Fréttablaðið - 05.01.2013, Page 55

Fréttablaðið - 05.01.2013, Page 55
| ATVINNA | Löggildingarnámskeið fyrir mannvirkjahönnuði Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í febrúar 2013, ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið mun hefjast mánudaginn 11. Febrúar 2013. kl. 08:00 – 16.00 og standa dagana 11.,- 12., 13.,- 14. Febrúar 2013 og lýkur með prófi laugardaginn 23. febrúar 2013. Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 60.000.- kr. fyrir þá sem sækja námskeiðið til upprifjunar. Upplýsingar og umsóknareyðublað fást hjá IÐUNNI- fræðslu- setri, Skúlatúni 2, Reykjavík eða vefsetrinu www.idan.is. Umsóknum skal skilað til IÐUNNAR útfylltum ásamt 1) afriti af prófskírteini umsækjanda, 2) vottorði frá iðnaðarráðuneyti um réttindi til starfsheitis, 3) vottorði faglegs yfirmanns um starfsreynslu, sbr. 1.mgr. 26.gr. laga um mannvirki, eigi síðar en föstudaginn 1. febrúar 2013. Nánari upplýsingar í síma 590 6434. Mannvirkjastofnun Skúlagötu 21, 101 Reykjavík. Auglýsing um skipulags- mál í Grindavík 1. Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur bæjar 2010-2030 vegna fráveitu frá Svartsengi í Grindavík, ásamt umhverfisskýrslu. Leggja þarf affallslögn og þjónustuveg frá niðurdælingarsvæði vestan við Þorbjörn og til sjávar, vestan Grindavíkur. Lögnin mun flytja affallsvökva frá niðurdælingarveitu Svartsengis- virkjunar til útrásar í Arfadalsvík. 2. Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur bæjar 2010-2030 vegna miðbæjar, ásamt umhverfis skýrslu. Tilgangur breytingarinnar er að skapa betri umgjörð um lifandi miðbæ í Grindavík með blandaðri starfsemi; verslun, þjónustu og íbúðum. Lögð er áhersla á að uppbygging falli vel að því byggðamynstri sem fyrir er. Breytingin gerir ráð fyrir breyttu umferðarskipulagi. 3. Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar- kjarna í Grindavík, ásamt umhverfisskýrslu. Megininntak deiliskipulagstillögunnar er að skapa umgjörð um lifandi miðbæ í Grindavík með blandaðri starfsemi; verslun, þjónusta og íbúðir. Lögð er áhersla að uppbygging falli vel að því byggðamynstri sem fyrir er. Einnig er lögð áhersla á að auka umferðaröryggi í miðbænum, draga úr umferðarhraða og gera gangandi og hjólandi vegfarendum hærra undir höfði. Gerðar eru breytingar á gatnamótum Víkurbrautar og Ránargötu þannig að umferðinni sé beint niður að höfn. 4. Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að deiliskipulagi fyrir íþróttasvæðið í Grindavík. Deiliskipulagið nær til íþróttasvæðis Grindavíkurbæjar og er unnið með það að leiðarljósi að bæta aðstöðu til íþróttaiðkun- ar í bænum. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir nýjum mannvirkjum á svæðinu s.s. íþróttamiðstöð, aðkomutorgi og fjölgun bílastæða. Tillögurnar liggja frammi á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar að Víkurbraut 62 í Grindavík, virka daga kl. 9:30 - 15:00, frá 22. desember 2012 til og með 2. febrúar 2013. Einnig má nálgast skipulagstillögurnar ásamt umhverfisskýrslum á heimasíðu Grindavíkurbæjar, www.grindavik.is. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillögurnar ásamt umhverfisskýrslum. Ábending- um og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega til forstöðumanns Tæknideildar Grindavíkurbæjar eigi síðar en 2. febrúar 2013. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna. Grindavík, 22. desember 2012. Ingvar Þ. Gunnlaugsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs. Deiliskipulag hafnarsvæðis á Patreksfirði Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjar- stjórn Vesturbyggðar á fundi þann 16. maí 2012 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi af hafnarsvæðinu á Patreksfirði. Deiliskipulagið afmarkast af neðri húsum við Urðagötu og Mýrum að norðan, Aðalstrætis að austan og sjó að vestan og sunnan. Tillagan var til sýnis á bæjarskrifstofunni að Aðal- stræti 63 og á heimasíðu Vesturbyggðar, www.vesturbyggd. is frá og með þriðjudeginum 12. júní til og með 31. júlí 2012. Athugasemdir bárust og hafa umsagnir bæjastjórnar um þær verið sendar þeim sem þær gerðu. Eftirfarandi breyting- ar voru gerðar á tillögunni til samræmis við athugsemdir. Aðkoma er sýnd frá Þórsgötu að Aðalstræti 7. og gerð grein fyrir henni í greinargerð. Teknir voru út byggingarreitir fyrir bílskúra við Aðalstræti vegna garðveggs við Aðalstræti 5-9 sem eru settir undir hverfisvernd. Byggingarreitur Odda hf. var stækkaður. Byggingarreitur við Vatnskrók 1. og 2. er felldur út. Gerð var grein fyrir hverfisvernd á hafnarsvæðinu í samræmi við húsakönnun sem lauk á árinu 2012. Stækkun lóðar og byggingarreits á iðnaðarlóð við Oddagötu og við núverandi Vöru-afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkti deiliskipulagið á fundi sínum þann 21. nóvember sl. og hefur skipulagið verið sent Skipulagsstofnun til yfirferðar. Hverjum þeim sem telur rétti sínum hallað með samþykkt þessari er heimilt að skjóta máli sínu til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 52.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsins í B- deild Stjórnartíðinda. Bæjarstjórn samþykkt á fundi sínum þann 10. desember síðastliðinn að auglýsa eftirfarandi skipulagslýsingu, aðalskipulagsbreytingu og ný deiliskipulög. Vestur- byggð óskar hér með eftir athugasemdum við lýsinguna og skipulagstillögurnar sem eru: Lýsing á skipulagsverkefni Skv. 40. grein skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst lýsing á skipulagsverkefni fyrir deiliskipulag Látrabjargs. Fyrirhugað deiliskipulagssvæði nær yfir land þriggja jarða, Hvallátra, Breiðavíkur og Keflavíkur. Stærð svæðisins er í allt um 9.000 km2. Skipulagslýsingin mun liggja frammi á skrifstofu Vesturbyggð- ar Aðalstræti 75, Patreksfirði og á heimasíðu sveitarfélagsins www.vesturbyggd.is á meðan unnið er að skipulaginu. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Vesturbyggðar Aðalstræti 63. eða á netfangið armann@vesturbyggd.is merkt „skipulagsmál í Vesturbyggð“ fyrir 13. janúar 2013. Eftir kynningu á skipulagslýsingunni verður fjallað um deiliskipulagið og það kynnt samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010. Breyting á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 Skv. 31. gr. laga nr. 123/2010 og 7 gr. laga nr.105/2006 er auglýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á aðal- skipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 vegna laxeldis, urðunar, landnotkunar í fjallshlíðum þéttbýla, iðnaðarsvæðis á Bíldudal, Aðalstrætis 100 og nágrenni. Skipulagstillögunni fylgir umhverfisskýrsla. Skv. 41. gr. laga nr. 123/2010 er auglýst eftir athugasemd- um við eftirfarandi deiliskipulagstillögur: Sumarhúsabyggð í Dufansdal Efra land II. Uppdráttur með greinargerð. Kirkjuhvammur á Rauðasandi. Uppdráttur og greinargerð. Urðunarstaður í Vatneyrarhlíðum. Skv. 41. gr. laga nr. 123/2010 og 7. gr. laga nr. 105/2006 Uppdráttur með greinargerð og umhverfisskýrslu. Hlaðseyri og nágrenni. Fóðurstöð fyrir Laxeldi. Uppdráttur með greinargerð. Aðalstræti 100 og nágrenni. Hótel og ofanflóðavarnir. Uppdráttur með greinargerð. Einnig samþykkt bæjarstjórn Vesturbyggðar þann 19. september 2012. að auglýsa: Deiliskipulag vegna frístundabyggðar í Vesturbotni í Patreksfirði skv. 41 gr. laga nr. 123/2010. Skipulagsuppdrættir, umhverfisskýrslur og greinargerðir liggja frammi á skrifstofu Vesturbyggðar Aðalstræti 75, Patreksfirði og/eða hjá Skipulagsstofnun Laugavegi 166, Reykjavík frá 1. janúar 2013 til 26. febrúar 2013. Ennfremur verða gögnin aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.vesturbyggd.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 26 febrúar 2013. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Vesturbyggðar Aðalstræti 63 eða á netfangið armann@vesturbyggd.is merkt „skipulagsmál í Vesturbyggð “. Þeir sem ekki gera athugasemd- ir innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni. Ármann Halldórsson byggingarfulltrúi. Skipulagsmál í Vesturbyggð DISCOVERY CHANNEL ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS LAUGARDAGUR 5. janúar 2013 15

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.