Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Síða 27
KYNNING
LEÐURVERKSTÆÐI REYKJAVÍKUR:
Frábærar jólagjafir úr
ekta, handunnu leðri
Sögu Leðurverkstæðisins Reykjavík má rekja aftur til ársins 1937 þegar opnað
var leðurverkstæði í bakhúsi
að Víðimel 35 í Vesturbænum.
Sigurjón Kristensen er annar
eigenda fyrirtækisins í dag en
hinn er Arne Friðrik Karlsson. Í dag
er Leðurverkstæðið staðsett að
Síðumúla 33 í glæsilegu húsnæði.
Sigurjón kynntist leðuriðjunni
ungur að árum í Vesturbænum:
„Ég er eiginlega alinn upp
þarna að Víðimel 35 þar sem
leðurverkstæðið var í bakhúsi og
var alltaf að skottast þarna inni
á verkstæðinu. Það var stjúpafi
minn sem rak þetta allt til ársins
1982 en þá tók sonur hans við.
Ég og Arne Friðrik keyptum síðan
fyrirtækið af þeim hjónum árið
2014,“ segir Sigurjón.
Íslensk framleiðsla
Tímamót urðu í sögu fyrirtækisins
þegar opnuð var leðurvöruverslun
að Síðumúla 33 þar sem verkstæðið
er til húsa í dag. „Þetta var alltaf
framleiðslufyrirtæki sem seldi í
verslanir og heildsölu. Við gerum
það eitthvað áfram en leggjum núna
áherslu á okkar eigin verslun. Við
erum að breikka vöruúrvalið en núna
eru flottar leðursvuntur, til dæmis
grillsvuntur, mjög vinsælar. Þær henta
líka vel fyrir veitingastaði. Þá er gott
úrval af leðurbeltum og axlaböndum.
Þetta eru frábærar jólagjafir handa
karlmönnum, á fínu verði, úr úrvalsleðri
og allt unnið hér á verkstæðinu.
Við erum líka með ýmsar aðrar
vörur, til dæmis fínni belti, svokölluð
full-grain-belti, þar sem leðrið er
eins og það kemur af skepnunni,
fjögurra millimetra þykkt og
handunnið. Þetta er gott að gefa
í jólagjöf en ekki er þó hægt að fá
það í lengdum heldur kaupir sá
sem gefur gjöfina leðurreimina og
sylgjuna en þiggjandi gjafarinnar
kemur síðan með hana til mín og
ég klæðskerasníð beltið á hann á
meðan hann bíður.“
Starfsemin er afar fjölbreytt
en leður er rauði þráðurinn. Þeir
sem hafa áhuga á að skoða
fallegar jólagjafir úr ekta leðri
ættu að kíkja í Leðurverkstæðið
Reykjavík að Síðumúla 33. Einnig
er forvitnilegt að skoða heimasíðu
leðurverkstæðisins, lvr.is.
Nánari upplýsingar má finna á lvr.is.
Facebook: Leðurverkstæðið
Reykjavík.
Leðurverkstæðið Reykjavík er til
húsa að Síðumúla 33.
Myndir: Eyþór Árnason