Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Síða 22
Sérblað 13. desember 2019KYNNINGARBLAÐ
Ungbarnasund á Reykjalundi
í Mosfellsbæ og líkamsrækt í
Ásgarði í Garðabæ
Ungbarnasund er eitt það fallegasta sem foreldri og barn geta upplifað
saman snemma á ævi barnsins,“
segir Ólafur Ágúst Gíslason,
íþrótta- og ungbarnasundkennari.
„Ungbarnasund er skemmtileg leið
til þess að tengjast ungbörnum
sínum og auka öryggi þeirra í
vatni. Í mörgum tilfellum hefur
ungbarnasundið fyrirbyggjandi
áhrif á vatnshræðslu. Enn
fremur hjálpar það foreldrum að
umgangast börnin á öruggan hátt
í vatninu og auka traust beggja
aðila, foreldris og barns.
Þetta er raunar eins og fyrsta
líkamsrækt barnsins. Vatnið gefur
öðruvísi eftir en andrúmsloftið og
veitir meira viðnám sem orsakar
meiri áreynslu fyrir barnið, eykur
styrk þess og jafnvægi. Við
áreynsluna eykst hjartsláttur
og öndun og því styrkjast bæði
hjarta og lungu við hreyfinguna.
Við þekkjum það sjálf að eftir
góða æfingu eða áreynslu líður
okkur betur og líkamleg þreyta
er alltaf góð. Vatnið örvar líka
barnið, eykur einbeitingu og
styrkir ónæmiskerfið. Útkoman er
í langflestum tilfellum að barnið
sefur og borðar betur og líður
almennt betur. Ávinningurinn er
eiginlega með ólíkindum,“ segir
Ólafur. Námskeiðin eru haldin
tvisvar í viku, á þriðjudögum og
föstudögum, í Reykjalundi.
Óskastund með fjölskyldunni
„Ég hef haldið námskeiðin í hartnær
18 ár hér heima en ég byrjaði í Ósló
vorið 2000 og á Reykjalundi 2001.
Það myndast alltaf ánægjuleg
stemning í sundinu. Fæstir eru að
drífa sig heim eftirá heldur staldra
við, fara í pottinn með börnin og
spjalla saman. Við það myndast
kunningsskapur þar sem fólk miðlar
reynslu sinni, en oft er fólk svo að
koma með annað og þriðja barn í
námskeiðin því það tókst svo vel með
það fyrsta,“ segir Ólafur.
Ávinningur af ungbarnasundi:
• Jákvæð áhrif á barnið sem
einstakling.
• Styrkir ónæmiskerfið,
hreyfiþroska, líkamsvitund og
sjálfsímynd.
• Áhersla á leik, samspil foreldra
og barna, líkamssnertingu og
augnsamband.
• Eykur einbeitingu, aga og
aðlögunarhæfni.
• Foreldrar kynnast öðrum
foreldrum og börnin venjast
samskiptum við aðra.
• Ánægjuleg og hamingjurík stund
án utanaðkomandi truflunar.
• Ungbarnasundið er einstakt og
gott örvunarumhverfi á fyrstu
mánuðum barnsins.
• Óskabyrjun í upphafi sálar- og
líkamsþroska barna.
• Samkvæmt rannsóknum stuðlar
ungbarnasund 1–2 í viku að betri
svefni, matarlyst og betra skapi
meðan á námskeiðinu stendur.
Líkamsrækt B&Ó
Ólafur er menntaður íþróttakennari
og starfaði í Garðaskóla í Garðabæ
frá 1980–2018. Frá 1989 hefur hann
verið með námskeið við Líkamsrækt
B&Ó í Ásgarði í Garðabæ. „Við
erum með þetta saman, ég og
Elín Birna Guðmundsdóttir, sem
er íþróttakennari að mennt. Birna
sér um að kenna konunum sem
eru 70 talsins. Sjálfur er ég með
líkamsræktarnámskeið fyrir um 70
karla á mjög breiðu aldursbili. Sá
yngsti er 25 og sá elsti er 83 ára,“
segir Ólafur og bætir við að það
séu þrennir feðgar saman í öðrum
hópnum!
30 ára afmæli B&Ó. Ólafur og
Birna við fána líkamsræktarinnar,
29. apríl, 2019.
„Tímarnir samanstanda af
fjölbreyttum líkamsæfingum. Hver
og einn ræður sínum hraða. Tímarnir
byggja á upphitun, lóðaæfingum,
tvímenningsæfingum eða fjölbreyttri
stöðvaþjálfun í hálftíma þar sem er
af ýmsu skemmtilegu að taka. Einnig
spilum við körfubolta. Karlarnir
komast oft í mikið keppnisskap við
það og er fátt skemmtilegra en
að sjá unglingana brjótast fram
hjá þeim. Í lokin er teygt vel á og
hangið í rimlunum. Flestir skella
sér svo í laugina eða heita pottinn
til að spjalla og ræða úrslitin í
körfuboltanum. Þeir allra hörðustu
fara í þann kalda eftir á,“ segir
Ólafur.
Stöðvaþjálfun hjá körlunum í B&Ó.
Félagsskapurinn skiptir máli
Námskeiðin snúast ekki eingöngu
um líkamlega áreynslu heldur finnst
Ólafi mikilvægt að virkja félagslega
þáttinn. „Þetta er 50% líkamsrækt
og 50% félagsskapur sem gerir þetta
að miklu meira en bara líkamsrækt.
Við höldum stórskemmtilega
haustfagnaði, förum saman í
jeppaferðir og gönguferðir. Þá
hefur skapast sú hefð að halda
helgistund í Maríuhellum í Heiðmörk
á aðventunni eftir klukkustundar
gönguferð,“ segir Ólafur. „Í apríl
héldum við svo upp á 30 ára afmæli
Líkamsræktarinnar á Laugarbakka
með um 100 manns.“
Helgistund í Maríuhellum.
Ungbarnasund Óla Gísla
fer fram í innisundlaug
endurhæfingarmiðstöðvarinnar að
Reykjalundi. Næsta námskeið byrjar
þriðjudaginn 14. janúar.
Líkamsrækt B&Ó er staðsett
íþróttamiðstöðinni Ásgarði í
Garðabæ og hefst vornámskeiðið
mánudaginn 6. janúar. Tímar hjá
körlunum eru á mán. og mið.
Allar nánari upplýsingar má nálgast á
likamsraekt.is
Sími: 847-2916
Netfang: oligisla@hotmail.com og
oligisla@ungbarnasundolagisla.is
Mynd: Eyþór Árnason
Mynd: Eyþór Árnason