Fréttablaðið - 07.11.2015, Qupperneq 30
Fótbolti Undirbúningurinn fyrir EM
í Frakklandi er nú formlega hafinn en
í gær var valinn landsliðshópurinn
fyrir fyrstu æfingaleikina, sem verða að
öllum líkindum alls átta talsins áður en
lokakeppnin hefst í júní. Ísland mætir
Póllandi og Slóvakíu síðar í mán-
uðinum en það verður ungt íslenskt
landslið sem mætir þessum sterkum
þjóðum í þeim leikjum.
Landsliðið skiptist í tvo hópa. Annars
vegar leikmenn 26 ára og eldri sem voru
lykilmenn í nýliðinni undankeppni EM
og hins vegar yngri hópinn sem hefur
að langmestu leyti staðið fyrir utan.
Aðeins tveir leikmenn í liðinu eru yfir
þrítugu.
„Við hefðum viljað taka þessa ungu
leikmenn inn í hópinn miklu fyrr og
oftar. En staðan í hópnum og mikilvægi
leikja hefur komið í veg fyrir það,“ segir
Heimir en það þótti ekki mikil ástæða
til að hrista upp í landsliðshópnum á
milli leikja í síðustu undankeppni, enda
velgengni íslenska liðsins mikil.
„Við völdum stöðugleikann fram yfir
að skoða leikmenn. Við höfum verið
mjög ánægðir með hópinn sem við
höfum verið með en metum það svo að
nú sé rétti tíminn til að sýna mönnum
að þeir eiga enn möguleika á að komast
í hópinn fyrir lokakeppnina.“
Vantaði ekki unga menn í liðið
Kynslóðabilið í leikmannahópi Íslands
er afar skýrt. Í hópnum eru tólf leik-
menn fæddir 1989 eða fyrr sem eiga
samtals að baki 360 leiki. Þá eru ellefu
leikmenn fæddir 1990 eða síðar sem
eiga samtals 63 leiki – þar af eiga sókn-
armennirnir Kolbeinn Sigþórsson 30
og Jón Daði Böðvarsson sautján.
Heimir segir að frammistaða
Íslands í nýliðinni undankeppni
sýni að það hafi ekki vantað leik-
menn úr síðari hópnum í íslenska
landsliðið.
„Ef við horfum til framtíðar þá er gott
að setja nýja leikmenn inn í okkar leik-
kerfi og leyfa þeim að kynnast lands-
liðsumhverfinu. Það er gott að geta yngt
liðið upp þegar tækifæri gefst en lands-
liðið hefur hingað til alls ekki verið of
gamalt.“
Landsliðið var einnig valið nú með
það í huga að ekki geta allir gefið kost
á sér í æfingaleikina í janúar. Þá munu
liðinu aðeins standa til boða leikmenn
sem spila á Íslandi og hinum Norður-
löndunum. Af þeim ástæðum eru leik-
menn eins og Hörður Björgvin Magnús-
son, sem spilar með Cesena á Ítalíu, og
Hjörtur Hermannsson hjá PSV í Hol-
landi í liðinu nú. Það eru því fleiri leik-
menn sem spila á Norðurlöndunum
sem ekki voru valdir nú en fá líklega
tækifærið í janúar.
Skýrari mynd í mars
Enn liggur ekki fyrir hvaða liðum Ísland
mætir eftir áramót en Heimir segir að
reikna megi með að í leikjunum í mars
verði komin ákveðin mynd á þann hóp
sem fer á EM.
„Í mars fáum við bara fimm æfingar
með leikmönnum og tvo leiki. Þá þurf-
um við að vera með nokkuð góða mynd
af því hvaða leikmenn við ætlum með
til Frakklands. Við erum því að hvetja
menn til að taka framförum eins fljótt
og mögulegt er og standa sig eins vel og
hægt er með sínum félagsliðum.“
Hann segir að það sé stór hópur leik-
manna sem komi til greina fyrir EM
í Frakklandi og að það verði vel fylgst
með þeim í vetur.
„Við viljum að þessi hópur sé sem
stærstur og þess vegna veljum við þenn-
an hóp í dag. Við viljum að hann stækki
enn frekar og batni.“ eirikur@365.is
Enginn öruggur
með sæti á EM
Níu leikmenn fá nú tækifæri til að sýna sig og sanna
með landsliðinu í æfingaleikjum gegn Póllandi og
Slóvakíu en ungur leikmannahópur var valinn í gær.
7 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 l A U G A r D A G U r30
Vestsjælland, Danmörku
Aldrei spilað á Íslandi
20 árA
0 landsleikir
Frederik Schram
cesena, Ítalíu
Síðast með Fram á Íslandi
24 árA
2 landsleikir
hörður BjörgVin
magnúSSon
Vålerenga, Noregi
Síðast með Keflavík á Íslandi
20 árA
2 landsleikir
elíaS már ÓmarSSon
aik, Svíþjóð
Síðast með KR á Íslandi
24 árA
2 landsleikir
haukur h. haukSSon
giF Sundsvall, Svíþjóð
Síðast með Val á Íslandi
25 árA
4 landsleikir, 1 mark
rúnar már
SigurjÓnSSon
lokeren, Belgíu
Síðast með Breiðabliki á Íslandi
22 árA
1 landsleikur
SVerrir i. ingaSon
Breiðabliki
20 árA
0 landsleikir
oliVer SigurjÓnSSon
PSV, Hollandi
Síðast með Fylki á Íslandi
20 árA
0 landsleikir
hjörtur
hermannSSon
norrköping, Svíþjóð
Síðast með Keflavík á Íslandi
22 árA
0 landsleikir
arnÓr i. trauStaSon