Fréttablaðið - 05.01.2013, Side 74
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 46
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
Í amerískum bíómyndum má stundum sjá skörðóttar skálar ganga í sunnu-
dagsmessum milli safnaðargesta sem
láta fé af höndum rakna í diskinn sem
síðan fer til kirkjustarfsins, til viðhalds
kirkju byggingum eða til líknarstarfs.
Slíkir söfnunar diskar í kirkjum eru mikil
þarfaþing í sam félögum þar sem kirkjur
og söfnuðir eru rekin sem sjálfstæð fyrir-
tæki en eru ekki hluti af ríkisrekstri.
MIKIÐ hefur verið rætt undanfarið
um þá ætlun Þjóðkirkjunnar að standa
fyrir fjársöfnun til að bæta úr brýnni
neyð Landspítalans fyrir nýjan tækja-
kost. Þetta er fallega hugsað af forsvars-
mönnum stofnunar sem þekkir erfiða
fjárhagsstöðu af eigin raun og mættu
fleiri ríkis stofnanir taka sér hana til
fyrirmyndar í þessum efnum.
ÞANNIG gæti Landsdómur tekið
á móti áheitum til bókakaupa
fyrir skólabókasöfnin, Þjóðminja-
safnið gæti staðið fyrir söfnunni
„Holað innan tré“ fyrir viðhalds-
kostnaði staðalbúnaðar Sinfó og
í Hörpunni gætu verið baukar
undir frjáls framlög fyrir
gleðipillur handa Mannanafna-
nefnd. Svo gætu stjórnmála-
flokkar hafið mikla fjársöfnun
á bensín stöðvum fyrir heimilin
í landinu.
ÞAÐ VIRKAR traustvekjandi að fá stóra
aðila með vítt skipulagsnet til að standa
fyrir söfnunum meðal almennings og þeir
sem hafa eitthvað aflögu í vasanum taka
eflaust vel við sér. Söfnunardiskar í þjóð-
kirkjum landsins fyllast vafalaust fljótt.
EN ER Þjóðkirkjan réttur vettvangur
fyrir slíka söfnun? Passar það að stofnun
sem rekin er fyrir skattfé almennings
biðji þennan sama almenning um fé til
handa annarri ríkisstofnun? Ef stofnun
sem er rekin fyrir ríkisfé vill leggja
annarri stofnun sem rekin er fyrir ríkisfé
lið, væri þá ekki nærtækara að færa bara
milli reikninga? Það hlýtur að vera ein-
hver fídus í bókhaldskerfi ríkisins fyrir
svoleiðis.
VÆRU skattgreiðendur, sem með sköttum
sínum standa undir rekstri bæði Þjóð-
kirkjunnar og Landspítalans, spurðir í
hvað aukafjárveitingar úr ríkissjóði ættu
að fara myndu þeir vafalaust flestir velja
ný tæki á Landspítalann enda vitað að þar
er þörfin brýn. Einhverjir þeirra myndu
styrkja kirkjuna sína, aðrir ekki, enda líta
ekki allir á Þjóðkirkjuna sem sína kirkju.
OG SUMUM fyndist kannski nær að
auka föst framlög til Landspítalans en hafa
aukafjárveitingar til Þjóðkirkjunnar upp á
það sem safnast á söfnunardiska í sunnu-
dagsmessu?
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
hlutir sem
þú vilt ekki
heyra!
Innistæða þín er
mínus 390 krónur!
Skrýtið
nef!
Ég er ekki í
nærbuxum!
Jóna frænka
hringdi.
Í alvöru? En
gaman!
Já. Við
töluðum saman
í klukkutíma.
Hvað sagði
hún?
Ekkert.
Herra dómari? Má ég biðja
um stutt réttarhlé vegna
þess að það er kviknað
í buxum skjólstæðings
míns?
Óskabein! Hver
vill óska sér? ÉG!
É...
Því miður, Hannes. Solla var
fyrst. Hún fær að óska sér.
...Ég vil kött,
bleikt hjól, and-
litsfarða, hrað-
bát og hús með
stórum garði þar
sem ég get gift
mig...
Ég óska þess að þú
verðir fyrstur næst.
LÁRÉTT
2. klink, 6. eftir hádegi, 8. sigti, 9.
holufiskur, 11. tveir eins, 12. hroki, 14.
fjöldi, 16. tveir eins, 17. hagsýn, 18.
fyrirboði, 20. skst., 21. steintegund.
LÓÐRÉTT
1. bak, 3. þys, 4. ófrægðarpappír, 5.
skítur, 7. sjampó, 10. yfirbreiðsla, 13.
raus, 15. innyfla, 16. hylli, 19. málmur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. mynt, 6. eh, 8. sía, 9. nál,
11. ðð, 12. dramb, 14. skari, 16. áá, 17.
séð, 18. spá, 20. fr, 21. talk.
LÓÐRÉTT: 1. lend, 3. ys, 4. níðbréf, 5.
tað, 7. hársápa, 10. lak, 13. mas, 15.
iðra, 16. ást, 19. ál.
Allt upp á einn söfnunardisk