Fréttablaðið - 07.11.2015, Blaðsíða 67
| AtvinnA | LAUGARDAGUR 7. nóvember 2015 19
Skíðasvæðin eru líflegur vinnustaður, störfin fjölbreytt og oft á tíðum í mjög
krefjandi umhverfi. Góður andi ríkir á vinnustaðnum sem er í fögru fjallaumhverfi
og fersku fjallalofti.
Umsóknarfrestur er til mánudagsins 23. nóvember og verður ráðið í störfin sem fyrst.
Umsækjendur sendi ferilskrá og rök fyrir ráðningu á magnus@skidasvaedi.is. Nánari upplýsingar
veitir Magnús Árnason, framkvæmdastjóri Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins í síma 892 1679.
Skíðagæslumaður óskast í Bláfjöll
Helstu verkefni
• Að tryggja almennt öryggi í fjallinu, forvarnir og eftirlit, merkingar
á skíðaleiðum og snjóflóðaeftirlit.
• Fyrsta hjálp og flutningur slasaðra úr fjalli og niður í skála.
Hæfniskröfur
• Skíðagæslumaður (Ski Patrol) þarf að hafa góða skíðakunnáttu
og fyrstu hjálpar þekkingu (WFR eða sambærilegt).
• Haldgóð kunnátta í snjóflóðafræðum og snjóflóðaleit er skilyrði
og reynsla af vélsleðaakstri æskileg.
Um er að ræða áhugavert starf fyrir þá sem hafa gaman af snjó og útiveru í alls kyns veðri.
Starfshlutfall er 100% og gera má ráð fyrir talsverðri yfirvinnu. Ráðningartími frá 1. desember til 15. maí.
Einnig vantar skíðagæslumenn í hlutastörf, bæði í Bláfjöll og Skálafell.
Vélaeftirlitsmaður í Bláfjöll
Helstu verkefni og hæfniskröfur
• Yfirumsjón með Kónginum, hröðustu stólalyftu landsins.
• Ábyrgð á viðhaldi, öryggismálum og þjálfun starfsmanna á lyftuna.
Viðkomandi fær góða þjálfun á lyftuna á fyrstu mánuðunum.
• Utan háannatímabils sér vélaeftirlitsmaður um almennt viðhald á fasteignum skíðasvæðanna.
Umsækjandi þarf að vera þjónustulundaður, góður í mannlegum samskiptum, handlaginn og vinnusamur.
Gott er að vera ekki lofthræddur. Rafvirkjamenntun eða önnur menntun kostur en ekki skilyrði.
Um 100% starf er að ræða allan ársins hring. Starfið er tímabundið afleysingastarf til 30. apríl 2017
og viðkomandi þarf að hefja störf sem fyrst.
Hlutastörf á skíðasvæðum
Skíðasvæðin vilja bæta við sig hressu og duglegu starfsfólki í margvísleg hlutastörf. Aðeins er unnið
þegar er opið og velur fólk sér sjálft hvaða daga það vinnur.
Viltu vinna í fersku fjallalofti?
PIPA
R
\TBW
A
• SÍA
• 155331
Starfsmaður á lager
Rafkaup óskar eftir að ráða til sín starfsmann á lager.
Starfslýsing:
Í starfinu felast öll almenn lagerstörf, s.s. afgreiðsla pantana, vörumóttaka, áfyllingar og fleira. Vinnutími er alla virka daga frá kl. 8:00 - 17:00.
Hæfniskröfur:
• Reynsla sem nýtist í starfi • Sjálfstæð vinnubrögð • Góð þjónustulund • Stundvísi • Gott skipulag
Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Einungis reyklausir einstaklingar eldri en 25 ára koma til greina.
Æskileg er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir ásamt ferilsskrá sendist á atvinna@rafkaup.is fyrir 13. nóvember 2015 - Um framtíðarstarf er að ræða.
Sérkennsluráðgjafi - Þjónustu- og þekk-
ingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og
daufblinda einstaklinga – Reykjavík
Sérkennsluráðgjafi
Laust er til umsóknar 100% starf sérkennsluráðgjafa hjá
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og
daufblinda einstaklinga. Um er að ræða afleysingu frá
1. desember 2015 til 1. desember 2016.
Helstu verkefni:
• Mat og ráðgjöf á félagsfærni, samskiptum,
tilfinningafærni og námstækni.
• Mat og kennsla á hjálpartæki.
• Ráðgjöf, fræðsla, kynningar og upplýsingamiðlun fyrir
kennara, starfsfólk, nemendur skóla, aðstandendur,
þjónustuaðila og samfélag.
• Þátttaka í rannsóknarvinnu og þróun nýjunga
og umbótaverkefnum.
Hæfniskröfur:
• Kennsluréttindi, þroskaþjálfi, iðjuþjálfi eða
sambærileg menntun.
• Framhaldsmenntun á sviði sérkennslufræða.
• Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Skipulagshæfileikar, sjálfstæði, sveigjanleiki
og frumkvæði í starfi.
Frekari upplýsingar um starfið:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi. Umsókn skal fylgja
ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og
viðtölum við umsækjendur.
Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2015.
Umsóknir skulu sendar rafrænt á netfangið
thorbjorg@midstod.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðstöfun starfsins liggur fyrir. Nánari upplýsingar veitir
Þorbjörg Gunnarsdóttir í síma 545 5800.
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og
daufblinda einstaklinga, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík