Fréttablaðið - 12.04.2017, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 12.04.2017, Blaðsíða 49
Flestar einnota drykkjarvöru- umbúðir úr plasti sem landsmenn nota á hverjum degi eru svokall- aðar PET flöskur. PET, sem stendur fyrir polyethy- lene terephthalate, var fyrst þróað árið 1941 fyrir þræði í efnavöru (flís). Upp úr 1960 var byrjað að nota það sem umbúðir utan um filmur og um 1970 til framleiðslu á drykkjarvöruumbúðum. Framleiðsluferli PET-flösk- unnar er nokkuð flókið. Efnið sjálft kemur í stórum stæðum en fyrst þarf að brjóta það niður í smærri einingar. Næst er efnið brætt og sprautað í þar til gerð mót sem kallað er „preform“. Það er síðan sett í annað mót þar sem það er hitað svo að hægt sé að blása það hægt út þannig að hin eiginlega plastflaska myndast. Þótt flestir tengi PET við drykkjarvöruumbúðir þá er það endurunnið í margar ólíkar vörur. Þannig er meirihluti PET endur- unninn í þræði sem síðan eru notaðir í framleiðslu á flísvörum á borð við teppi, föt og umbúðir. PET-merkingu á umbúðum má þekkja á þremur örvum í þríhyrn- ingi með númerinu 1 í miðjunni. PET-flöskur Það eru nokkuð margir nytjamarkaðir á höfuðborgarsvæðinu þar sem kennir ýmissa grasa. Þekktastur er Góði hirðirinn en þar er hægt að gera góð kaup á ýmsum munum til heimilisins. Venjulega er mjög gott úrval í Góða hirðinum en vissulega fer það eftir dögum. Þá þekkja flestir Rauðakrossbúðirnar sem selja fatnað, skó og fleira. Rauðakross- búðirnar eru nokkrar. Annar nytjamarkaður, Von og bjargir, er við Grensásveg. Þar er sömuleiðis gott úrval húsgagna og muna fyrir heimilið. Nytjamark- aður Samhjálpar er í Ármúla 11 og tekur við ýmsum munum, en þó ekki stórum húsgögn- um. Markaðurinn er fjáröflun fyrir Samhjálp. Nytjamarkaður ABC við Víkurhvarf í Kópa- vogi er sömuleiðis fjáröflunarfyrirtæki. Þar eru til sölu föt, skór, gjafavara, heimilistæki og fleira. Allur hagnaður rennur til ABC barna- hjálpar. Basarinn, nytjamarkaður, er í Austurveri við hlið Grensáskirkju. Þar er hægt að fá notuð föt, skó, borðbúnað, leikföng og fleira. Þá er Fjölskylduhjálp Íslands með nytjamarkað að Iðufelli 11 þar sem er mikið úrval af fatnaði, skóm og leikföngum svo eitthvað sér nefnt. Flesta nytjamarkaði er hægt að finna á Facebook. Nytjamarkaðir með gott úrval Töluverð verðmæti liggja í drykkj- arumbúðum en útflutningsverð- mæti þeirra er um 200 milljónir króna á ári samkvæmt upplýsing- um frá Endurvinnslunni. Mest fæst fyrir ál og glært plast úr PET-efni sem eru algengustu plastumbúð- irnar. Ekki er hægt að skila öllum drykkjar umbúðum til flösku- móttöku Endurvinnslunnar. Um leið og plastið er til dæmis litað, minnkar verðmætið og lítið þýðir að fara með slíkt plast í Endurvinnsluna. Betra er að fara með aukaumbúðir í plastgáma á grenndarstöðvum sem sjá um að koma þeim í endurvinnslu. Glerkrukkur og gler, annað en flöskur, á einnig að fara með í flokkun sveitarfélaga. Þar sem drykkjarumbúðir eru verðmæti þarf að huga að því að fara vel með þær, til dæmis rýrist verðmætið þegar umbúðir eru skítugar eða fullar af sígarettum og öðru rusli. Hvaða umbúðir fara hvert? B ra n d en b u rg | sí a Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa@sorpa.is Kynntu þér nýjan flokkunarvef SORPU, flokkid.sorpa.is. Þar finnur þú allar upplýsingar um flokkun úrgangs, gjald- skyldu og móttökustöðvar okkar. Verum fremst í flokki. Við færum þér vefslóð sem þú getur ekki hafnað Allt um flokkun á flokkid.sorpa.is FÓLK KYNNINGARBLAÐ 9 M I ÐV I KU DAG U R 1 2 . A P R Í L 2 0 1 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.