Fréttablaðið - 12.04.2017, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 12.04.2017, Blaðsíða 22
FÓTBOLTI Fyrir rétt rúmum mánuði var Swansea City með jafn mörg stig og Bournemouth og Leicester City og ofar í töflunni en bæði Crystal Palace og Hull City. Eftir erfiða mán- uði fyrir áramót leit út fyrir að Gylfi og félagar væru á góðri leið með að bjarga sæti sínu í deildinni. Stiga- og markaþurrð Hlutirnir eru hins vegar fljótir að breytast í boltanum og uppkoma Crystal Palace og Hull City síðustu vikur hefur slegið í takt við stiga- og markaþurrð velska liðsins. Eftir 1-0 tap fyrir West Ham á laugardaginn er Swansea aftur komið niður í fallsæti. Crystal Palace vann Arsenal 3-0 á mánu- dagskvöldið og hefur fengið átta fleiri stig en Swansea í síðustu fimm leikjum. Sömu sögu er að segja af Hull þrátt fyrir tap fyrir Manchester City um helgina. Verður alltaf keyptur í sumar Gylfi þarf nú örugglega ekki að hafa miklar áhyggjur af því að spila ekki í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabil hvernig sem fer enda mikill áhugi hjá nokkrum úrvalsdeildar- liðum að kaupa hann í sumar. Eftir frábæran tíma hjá Swansea væri aftur á móti afar leiðinlegt að skilja við liðið sem Championship-lið. Það hefur verið algjört stiga- og markahallæri hjá Swansea síðustu vikur og þar hefur vantað það sem hefur haldið liðinu á floti í vetur eða sköpun frá Gylfa Þór Sigurðssyni. Gylfi kom að marki í sjö leikjum í röð frá 21. janúar til 11. mars og Swansea vann fjóra af þeim og komst alla leið upp í fimmtánda sætið eftir sigur á Englandsmeist- urum Leicester City 12. febrúar. 729 markalausar mínútur Gylfi hefur nú ekki skorað í átta leikjum í röð, samtals 729 mínútur, og íslenski landsliðsmaðurinn hefur enn fremur ekki komið að marki í síðustu fjórum leikjum Swansea. Gylfi kom síðast að marki í 2-1 tapi fyrir Hull 11. mars síðastliðinn. Hann hefur nú spilað í 360 mínút- ur án þess að skapa mark fyrir sitt lið. Síðan er liðinn einn mánuður og á þessum 30 dögum hefur staða Swansea versnað mikið. Gylfi hefur komið með beinum hætti að 19 af 37 mörkum Swan- sea-liðsins í ensku úrvalsdeildinni í vetur með því annaðhvort að skora Gylfi Þór Sigurðsson svekktur eftir enn einn leikinn sem Swansea mistókst að skora í. Velska liðið þarf sárlega á mörkum frá íslenska landsliðsmanninum að halda á lokasprettinum. NORDICPHOTS/GETTY Örlög Svananna ráðin án marka Gylfa Swansea City er aftur komið niður í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni eftir tap fyrir West Ham um síðustu helgi. Liðið hefur aðeins skorað tvö mörk og fengið eitt stig út úr síðustu fimm leikjum sínum í deildinni og þar hefur tilfinnanlega vantað eitt. 51% Gylfi Þór hefur skorað eða gefið stoðsendingu í 19 af 37 deildarmörkum Swansea. Gylfi á árinu 2017 Janúar 3. - Crystal Palace 2-1 sigur 14. - Arsenal 0-4 tap 21. - Liverpool 3-2 sigur 31. - Southampton 2-1 sigur Febrúar 5. - Manchester City 1-2 tap 12. - Leicester 2-0 sigur 25. - Chelsea 1-3 tap 4. - Burnley 3-2 sigur 11. - Hull 1-2 tap 18. - Bournemouth 0-2 tap Apríl 2. - Middlesbrough 0-0 jafntefli 5. - Tottenham 1-3 tap 8. - West Ham 0-1 tap 729 MÍNÚTUR ÁN MARKS 360 MÍNÚTUR ÁN STOÐSENDINGAR STOÐSENDING STOÐSENDING STOÐSENDING STOÐSENDING STOÐSENDING MARK MARK MARK (8) eða gefa stoðsendingu (11) og það þarf því ekki að koma mikið á óvart að liðið hefur ekki skorað mikið í þessum undanförnum fjór- um leikjum. Swansea er aðeins með eitt stig og eitt mark í þessum fjórum síðustu leikjum þar sem Gylfi hefur ekki náð að búa til mark. Á sama tíma hefur liðið farið úr sextánda sæti niður í fallsæti. Það sem er mesta áhyggjuefnið er að Swansea hefur ekki verið að ná í mörg stig í innbyrðisleikjum á móti liðum í neðri hluta deildarinnar eins og Hull City, Bournemouth, Middlesbrough og West Ham. Missa stigin til fallbaráttuliða Uppskeran úr leikjum á móti þeim undanfarinn mánuð eru aðeins eitt stig sem kom í markalausu jafntefli við Middlesbrough. Hinir leikirnir hafa tapast og það boðar ekki gott að bæði missa af stigum og færa um leið helstu keppninautunum mikil- væg stig í innbyrðisbaráttu liðanna um að vera áfram í ensku úrvals- deildinni 2017-18. Næsti leikur Gylfa og félaga er á móti Watford um komandi helgi. Þar fær Gylfi tækifæri til að slá tvær flugur í einu höggi – binda enda á þessa fyrrnefndu bið og ná um leið að koma að marki í fyrsta sinn á móti Watford í ensku úrvalsdeild- inni. Eitt er víst – Swansea þarf lífs- nauðsynlega á því að halda. ooj@frettabladid.is 1 2 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R22 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.