Fréttablaðið - 07.11.2015, Blaðsíða 10
Samgöngur Brýn þörf er á fleiri hrað-
hleðslustöðvum á Íslandi til að sinna
vaxandi rafbílaflota landsmanna. Raf-
magnsbílum hefur fjölgað gríðarlega
á landinu undanfarið og eru nú orðnir
í kringum sex hundruð. Í lok október
var búið að selja ríflega tvöfalt fleiri nýja
rafmagnsbíla það sem af er þessu ári en
allt síðasta ár.
Flestir rafmagnsbílar komast ein-
ungis í kringum 100 kílómetra leið á
einni hleðslu, þá þurfa eigendurnir
að hlaða bílinn á ný. Eigendur bílanna
geta hlaðið bílana heima hjá sér, en það
getur þó tekið upp undir alla nóttina.
Svokallaðar hraðhleðslustöðvar, sem
Orka náttúrunnar hefur einungis boðið
upp á hingað til, gera ökumönnum
kleift að hlaða bílinn á aðeins tuttugu
mínútum. Í dag eru tíu virkar hrað-
hleðslustöðvar á landinu og allar eru
þær á suðvesturhorninu. Þetta gerir
bíleigendum erfitt fyrir að keyra um
landið. Hingað til hafa hraðhleðslu-
stöðvarnar heldur ekki getað sinnt
öllum rafbílategundum landsins.
Hraðhleðslustöðvar ON hafa ein-
göngu verið fyrir rafbíla með CHA-
deMO-staðli, sem meðal annars
Nissan Leaf og Mitsubishi geta
notað. Combo-staðallinn er fyrir
evrópska rafbíla og eru flestir raf-
bílar á Íslandi að nota þessa tvo
staðla. Nýjar og uppfærðar hrað-
hleðslustöðvar ON verða bæði með
CHAdeMO- og Combo-staðli, auk
tengja fyrir fleiri rafbílategundir.
Þessar stöðvar fara upp á næstu
vikum og mánuðum að sögn Jóns
Selfoss
Reykjanesbær
Seltjarnarnes
Akranes
Borgarnes
Garðabær
Reykjavík
✿ Hraðhleðstöðvar á Íslandi
10
hraðhleðslu-
stöðvar eru á
landinu og liggja
þær allar á suð-
vesturhorninu
Hringvegurinn illfær rafmagnsbílum
Einungis tíu hraðhleðslustöðvar eru hér á landi og allar eru þær á suðvesturhorninu. Viðskiptastjóri Orku náttúrunnar segir standa til
að fjölga þeim en ekki liggi fyrir áætlun um að leggja þær hringinn í kringum landið. Setja á upp tvær hleðslustöðvar á Akureyri í vetur.
Hér má sjá legu hraðhleðslustöðvanna tíu sem teknar hafa verið í gagnið. Stöðina sem
austast er má finna á Selfossi, þá syðstu í Keflavík og þá sem vestast/nyrst er í Borgarnesi.
Þegar fyrstu hrað-
hleðslustöðvar ON
voru opnaðar í mars 2014
voru einungis hundrað bílar
á götunum, nú eru þeir
tæplega sex hundruð. Við
erum að reyna að setja upp
stöðvar eftir því sem bílum
fjölgar og erum að reyna að
bæta við þessa þjónustu.
Jón Sigurðsson
viðskiptastjóri hjá
Orku náttúrunnar
Við erum búin að
vera að reyna að fá
fólk og fyrirtæki úti á landi
til að setja þá upp en það
hefur ekki gengið nógu vel
hjá okkur.
Gísli Gíslason
framkvæmdastjóri
Even
Sigurðssonar, viðskiptastjóra í sölu-
deild Orku náttúrunnar.
Að sögn Jóns eru fyrirætlanir um
að fjölga stöðvunum, til dæmis verða
tvær stöðvar settar upp á Akureyri í
vetur, hins vegar liggi heildarfjöldinn
ekki fyrir. Aðspurður segir hann enga
áætlun liggja fyrir um að leggja hrað-
hleðslustöðvar hringinn í kringum
landið. „Þegar fyrstu hraðhleðslustöðv-
ar ON voru opnaðar í mars 2014 voru
einungis hundrað bílar á götunum,
nú eru þeir tæplega sex hundruð. Við
erum að reyna að setja upp stöðvar eftir
því sem bílum fjölgar og erum að reyna
að bæta við þessa þjónustu,“ segir Jón.
„Það geta auðvitað allir sett upp hrað-
hleðslustöðvar en við erum þeir einu
sem tóku ákvörðun um að gera þetta.“
Jón bendir á að töluvert fleiri stöðvar
séu hér miðað við fjölda bíla en til
dæmis í Noregi. „Í Noregi eru fjórar
stöðvar fyrir hverja þúsund bíla en
á Íslandi eru um sextán, eða fjórfalt
fleiri,“ segir Jón.
Gísli Gíslason, framkvæmdastjóri
Even, segir fyrirtækið eiga tvö hundr-
uð staura sem það vilji koma í notkun
víðsvegar um landið. Staurarnir nýtist
ekki til hraðhleðslu, hins vegar taki
um fjóra tíma að hlaða með þeim. „Við
erum búin að vera að reyna að fá fólk
og fyrirtæki úti á landi til að setja þá
upp en það hefur ekki gengið nógu vel
hjá okkur,“ segir hann og kveður „rosa
lítið mál“ að setja upp hleðslustöðvar
í kringum landið. „Þessi samgöngubót
myndi kosta álíka og að setja upp eina
brú fyrir vestan.“ saeunn@frettabladid.is
7 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 L a u g a r D a g u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð