Fréttablaðið - 07.11.2015, Blaðsíða 12
Katrín tekur sem dæmi skjólstæð
ing sinn sem kemur frá Darfur í Súdan.
Hann hefur vottorð frá læknum um að
vera of veikburða og andlega veikur til
að ferðast en ætlunin er að senda hann
til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglu
gerðarinnar. Þar bjó hann á götunni
þar til hann kom til Íslands.
„Ef ég verð sendur burt frá Íslandi,
þá mun ég fyrirfara mér,“ segir Iz El
Din Mouhammed, sem er átján ára
gamall og hefur verið á flótta frá unga
aldri. „Ég mun hoppa út um gluggann.“
Ólöf Nordal innanríkisráðherra
hefur sagt opinberlega að ekki sé boð
legt að senda hælisleitendur til Ítalíu
og Grikklands vegna aðstæðna þar.
Í svari innanríkisráðuneytisins er
áréttað að þegar niðurstaða Útlend
ingastofnunar er kærð þá fari endur
skoðun á málinu fram hjá sjálfstæðri
stjórnsýslunefnd, kærunefnd útlend
ingamála. „Þannig er fjallað um slík
mál á tveimur stjórnsýslustigum.“
erlabjorg@frettabladid.is
StjórnSýSla Ávallt fer fram einstak
lingsbundið mat á því hvort veita eigi
gjafsókn vegna málareksturs, einnig
þegar sótt er um gjafsókn þar sem
ætlunin er að leggja fyrir dómstóla
að fara yfir niðurstöðu kærunefndar
útlendingamála.
Þetta kemur fram í svari innanríkis
ráðuneytisins við fyrirspurn Frétta
blaðsins um hvort stefnubreyting hafi
orðið í gjafsóknarveitingu hælisleit
enda sem skulu sendir burt á grund
velli Dyflinnarreglugerðarinnar.
Einnig segir að gjafsókn sé einungis
veitt ef gjafsóknarnefnd mæli með
því. Við mat á gjafsókn er grund
vallar skilyrði að málstaður umsækj
anda gefi nægilegt tilefni til máls
höfðunar.
Í vikunni fengu þrír hælisleitendur
synjun um gjafsókn sem lögmaður
þeirra, Katrín Oddsdóttir, sagði afar
óvenjulegt enda hefði verið þrýst á
hana af meðal annars Rauða kross
inum að taka málin að sér.
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Vinsamleg borg
fyrir börn og unglinga
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Hjálmar Sveinsson, Halldóra Hrólfsdóttir
skipulagsfræðingur, Dagný Bjarnadóttir
landslagsarkitekt og Trausti Jónsson
tómstunda- og félagsmálafræðingur taka
til máls en þau hafa öll reynslu og þekkingu
á því að móta umhverfið út frá þörfum
barna og ungmenna.
Spurt verður: Hvernig má auka leikgleðina
í borgarrýminu? Hvernig á að skipuleggja
skemmtilega, skapandi og örugga borg
fyrir börn?
Fundurinn er bæði fyrir fag- og áhugafólk
um vinsamlega borg og gott skipulag.
Allir velkomnir, kaffihúsastemming og
rjúkandi kaffi á könnunni.
Hvernig má skipuleggja borg fyrir börn
og unglinga? – er spurning sem glímt
verður við í fundarröð sem umhverfis- og
skipulagssvið Reykjavíkurborgar stendur
fyrir ásamt Hjálmari Sveinssyni, formanni
umhverfis- og skipulagsráðs.
Sagt hefur verið að borg sem er vinsamleg
börnum sé jafnframt góð fyrir alla aðra.
Aðbúnaður barna og unglinga er því gott
viðmið í borgum.
Fundur þriðjudaginn 10. nóvember kl. 20 á Kjarvalsstöðum
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
Þvottavél
WM 14K267DN
Tekur mest 7 kg.
Með íslensku stjórnborði
og íslenskum leiðarvísi.
1400 sn./mín. Orkuflokkur A+++.
15 mín. hraðþvottakerfi.
Við hönnun vélarinnar hefur
verið leitast við að gera hana
mjög stöðuga og hljóðláta
(„antiVibration Design“).
Sjálfhreinsandi þvottaefnishólf.
Tilboðsverð:
Fullt verð: 109.900 kr.
87.900 kr.
Ariel fljótandi þvottaefni
fylgir með öllum
Siemens þvottavélum.
Ekki stefnubreyting að hafna gjafsókn
Einstaklingsbundið mat fer ætíð fram vegna mögulegrar gjafsóknar. Kærunefnd útlendingamála er sjálfstæð stjórnsýslunefnd.
Vinnumarkaður Öllum vinnustöðum
er skylt að gera áætlun um aðgerðir til
að sporna við einelti, kynferðislegri og
kynbundinni áreitni og ofbeldi. Eygló
Harðardóttir, félags og húsnæðismála
ráðherra, hefur sett nýja reglugerð þess
efnis.
Samkvæmt lögum um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum
er öllum vinnustöðum skylt að gera
áhættumat. Í nýju reglugerðinni er með
skýrum hætti kveðið á um að við gerð
slíks áhættumats skuli einnig greina
áhættuþætti eineltis, áreitni og ofbeldis.
Í frétt á vef velferðarráðuneytisins
segir Eygló setningu reglugerðar
innar mikilvægan áfanga og vonast
til að betur verði tryggt að tekið sé
skipulega og faglega á ofantöldum
vandamálum. – ebg
Skylda að hafa áætlun
gegn einelti og áreitni
Eygló Harðardóttir,
félags- og hús-
næðismálaráð-
herra
Víetnam Bandarísk stjórnvöld hafa
birt Fríverslunarsamning Kyrrahafs
ríkjanna (TPP), sem undirritaður
var í síðasta mánuði.
Meðal þeirra víðtæku áhrifa, sem
samningurinn í aðildarríkjunum
tólf hefur, er að kommúnistastjórn
in í Víetnam hefur fallist á réttindi
verkafólks til að mynda stéttarfélög
og efna til verkfalla.
Bandaríska dagblaðið The New
York Times skýrir frá þessu.
Samningurinn felur annars í sér
niðurfellingu flestra tolla og við
skiptahindrana milli ríkjanna tólf,
sem samtals ná yfir 40 prósent af
hagkerfi heimsins.
Barack Obama Bandaríkjafor
Víetnam leyfir verkföll
Fríverslunarsamningi Kyrrahafs-
ríkjanna hefur verið harðlega mótmælt
víða um heim. Fréttablaðið/EPa
Ef ég verð sendur burt
frá Íslandi, þá mun ég
fyrirfara mér. Ég mun hoppa
út um gluggann.
Iz El Din Mouhammed, hælisleitandi
seti stærði sig í gær meðal annars af
mikilvægi samningsins fyrir réttindi
verkafólks í ríkjunum tólf. – gb
iz El Din kom til
Íslands fyrir ári og
hefur átt við alvar-
legt þunglyndi að
stríða.
Fréttablaðið/VilHElm
7 . n ó V e m b e r 2 0 1 5 l a u G a r D a G u r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð