Fréttablaðið - 05.01.2013, Síða 28
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28
Hver er bakgrunnur þinn sem leikstjóra, Þór Ómar? „Ég fór í kvikmyndanám til Banda-ríkjanna rúmlega tvítugur. Var fyrst í rúmt ár í San Francisco en fór svo til Los
Angeles þar sem ég gekk í skóla sem er
mikið sóttur af Íslendingum. Ég var svo
heppinn að fá vinnu um það leyti sem ég
kláraði skólann en þá fékk maður sjálf-
krafa árs atvinnuleyfi í BNA eftir að
námi þar lauk.
Heppni minni lauk ekki þar því
skömmu seinna vann ég græna kortið og
þá byrjaði ballið. Þá var og hét fyrirtæki
sem hét Palomar og ég komst í tengsl þar
í gegnum Guðna Gunnars jógameistara.
Hann kynnti mig fyrir ungri konu sem
var að vinna þar í lausamennsku sem
framleiðandi. Í gegnum hana datt ég inn í
auglýsinga- og tónlistarmyndbandabrans-
ann og vann fyrir fullt af stórum flottum
nöfnum.
Í gegnum Palomar fékk ég vinnu sem
hlaupastrákur við mína fyrstu bíómynd
og þá byrjaði boltinn að rúlla. Ég fékk
smám saman meiri ábyrgð og fór að
vinna sem aðstoðarleikstjóri auk þess að
vera alltaf að reyna að potast eitthvað
sjálfur. Byrjaði fljótlega að gera auglýs-
ingar og tónlistarmyndbönd sjálfur og
var í þessum bransa í fjögur ár, þangað
til ég flutti heim árið 1997.“
Löng og erfið fæðing
Hvað hefurðu svo verið að gera síðan þú
komst heim? „Ég byrjaði að frílansa í
bransanum hér heima og komst fljótlega
í lausamennsku hjá Sagafilm við að leik-
stýra auglýsingum. Fljótlega eftir það
fór ég að vinna með Ingvari og Balta við
gerð myndarinnar Popp í Reykjavík þar
sem ég var ráðinn aðstoðarleikstjóri. Það
leiddi til þess að ég varð aðstoðarleik-
stjóri í 101 Reykjavík en eftir það tók ég
þá ákvörðun að ég þyrfti að móta mér
einhverja stefnu og fór að einbeita mér að
því að leikstýra sjónvarpsauglýsingum
og tónlistarmyndböndum. Seinna komst
ég í samband við umboðsskrifstofu úti í
Þýskalandi og fór að fá eina og eina litla
mynd til að gera úti.“
Hvað varð svo til þess að þú ákvaðst að
ráðast í gerð heillar bíómyndar? „Draum-
urinn var auðvitað alltaf að gera alvöru
mynd og þessi tiltekna mynd á rætur
sínar að rekja til þess að ég kynntist Jóni
Atla Jónassyni við gerð Popps í Reykja-
vík. Við ákveðum það í sameiningu að
gera mynd, helst í einum grænum. Mikael
Torfason gaf okkur leyfi til að gera mynd
upp úr bókinni Fölskum fugli og Jón Atli
hjólaði í það að skrifa handrit sem við
skiluðum til Kvikmyndasjóðs með beiðni
um styrk. Viðbrögðin þaðan voru hins
vegar ekki jákvæð, svo vægt sé til orða
tekið. Við fengum þau skilaboð að þetta
handrit gæti aldrei orðið að bíómynd,
til þess væri það alltof ofbeldisfullt og
skelfilegt. Við vorum samt ekkert á því
að gefast upp heldur skröltum áfram með
þetta, sendum inn endurskrifað handrit
á hverju ári og ætluðum okkur alltaf að
gera þessa mynd með einhverju móti.“
Enn eitt handrit og annað til
Og það tókst sem sagt að lokum? „Já, á
einhverjum tímapunkti, sennilega 2002,
kemur Snorri Þórisson hjá Pegasus að
þessu með okkur og þá fáum við Mikka
sjálfan til að setjast niður og semja hand-
rit upp úr eigin bók. Hann skrifaði einar
þrjár, fjórar útgáfur sem við sóttum um
styrk til að filma en niðurstaðan var
alltaf sú sama: þetta væri ekki alveg
boðlegt fyrir fólk að horfa á. Þannig að
hugmyndin var sett í dvala í nokkur ár
en við gleymdum henni samt ekkert og
2009 fórum við Jón Atli enn af stað. Þá
tókum við allt annan pól í hæðina, hann
endurskrifaði handritið einu sinni enn
en við ákváðum að nota bara bókina sem
grunn og reyna að gera handritið að sjálf-
stæðri sögu sem byggði á grunnhug-
mynd bókarinnar og karakterum. Þessi
útgáfa hugnaðist Kvikmyndasjóði betur
þannig að loks fengum við smá byr undir
báða vængi. Einhvern tímann síðastliðinn
vetur tókst mér svo að nurla saman smá
aurum og við ákveðum að skella okkur
í tökurnar, klára þær og sækja svo bara
um eftirvinnslustyrk.“
Ungir og efnilegir leikarar
Þú ert með óþekkta leikara í aðalhlut-
verkunum, auk þekktra leikara, hvern-
ig voru þeir valdir? „Styr Júlíusson sem
leikur Arnald er í MH og hefur leikið eitt-
hvað þar og víðar. Jón Atli hafði séð til
hans og mælti með að við reyndum hann
í hlutverkið. Við hittum hann og mér
fannst hann klárlega vera málið. Ég sé
svo sannarlega ekkert eftir því. Hann stóð
sig alveg hreint ótrúlega vel. X-ið auglýsti
síðan fyrir okkur áheyrnarpróf og við
fundum nánast alla krakkana í gegn-
um það, fyrir utan þau Ísak Hinriksson,
Rakel Björk Björnsdóttur og Hjalta Rúnar
Jónsson sem okkur var bent á eftir öðrum
leiðum. Varla nokkurt þeirra hafði staðið
fyrir framan myndavél áður og þetta var
auðvitað ögrun bæði fyrir mig sem leik-
stjóra í fyrsta skipti og fyrir þau. Það fór
mikill tími í æfingar og yfirlestur sem
á endanum skilaði sér, held ég. Þau tóku
ótrúlegum framförum á þessum tíma
og ég varð eiginlega bara hálf undrandi
þegar upp var staðið hvað þau gerðu þetta
vel. Reynsla atvinnuleikaranna skilaði sér
líka til þeirra og ég er mjög ánægður með
útkomuna.“
Þetta er orðinn langur meðgöngutími,
heil fimmtán ár. Hvernig tilfinning er
það að horfa fram á frumsýningu eftir
nokkrar vikur? „Ég er bara spenntur og
algjörlega sáttur. Þessi prósess hefur
staðist allar mínar væntingar. Ég hef oft
upplifað það að þegar verkefnum er lokið
þá stendur maður uppi með að það er
ekki nákvæmlega eins og maður sá það
fyrir sér í byrjun, en það er svo skrítið að
Falskur fugl er alveg nákvæmlega eins og
ég sá hana fyrir mér. Það finnst mér vera
merki um það að maður hafi fylgt eigin
sannfæringu og ekki bognað á leiðinni.
Sagan er dálítið óvenjuleg að því leyti að
Arnaldur er andhetja og ekki allra þannig
að það skipti gríðarlega miklu máli að við
skiluðum honum þannig til áhorfenda að
þeir bæru einhverjar taugar og tilfinn-
ingar til hans. Mér finnst það hafa tekist
og er sannfærður um að áhorfendur verða
tilbúnir að sitja með honum í tvo tíma og
fylgjast með sögu hans þróast.“
LANGUR MEÐGÖNGUTÍMI Þór Ómar og Jón Atli hafa gengið með hugmyndina að Fölskum fugli í fimmtán ár. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Styr Júlíusson, sem leikur Arnald í Fölskum fugli, ákvað snemma að verða leikari. Í Frétta-
blaðinu 4. september 2006 er viðtal við Styr, þá fjórtán ára gamlan, þar sem hann greinir frá
því að hann hafi notað fermingarpeningana sína til að sækja leiklistarnámskeið í New York.
Grípum niður í viðtalið við þennan unga leiklistaráhugamann:
„Styr hefur leikið í nokkrum auglýsingum hér heima en lítið staðið á sviði. Í Stagedoor
Manor hlaut hann hlutverk þjóns á heimili Bennett-fjölskyldunnar í Hroka og hleypidómum
eftir Jane Austen, en alls voru sett upp þrettán leikrit á námskeiðinu. „Hlutverk þjónsins
er allt öðruvísi og stærra í leikritinu en það er í myndinni, hann er allt öðruvísi karakter,“
útskýrir Styr.
Í lok námskeiðsins heldur skólinn verðlaunaafhendingu sem gengur undir nafninu Óskar-
inn, þar sem þátttakendur eru verðlaunaðir fyrir frammistöðu sína. Styr hlaut viðurkenningu
fyrir framúrskarandi leik í leikriti.
Styr segist nú ætla að halda ótrauður áfram. „Ég ætla að reyna að komast aftur út næstu
ár. Svo langar mig að fara í áheyrnarprufur fyrir leikrit og reyna að fá að gera einhverjar
talsetningar,“ segir hann.“
Vissi hvað hann vildi
Kvikmyndin Falskur fugl, sem byggir á skáldsögu Mikaels
Torfasonar, verður frumsýnd 25. janúar. Þetta er fyrsta mynd
leikstjórans, Þórs Ómars Jónssonar, í fullri lengd og aðdrag-
andinn hefur verið langur og strangur.
ÆTLAÐI SÉR
ALLTAF AÐ
GERA ÞESSA
MYND
Við fengum þau skilaboð að
þetta handrit gæti aldrei orðið að
bíómynd, til þess væri það alltof
ofbeldisfullt og skelfilegt.
Þór Ómar Jónsson leiksstjóri
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is