Fréttablaðið - 05.01.2013, Qupperneq 44
| ATVINNA |
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Helstu verkefni:
• Umsjón með gerð fjárhags-, starfs- og verkáætlana
fyrir verkefni á sviðinu
• Samningagerð og uppgjör við verktaka
• Stýring útgjalda og samþykktir reikninga
• Þátttaka í reglulegum samráðsfundum með
bæjarstjóra og öðrum sviðsstjórum
• Undirbúningur og fundarseta þeirra fagráða sem starfa á
umhverfis- og tæknisviði
• Fylgja eftir afgreiðslu ráða, bæjarráðs og bæjarstjórnar á
málefnum á umhverfis- og tæknisviði
• Samskipti við Umhverfisstofnun vegna umsjónar með
Fólkvangi í Böggvisstaðafjalli og Friðlandi Svarfdæla
• Sviðsstjóri annast önnur verkefni sem bæjarstjóri felur honum
Nánari upplýsingar veita:
Inga S. Arnardóttir,
inga@hagvangur.is og
Kristín Guðmundsdóttir,
kristin@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með
20. janúar nk.
Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs
Sviðsstjóri hefur umsjón með og ber ábyrgð á umhverfis- og tæknisviði Dalvíkurbyggðar.
Í því felst m.a. ábyrgð á því að unnið sé og þjónusta veitt í samræmi við lög og reglur sem
gilda um verkefni sviðsins. Helstu verkefni á umhverfis- og tæknisviði eru: Byggingamál
og eftirlit byggingafulltrúa, skipulagsmál, brunavarnir, almannavarnir, umferðarmál,
umhverfismál þ.m.t. úrgangsmál, málefni landbúnaðar og umsjón eignasjóðs. Sviðsstjóri er
ásamt umhverfisráði ráðgefandi við bæjarstjórn um þessa málaflokka.
Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við Eyjafjörð, um 40 km norðan við Akureyri. Sveitarfélagið er framsækið og
leggur metnað sinn í að veita íbúum, ekki síst börnum og ungmennum, góða þjónustu. Þar er blómlegt
menningarlíf og fjölbreyttir möguleikar til íþróttaiðkunar og útivistar.
Að búa í Dalvíkurbyggð er kjörið fyrir fólk á öllum aldri, barnafjölskyldur, útivistarfólk og þá sem vilja njóta
nálægðar við náttúruna. Sjá frekari upplýsingar á www.dalvikurbyggd.is
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Framhaldsháskólamenntun æskileg
• Starfsreynsla innan stjórnsýslunnar æskileg
• Reynsla af skyldum störfum
• Þekking á helstu tölvuforritum sem nauðsynleg eru vegna
verkefna á sviðinu
• Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar
• Ríkir skipulagshæfileikar
• Geta til að vinna undir álagi
Starfssvið:
• Dagleg stjórnun vöruhúss
• Mannauðsstjórnun
• Mikil samskipti og þjónusta við viðskiptavini
• Mikil samskipti við aðrar deildir fyrirtækisins
• Þróun og endurbætur á ferlum
• Samskipti við birgja
• Mikil greiningarvinna í Excel
Meðal helstu vara eru legur, vélrænar skiptingar, loftþrýstikerfi, vökvaþrýstikerfi og verkfæri ásamt heilsu- og öryggisbúnaði.
Helsta þjónusta Brammer er að skoða birgðakerfi í heild og finna út sparnaðarleiðir fyrir fyrirtæki. Brammer kom til landsins
árið 2005 vegna uppbyggingar Fjarðaáls í Reyðarfirði. Árið 2010 var ákveðið að fara í frekari fjárfestingar og byggja upp
íslenskt fyrirtæki. Reynslan af samvinnu Alcoa og Brammer hérlendis hefur verið nýtt í verkefnum í norskum álverum og mun
sú þekking einnig vera notuð hjá verksmiðjum Alcoa í Evrópu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun
• Haldbær stjórnunarreynsla
• Reynsla af mannaforráðum
• Reynsla og skilningur á starfsemi vöruhúsa
• Mikið frumkvæði og geta til að finna lausnir
• Mikil þjónustulund og góð samskiptahæfni
• Mjög góð Excelkunnátta
• Reiprennandi íslensku- og enskukunnátta
• Reynsla af störfum í alþjóðlegu umhverfi æskileg
Rekstrarstjóri vöruhúss
Brammer er leiðandi dreifingaraðili í Evrópu á vörum fyrir iðnaðarviðhald,
viðgerðir, enduruppgerðir og þjónustu.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Búseta á Austurlandi er skilyrði
Upplýsingar veita:
Rannveig J. Haraldsdóttir,
rannveig@hagvangur.is
Sverrir Briem,
sverrir@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 13. janúar nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is.
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR4