Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Side 21
Sérblað
13. desember 2019
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
SECURITAS:
Öryggishnappur Securitas –
Öryggi þegar á reynir
Öryggishnappur Securitas er hjálpartæki sem eykur öryggi fólks innan veggja heimilisins,
en með notkun hans er fljótlegt og
auðvelt að gera viðvart ef eitthvað
kemur upp á.
Öryggi öllum stundum
Að hlakka til morgundagsins og
horfa björtum augum á það sem
er framundan er ofarlega í hugum
allra. Flest langar okkur til að eiga
ánægjulegt líf með ástvinum,
ættingjum og vinum. Það að horfa
á börnin sín og barnabörn vaxa
og verða að fullgildum meðlimum
samfélagsins veitir okkur ómælda
ánægju og hugarró. Íbúum á besta
aldri á Íslandi mun á næstu árum
fjölga mikið. Hluti af þessum hóp
verður líkamlega vel á sig kominn
og mun geta notið lífsins til fulls
þrátt fyrir hækkandi aldur. Þessi
virki hópur vill hafa áhrif á sitt
líf, áhugamál og samfélagsleg
verðmæti. Hluti þessa hóps mun
þurfa meiri aðstoð en vill á sama
hátt og aðrir geta haft áhrif á líf sitt.
„Það er sama hvar einstaklingar
eru staddir á lífsleiðinni, hvort
viðkomandi er orðinn aldraður eða
býr við skert lífsgæði, þá vilja allir
vera öruggir á heimilum sínum,“
segir Elsa Einarsdóttir, sölustjóri
Securitas. „Vegna líkamlegra
breytinga sem fylgja hækkandi aldri,
skertri heilsu eða hreyfifærni skerðist
jafnvægi fólks og viðbrögð verða
seinni. Aðstandendur þessa hóps
hafa oft verulega áhyggjur af fólkinu
sínu, jafnvel þeim sem eru við góða
heilsu. Þeir vilja draga úr óhöppum
og slysum og auka öryggi síns fólks
sem frekast er unnt. Með aðgát og
fyrirbyggjandi aðgerðum á heimilinu
er hægt að draga úr slysum og
óhöppum eldri einstaklinga og þeirra
sem búa við skerta getu,“ segir Elsa.
Öryggishnappur Securitas
„Öryggishnappurinn gagnast vel
þegar að hnappþegi dettur, veikist
skyndilega eða þarf aðstoð vegna
líkamlegra einkenna án tafar. Um
leið og ýtt er á hnappinn opnast
talsamband við sérþjálfað starfsfólk
á stjórnstöð Securitas,“ segir Elsa.
Viðbrögð frá öryggishnöppum
eru flokkuð sem forgangsboð og
þeim er sinnt án tafar. Öryggisverðir
Securitas bregðast við boðunum,
koma á staðinn, grípa til þeirra
aðgerða sem þörf er á hverju
sinni. Öryggisverðir Securitas eru
vel þjálfaðir í öllum viðbrögðum,
margir þeirra hafa menntun
sjúkraflutningamanna sem gerir
þá sérstaklega hæfa til að aðstoða
hnappþega í neyð. Þessi sérstaka
þjálfun öryggisvarða Securitas er
lykilatriði fyrstu mínútur eftir að
kallað hefur verið á aðstoð, rétt og
fljótt viðbragð hefur mikil áhrif á
þann tíma sem endurhæfing tekur
til að komast aftur af stað ef óhapp
á sér stað. Þetta viðbragð getur í
einhverjum tilvikum skilið milli lífs og
dauða. „Securitas er með 12 bíla í
hverfum borgarinnar, sem allir eru
til taks allan sólarhringinn alla daga
ársins,“ segir Elsa. „Það er alltaf stutt
í næsta bíl og öryggisvörð sama
hvar hnappþeginn býr og því er
hjálpin fljót að berast.“
Öryggishnappurinn er borinn
um háls eða um úlnlið eftir því hvað
hverjum og einum þykir þægilegt.
Tæknimenn Securitas setja allan
búnað upp og kenna á hnappinn.
„Það er afar einfalt að nota
hnappinn, ýtt er á hnappinn og boð
sendast til stjórnstöðvar Securitas
og þá myndast talsamband
stjórnstöðvar við hnappþegann,“
segir Elsa. Hnappþeginn getur gert
vart við sig og upplýst um hvort
aðstoðar er þörf eða ekki. Ef að ýtt er
á hnappinn og ekki næst samband
við hnappþega er tafarlaust sendur
öryggisvörður á staðinn.
Aukið öryggi með öryggiskerfi
Með öryggishnappnum er hægt að
setja upp einfalt öryggiskerfi sem
eykur enn á öryggi hnappþega og
aðstandenda hans. Reykskynjarar
ásamt vatnsskynjurum eru oft
nauðsynleg öryggistæki hjá þeim
sem glíma við t.d. minnisleysi og
elliglöp. Einnig er hægt að setja upp
hreyfiskynjara sem nema óeðlilega
umgengni í húsnæðinu og láta vita
þegar slíkt gerist. Öryggiskerfi sem
bjóða upp á app fylla aðstandendur
ró um að allt sé í lagi hjá ættingjum
sínum. Kostnaðurinn við slík
öryggiskerfi er sáralítill þegar horft
er til gagnsemi þeirra og öryggis
þeirra sem maður elskar.
Lyklar að heimilum hnappþega
eru geymdir í öruggum geymslum
í stjórnstöð Securitas. Þegar
öryggisvörður fer í útkall til
hnappþega er ástand hnappþega
metið, kallað er á sjúkrabíl ef þess
gerist þörf, haft er samband við
ættingja og hnappþega sinnt eins
alúðlega og hægt er.
Hnappþegar Securitas eru
heimsóttir tvisvar sinnum á ári. Í þeim
heimsóknum er gengið úr skugga
um að allur búnaður virki sem skyldi
og upplýsingar um breytingar á
heilsufari og því tengdar eru skráðar.
Þessar upplýsingar nýtast vel ef
hnappþegi þarf að fara á sjúkrahús,
þá verður öll meðferð skilvirkari og
hægt er að bregðast skjótt við í
alvarlegum atvikum.
Sjúkratryggingar Íslands og
öryggishnappur
Sjúkratryggingar Íslands niðurgreiða
mánaðargjöld vegna öryggishnapps
hjá þeim sem uppfylla ákveðin
skilyrði. Í þeim tilfellum sendir læknir
viðkomandi einstaklings læknisvottorð
til Sjúkratrygginga. Eftir samþykkt
niðurgreiðslunnar velur hnappþegi
þjónustufyrirtæki. Securitas á farsælan
feril í þjónustu og aðstoð við hnappþega
í tugi ára, og þjónustar í dag á þriðja
þúsund hnappþega. Hnappþegar
Securitas eru afar ánægðir með
þjónustuna og viðbragðið.
Öryggishnappurinn er þó
ekki eingöngu fyrir þá sem njóta
niðurgreiðslu Sjúkratrygginga
Íslands. Allir geta fengið
öryggishnapp sem þess óska.
Það er einfalt að sækja um
öryggishnapp, það er eitt símtal til
Securitas sem tekur við beiðninni og
meðhöndlar hana þar til að hnappurinn
hefur verið settur upp hjá viðkomandi.
Í öruggum höndum með Securitas
Með öryggishnapp Securitas er þeim
sem eldri eru eða þeim sem ekki
njóta fullrar færni, veittur farsæll
tími, tími sem þeir geta notið með
fjölskyldu, ættingjum og vinum, tími
til að njóta afmælisdaganna og að
vera með elskunni sinni heima hjá
sér. Öryggishnappur Securitas er
öruggt skjól þegar á reynir.
Elsa ásamt hópi öryggisráðgjafa sem sinna
málefnum hnappþega / Mynd: Eyþór Árnason