Fréttablaðið - 07.11.2015, Page 30

Fréttablaðið - 07.11.2015, Page 30
Fótbolti Undirbúningurinn fyrir EM í Frakklandi er nú formlega hafinn en í gær var valinn landsliðshópurinn fyrir fyrstu æfingaleikina, sem verða að öllum líkindum alls átta talsins áður en lokakeppnin hefst í júní. Ísland mætir Póllandi og Slóvakíu síðar í mán- uðinum en það verður ungt íslenskt landslið sem mætir þessum sterkum þjóðum í þeim leikjum. Landsliðið skiptist í tvo hópa. Annars vegar leikmenn 26 ára og eldri sem voru lykilmenn í nýliðinni undankeppni EM og hins vegar yngri hópinn sem hefur að langmestu leyti staðið fyrir utan. Aðeins tveir leikmenn í liðinu eru yfir þrítugu. „Við hefðum viljað taka þessa ungu leikmenn inn í hópinn miklu fyrr og oftar. En staðan í hópnum og mikilvægi leikja hefur komið í veg fyrir það,“ segir Heimir en það þótti ekki mikil ástæða til að hrista upp í landsliðshópnum á milli leikja í síðustu undankeppni, enda velgengni íslenska liðsins mikil. „Við völdum stöðugleikann fram yfir að skoða leikmenn. Við höfum verið mjög ánægðir með hópinn sem við höfum verið með en metum það svo að nú sé rétti tíminn til að sýna mönnum að þeir eiga enn möguleika á að komast í hópinn fyrir lokakeppnina.“ Vantaði ekki unga menn í liðið Kynslóðabilið í leikmannahópi Íslands er afar skýrt. Í hópnum eru tólf leik- menn fæddir 1989 eða fyrr sem eiga samtals að baki 360 leiki. Þá eru ellefu leikmenn fæddir 1990 eða síðar sem eiga samtals 63 leiki – þar af eiga sókn- armennirnir Kolbeinn Sigþórsson 30 og Jón Daði Böðvarsson sautján. Heimir segir að frammistaða Íslands í nýliðinni undankeppni sýni að það hafi ekki vantað leik- menn úr síðari hópnum í íslenska landsliðið. „Ef við horfum til framtíðar þá er gott að setja nýja leikmenn inn í okkar leik- kerfi og leyfa þeim að kynnast lands- liðsumhverfinu. Það er gott að geta yngt liðið upp þegar tækifæri gefst en lands- liðið hefur hingað til alls ekki verið of gamalt.“ Landsliðið var einnig valið nú með það í huga að ekki geta allir gefið kost á sér í æfingaleikina í janúar. Þá munu liðinu aðeins standa til boða leikmenn sem spila á Íslandi og hinum Norður- löndunum. Af þeim ástæðum eru leik- menn eins og Hörður Björgvin Magnús- son, sem spilar með Cesena á Ítalíu, og Hjörtur Hermannsson hjá PSV í Hol- landi í liðinu nú. Það eru því fleiri leik- menn sem spila á Norðurlöndunum sem ekki voru valdir nú en fá líklega tækifærið í janúar. Skýrari mynd í mars Enn liggur ekki fyrir hvaða liðum Ísland mætir eftir áramót en Heimir segir að reikna megi með að í leikjunum í mars verði komin ákveðin mynd á þann hóp sem fer á EM. „Í mars fáum við bara fimm æfingar með leikmönnum og tvo leiki. Þá þurf- um við að vera með nokkuð góða mynd af því hvaða leikmenn við ætlum með til Frakklands. Við erum því að hvetja menn til að taka framförum eins fljótt og mögulegt er og standa sig eins vel og hægt er með sínum félagsliðum.“ Hann segir að það sé stór hópur leik- manna sem komi til greina fyrir EM í Frakklandi og að það verði vel fylgst með þeim í vetur. „Við viljum að þessi hópur sé sem stærstur og þess vegna veljum við þenn- an hóp í dag. Við viljum að hann stækki enn frekar og batni.“ eirikur@365.is Enginn öruggur með sæti á EM Níu leikmenn fá nú tækifæri til að sýna sig og sanna með landsliðinu í æfingaleikjum gegn Póllandi og Slóvakíu en ungur leikmannahópur var valinn í gær. 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 l A U G A r D A G U r30 Vestsjælland, Danmörku Aldrei spilað á Íslandi 20 árA 0 landsleikir Frederik Schram cesena, Ítalíu Síðast með Fram á Íslandi 24 árA 2 landsleikir hörður BjörgVin magnúSSon Vålerenga, Noregi Síðast með Keflavík á Íslandi 20 árA 2 landsleikir elíaS már ÓmarSSon aik, Svíþjóð Síðast með KR á Íslandi 24 árA 2 landsleikir haukur h. haukSSon giF Sundsvall, Svíþjóð Síðast með Val á Íslandi 25 árA 4 landsleikir, 1 mark rúnar már SigurjÓnSSon lokeren, Belgíu Síðast með Breiðabliki á Íslandi 22 árA 1 landsleikur SVerrir i. ingaSon Breiðabliki 20 árA 0 landsleikir oliVer SigurjÓnSSon PSV, Hollandi Síðast með Fylki á Íslandi 20 árA 0 landsleikir hjörtur hermannSSon norrköping, Svíþjóð Síðast með Keflavík á Íslandi 22 árA 0 landsleikir arnÓr i. trauStaSon
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.