Fréttablaðið - 12.04.2017, Blaðsíða 78
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Hildur Þórisdóttir býr á Seyðisfirði með eiginmanni sínum og syni. Hún unir sér vel í bænum og vill hvergi annars
staðar búa. Hildur er með meist-
aragráðu í mannauðsstjórnun en
í bænum er ekki um auðugan garð
að gresja í atvinnumálum. „Ég ákvað
að búa mér til mín eigin tækifæri og
byggja upp rekstur. Ég stofnaði Eyr-
ina, vefverslun og býð upp á vörur
fyrir heimilið,“ segir Hildur frá.
Hún nýtir sér staðsetningu sína
og fær vörur fluttar frá Danmörku
með Norrænu. „Já, þó að við búum
úti á landi þá eru kostir við staðsetn-
inguna. Viðbragðstíminn er stuttur
vegna nálægðarinnar við Norrænu
og ég get fljótt brugðist við ef ein-
hverjar vörur eru uppurnar á lager.“
Hildur er sannfærð um að framtíð
vefverslunar sé björt á Íslandi. „Vef-
verslun dafnar á landsbyggðinni.
Það er þægilegt fyrir fólk að versla
á netinu og fá sendar vörur heim til
sín.“
„Ég vil ekki fórna þeim lífsgæðum
sem felast í því að búa í góðu sam-
félagi hér á Seyðisfirði. Til að fá starf
við hæfi þá hefði ég þurft að flytja
til borgarinnar. Ég ákvað frekar að
gera mitt til þess að leggja til sam-
félagsins, segir Hildur en hún hefur
mikinn áhuga á samfélagsmálum,
hefur setið í bæjarstjórn og fræðslu-
nefnd Seyðisfjarðarkaupstaðar og
barist fyrir bættum samgöngum á
landsbyggðinni.
Baráttan er þess virði. Náttúran og
nærsamfélagið hér eru dýrmæt, og
frelsið sem ég upplifi hér, það finn
ég ekki annars staðar, “segir Hildur.
kristjana@frettabladid.is
Skapar sér tækifæri á
Seyðisfirði
Hildur Þórisdóttir ákvað að láta ekki deigan síga og skapar sér sín eigin tæki-
færi sem nýtast öðrum líka vel.
Hildur selur líka litla og skemmtilega
muni fyrir börn.
Vörur frá Broste eru til sölu í net-
verslun Hildar.
Frelsið sem Hildur
upplifir á Seyðisfirði
varð til þess að hún
ákvað að skapa sér
sín eigin tækifæri.
Atvinnutækifærin
voru fá og hún stofn-
aði vefverslun og
nýtir sér nálægðina
við Norrænu.
ÉG ÁKVAÐ AÐ BÚA
MÉR TIL MÍN EIGIN
TÆKIFÆRI OG BYGGJA UPP
REKSTUR
Heilsársþjónusta
vetur, sumar, vor & haust
554 1989
gardlist.is
Tunguhálsi 7, 110 Reykjavík
gardlist@gardlist.is
Þegar kemur að garðþjónustu erum við hjá Garðlist ávallt til
þjónustu reiðubúin, allan ársins hring. Við leggjum áherslu á að
svara öllum fyrirspurnum og pöntunum samdægurs og höfum
samband eftir að fagmenn okkar hafa lokið verki til að tryggja að
allt sé eins og það á að vera. Garðsláttur, trjáklippingar,
beðahreinsun, stubbatæting, þökulagning ofl.
Járn & Gler hf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin
104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is
Bjóðum upp á sjálfvirkan
hurðaopnunarbúnað,
hringhurðir, hurðir og
gluggakerfi ásamt
uppsetningu og viðhaldi
á búnaði.
Áratuga reynsla.
www.regalo.is
Regalo ehf IcelandRegalofagmenn
Veldu með hjartanu
100% vegan hárvörur frá Maria Nila.
PURE VOLUME línan okkar inniheldur
B5 vítamín og er sérstaklega framleidd
fyrir þá sem leita eftir aukinni lyftingu
og styrk. Maria Nila Care línan inni-
heldur Colour Guard Complex, blöndu
af virkum innihaldsefnum sem vinna
saman að því að veita hámarks vörn
fyrir lit hársins og gljá þess. Blandan
tryggir einnig að vörurnar vernda hárið
fyrir hita.
Maria Nila fæst
á öllum betri hárgreiðslustofum
Fríða Rut Heimisdóttir
Hárgreiðslumeistari
1 2 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R42 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð