Brautin - 15.12.1957, Page 10
10
BRAUTIN
Þrír látnir tónsnillingar
Jólablað Brautarinnar birtir að
þessu sinni myndir og stutt æviágrip
þriggja heimsfrægra listamanna, sem
látizt hafa á þessu ári. Eru það
ítalski hljómsveitarstjórinn heims-
frægi Arturo Toscanini, finnska tón-
skáldið Jean Sibelius, sem margir
telja mesta tónskáld þesSarar aldar,
og ítalski tenórsöngvarinn Benja-
mino Gigli, sem í áratugi hefur verið
frægasti tenórsöngvari heimsins og
sungið hefur sig inn í hug og hjörtu
milljóna víðs vegar um heim. Snilli-
gáfa mikilla listamanna á vissulega
mikinn þátt í að þoka mannkyninu
drjúgan spöl fram á leið til auk-
innar hamingju, fegurðar og full-
komnunar, og því er slíkra manna
skylt og ljúft að minnast með að-
dáun og þakklæti fyrir unnin afrek.
Arturo Toscanini
Hinn 16. janúar s.l. andaðist í
New York hinn heimsfrægi ítalski
hljómsveitarstjóri, Arturo Toscanini,
Toscanini.
sem talinn er hafa verið mikilhæf-
asti hljómsveitarstjóri vorra tíma.
Toscanini var fæddur í Parma á
ítalíu 25. marz 1867, og var hann
sonur fátæks klæðskera. Hann hafði
hina ítölsku hljómlist í blóðinu og
hóf tónlistarnám aðeins 9 ára gam-
all og stundaði nám í tónlistarskól-
anum í Parma frá 1876 til 1885 og
lagði stund á sellóleik sem sérgrein.
Vegna hinna einstæðu hæfileika
sinna naut hann ríflegra styrkja til
námsins, enda vöktu hæfileikar hans
þegar mikla athygli meðan hann
var við tónlistarskólann.
Frægð Toscaninis sem hljóm-
sveitarstjóra hófst þegar hann var
aðeins 19 ára gamall, en þá stjórn-
aði hann flutningi óperunnar „Aida“
í forföllum aðalhljómsveitarstjór-
ans, en sjálfur hafði Toscanini leikið
í þessari hljómsveit. Þetta var árið
1886 í Rio de Janeiro, og vann hann
sér frægð þegar á fyrsta kvöldinu.
Árið 1898 réðst hann # sem aðal
stjórnandi við Scala-óperuna í Míla-
nó, en frá 1907—1921 var hann
stjórnandi Metropolitan-óperunnar í
New York, og síðan aftur við Scala-
óperuna 1921—1929. Á árunum
1929—1936 stjórnaði Toscanini New
York filharmónísku hljómsveitinni,
og um skeið hljómsveit í Bayreuth
í Þýzkalandi. Árið 1937 stofnaði
hann NBC-sinfóníuhljómsveitina,
National Broadcasting Corporation,
og var hann stjórnandi hennar til
1951, auk þess sem hann stjórnaði
sem gestur flestum frægustu hljóm-
sveitum víðs vegar um heim, og
ferðaðist víða. Síðustu 25 ár ævi
sinnar var Toscanini búsettur í
Bandaríkjunum, en kom þó til Italíu
nokkrum sinnum eftir síðari heims-
styrjöldina, fyrst 1946. Kveðjuhljóm-
leika sína hélt hann með hljómsveit
NBC, 4. apríl 1954, þá 84 ára að
aldri, en eftir það lagði þessi mikli
meistari hljómlistarinnar taktsprot-
ann á hilluna.
Jean Sibelius
lézt að heimili sínu Jávenpáá
skammt frá Helsingfors að kvöldi
hins 20. september s.l., 92 ára að
aldri.
Sibelius. s
Jean Sibelius var fæddur í Tá-
vastehus í Finnlandi 8. desember
1865. Hann lagði í fyrstu stund á
lögfræði, en tónlistin tók brátt hug
hans allan; hann hætti lögfræðinámi
óg innritaðist í' tónlistarskólann í
Helsingfors rúmlega tvítugur að
aldri. Síðar stundaði hann fram-
haldsnám í Berlín og Vínarborg.
Sibelius lagði mjög að sér við tórt-
listarnámið, og aflaði hann sér
mikillar þekkingar og æfingar í list