Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Qupperneq 37
FÓKUS 3713. desember 2019
Ef jólasveinarnir þrettán væru frægir einstaklingar
Sjötti jólasveinninn, Askasleikir, var alveg dæmalaus.
Þegar fólkið setti askana fyrir kött og hund, var hann
slunginn að ná þeim og sleikja á ýmsa lund. Þetta köll-
um við Megas á góðum degi. Ef askarnir eru ekki faldir,
er honum að mæta.
Bjarni Benediktsson ber sig að jafnaði með stóískri ró
sem aðeins reyndir stjórnmálamenn hafa náð fullkomn-
um tökum á. Þó koma af og til upp tilfelli þar sem hefur
fokið í manninn, núna síðast þegar hann var sakaður
um lögbrot á Alþingi. Auk þess þótti Hurðaskellir svo-
lítið klúr, og fer þá ekki á milli mála að IceHot1 taki við
þessari sveinkahúfu með húmor og sjálfsmeðvitund.
Russell Crowe elskar Skyrið okkar, því fær hann að
fljóta með hinum vitleysingunum. Crowe vakti mikla
athygli á mjólkurvörunni þegar hann var staddur á Ís-
landi við tökur á stórmyndinni Noah árið 2012. Sagði
hann svo á Twitter að hann væri orðinn vel háður
skyri. Þetta steinliggur.
Á eldhúsbita sat hann Bjúgnakrækir í sóti og reyk og át
þar hangið bjúga sem engan sveik. Við leyfum okkur
að ætla að sambærilegan áhuga á bjúgum megi rekja
til grínarans Steinda Jr. Að hans sögn eru að hámarki
fjórir bitar á bak við eina pylsu. Trúlega gæti hann þá
slátrað bjúgum á sambærilegum hraða ef sósan væri
rétt.
Þegar kemur að listinni að vera grályndur að sjá á
meðan skoðað er á bak við lokaðan glugga, er einn
Íslendingur sem ber höfuð og herðar yfir aðra val-
möguleika. Á hinni víðfrægu ljósmynd þar sem Vigdís
Hauksdóttir horfir með sorgarsvip á trylltan íslenskan
lýðinn fyrir utan Alþingi má segja að stjórnmálakonan
hafi komið sér í prýðilega æfingu fyrir þann jólasvein
sem flestum bregður við að sjá á stjái.
Ellefti jólasveinninn er Siggi Hall, sá sem aldrei fær
kvef. Hann býr yfir heljarstóru nefi og verður léttur eins
og reykur þegar lyktina af góðu laufabrauði finnur. Þú
kemst heldur ekki langt í veitingageiranum án þess að
nefið og bragðlaukarnir standi fyrir sínu.
Um ár hvert kemur Ketkrókur á Þorláksmessu til
bæja í þeim tilgangi að ná sér í hangikjötslæri. Hann
þrammar dátt og hann ýmist upp á sitt lag, en hvaða
stórsniðuga jólarétt hann Jói Fel matreiðir síðan úr
þessum lærissneiðum er aðeins eitthvað sem hann
getur til um sagt. Ef giska má verður hangikjötið senni-
lega penslað og hægeldað með glæsibrag.
Til gamans má geta þess að skemmtikrafturinn Sveppi
hefur gætt sér á óteljandi ógeðsdrykkjum og margvís-
legum matartengdum áskorunum í þágu skemmtunar.
Því má gera ráð fyrir að kerti ættu ekki að vera bragð-
laukum þessa manns ofviða, en þjóðin veit sömuleið-
is öll að maðurinn kann að skemmta krökkum og fær
Sveppi þar af leiðandi heiðurinn á því að hringja inn
jólin á aðfangadegi.
Askasleikir
Hurðaskellir
Skyrgámur
Bjúgnakrækir
Gluggagægir
Gáttaþefur
Ketkrókur
Kertasníkir