Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Blaðsíða 14
14 FÓKUS - VIÐTAL 13. desember 2019
Þegar hasarinn minnkar hjá mér vil ég helst
bara slökkva á símanum mínum og fara að
sofa.“
Hann segir áreiti símans í nútímaöld
vera slíkt að stök skilaboð geti rústað sál-
inni hvenær sem er. „Ég fæ ekki þessa þörf
fyrir að deila myndum af kaffibolla, sjálf-
um mér glöðum eða vinahittingi. Því mið-
ur búum við á þannig tíma að allt snýst um
„líkendafjölda“. Síminn þinn og samfélags-
miðlar eru fíkniefni. „Líkendatölur“ gefa
fólki endorfín og það kemur þessi stöðuga
þörf fyrir að kíkja á símann, meira að segja
í miðjum samræðum við annað fólk. Þessi
hegðun er alls staðar og hún hræðir mig,“
segir hann.
„Ég á mér sjálfur sögu af fíkniefnavanda
og ég skammast mín ekkert fyrir að játa
það. Þótt símafíknin sé meira huglæg en
hefðbundin eiturlyfjafíkn meira bundin
við líkamann, þá er leiðin út ekkert ósvip-
uð. Það er erfitt að sleppa þessum hlutum,
því margt af þessu er einfaldlega grafið í
rútínu fólks. Það er hægt að brjótast út úr
þessum vítahring. Það er erfitt, en tilfinn-
ingin er ólýsanleg þegar þú tekur sjálfur
stjórn á eigin lífi í stað þess að vera háður
lífi annarra, eða efnum.
Með símanum okkar og neysluhyggju
almennt kemur upp þorsti í sálarró en við
verðum aldrei almennilega nærð, sama
hvað við kaupum, sama hvað við kíkjum oft
á símana. Þetta er þorsti sem aldrei er hægt
að svala. Við leitum endalaust að hugarró,
með hinu og þessu, á meðan þetta blasir
allt við fyrir framan okkur. Við eigum ekki
að leita að tilgangi í gegnum aðra eða hluti.
Við eigum að leita að lausnum út frá okk-
ur sjálfum.
Eitt „like“ á ekki roð í þá tilfinningu að
finna fyrir ást frá barni, eða heimsókn til
ömmu og afa, bara almenn bein samskipti
við fólk sem þér er annt um. Við þurfum að
losa okkur frá hvaða fíkn sem virkar sem
hemill á okkur og viðurkenna að það sé
vandamál.“
„Stóri G“ og leitin að sálinni
Að sögn Hafsteins hefur samband þeirra
Julians verið fíkn líkust enda skilgrein-
ir listamaðurinn sig sem mikinn ástarfíkil
á þeim tíma og sérstaklega undir lokin.
Þegar Hafsteinn fór að þrá tilbreytingu,
meiri rútínu og stöðugleika í lífið í kjölfar
sambandsslitanna tók við nýr áhugi sem
hann gat ómögulega séð fyrir.
„Það má segja að ég hafi skipt út fíkn-
inni fyrir ást mína á Jesú Kristi og Guði,
eða „Stóra G“ eins og ég kalla hann. Þetta
er besta fíkniefni sem til er,“ segir Haf-
steinn og rekur kveikiþráðinn til Seattle.
Þar átti hann vinkonu, 76 ára gamla, sem
bjó í sama húsi og hann og hann annaðist
mikið. Til að leiða hugann frá sambands-
slitunum þáði Hafsteinn boð hennar um
að koma með henni í messu. Áður en langt
um leið var Hafsteinn orðinn dolfallinn og
nú gengur hann til kirkju á hverjum sunnu-
degi, undantekningarlaust.
„Þegar ég fer í kirkju og ljósið skín inn
um gluggann á rétta augnablikinu, beint
í augun á þér, og presturinn syngur, kem-
ur tilfinning sem er erfitt að lýsa. Hún er
svo gefandi og yndisleg. Í messu upplifi ég
sál mína gífurlega frjálsa og mér tekst að
sleppa takinu á öllu sem angrar mig. Það
skiptir engu hvort maður trúi hinu eða
þessu. Þetta snýst um að skyggnast inn í
eigin sál,“ segir Hafsteinn.
Hann segir Hallgrímskirkju hafa átt
sérstakan sess í hjarta hans undanfarna
mánuði, en þess má geta að Hafsteinn fékk
boð á dögunum um að vera messuþjónn
í þeirri kirkju. Hann varð himinlifandi við
að fá þetta boð og segir það vera gífurlegan
heiður, en sunnudagurinn 15. desember
markar fyrsta skiptið þar sem hann fær að
taka þátt í athöfn í Hallgrímskirkju. Von-
andi verður það hin fyrsta af mörgum, seg-
ir hann.
En hvað er Guð, eða Stóri G?
„Ég hef ekki hugmynd, en ég veit að Guð
er allt saman, hann er aflið sem býr í okkur
öllum. Hvað sem hann er, þá sigrast hann
á mínu myrkri stöðugt. Myrkrið er nefni-
lega ekkert í samanburði við það hversu
dásamlegt og dýrmætt líf þitt er,“ segir Haf-
steinn.
Hafði áhrif á tónlistina
„Það eru stórkostleg forréttindi og heiður
að kynna sér þær upplýsingar sem Jesús
Kristur hafði um Guð, og hvaða tilgangur
það er sem okkur fólkinu er ætlaður, hvers
vegna við erum hér. Þetta snýst ekki um
að vera samkynhneigður, svartur, hvítur,
uppi, niðri, ríkur, fátækur, búandi hér eða
þar. Þvert á móti geturðu verið afar auðug-
ur sem fátæk manneskja, en þá svo lengi
sem þú ert frjáls í sálinni og meðtekur alla
þá umhyggju og fegurð sem er í kringum
þig. Ég myndi vilja gefa allt sem ég á ef það
þýddi að ég gæti hugsað vel um aðra.“
Hafsteinn hefur ekki setið auðum hönd-
um þegar kemur að tónlist. Síðastliðin ár
hefur hann unnið stíft að glænýrri plötu.
Ekki er enn vitað hvenær platan kemur út
en á henni verður samansafn ýmissa verka
sem tónlistarmaðurinn hefur unnið að síð-
an 2012. Hann segir ást sína á Guði hafa
haft taumlaus áhrif á lagasmíðar hans að
undanförnu, jafnvel ómeðvitað.
„Ég hlusta reglulega eftir skilaboðum
eða merkjum sem berast til mín á ýmsa
vegu, sem ég álít vera Guð að tala við mig.
Ég veit líka fyrir víst að Guð sér um mig.
Þegar ég hrundi niður um daginn, þá vissi
ég að það yrði í lagi með mig. En ég lifi mínu
lífi þannig núna að ég hlusta á orð Guðs en
fylgi braut Jesú Krists,“ segir Hafsteinn og
tekur fram að fólk sem lifir einungis fyrir
sig sjálft, án þess að gefa nokkuð til baka,
sé hluti af vandamáli heimsins um þessar
mundir.
„Sá sem ekki hefur þekkingu á sjálfum
sér, öðlast enga þekkingu. En sá sem þekk-
ir sjálfan sig hefur vakið hjá sér skilning um
dýpri merkingu allra hluta.“ n
„Mér leið eins og
stöðugt væri verið
að dæma mig.“
M
Y
N
D
: A
Ð
SE
N
D