistaraflokk 15 ára. Þeir sem tóku á móti mér eiga hrós skilið. Þeir vildu mér allt hið besta, og vildu byggja mig upp.“ ➜ Varnarsinnaður miðjumaður hjá ensku fótboltaliði? FR ÉT TA BL AÐ IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.