Fréttablaðið - 12.04.2017, Page 80

Fréttablaðið - 12.04.2017, Page 80
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Mig langar að tala aðeins um orðatiltæki. Einn tiltekinn málshátt sem er mér hugleikinn og ég vona að sem flest ykkar fái í páskaeggi. Illu er best aflokið. Ég hef nefnilega þurft að takast á við alls konar kvíðvænleg verkefni upp á síðkastið. Í síðustu viku mætti ég til dæmis löðrandi sveitt og skjálfandi í leghálsskoðun. Ég var búin að fresta tímanum tvisvar og var að íhuga að gera það í þriðja skipti. Ég held mig hafi aldrei langað jafn ofsalega lítið að boða komu mína á nokkurn stað. Það eina sem ég þurfti svo að gera var að klæða mig í pastel- bleikan slopp, valhoppa berrössuð inn til vinalegs hjúkrunarfræðings, glenna mig svolítið í sundur og svo, PLONK, fjórum mínútum síðar var ég komin út. Þessu illa, því var aflokið. Eftir á að hyggja var þetta svo stórkostlega lítið mál að það er eiginlega hlægilegt. Og léttirinn sem fylgdi í kjölfarið, þegar stöngullinn með gúmmíbursta á endanum nam ekki lengur við leg- hálsinn, var guðdómlegur. Málið er sko, held ég, að þetta asnalega sem við höfum áhyggjur af og gerum að risastóru skrímsli í huganum áður en við förum að sofa á kvöldin – þetta er oftast bara smotterí. Það versta við leghálsskoðun eða að flytja einhverjum erfið tíðindi eða að taka skot af grænum heilsusafa sem svíður í hálsinn er hreinlega aðdragandinn. Og hann búum við til sjálf. Illu er best aflokið. Og svo er það ekki einu sinni neitt sérstaklega illt. Kannski meira að segja bara frekar fínt. Hið illa og hið aflokna Kristínar Ólafsdóttur BAKÞANKAR Í HÖLLINNI 16. SEPTEMBER MIÐASALA Á TIX.IS/PALLI *Verð miðast við WOW Basic aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. BRÍETARTÚNI 13 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS BERLÍN f rá 9.999 kr. T í m a b i l : j ú n í – j ú l í Willkommen! * Fljúgðu til Berlínar með WOW air. Þessi stærsta borg Þýska- lands hefur verið kölluð listahöfuðborg heimsins og ekki að ósekju. Þar finnur þú fjölskrúðugt mannlíf, ógrynni listasafna, kósí kaffihús og tónlist á hverju götuhorni. Ekki klikka á Currywurst og ískaldri ölkollu með. Berlin ist wunderschön! OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ENGIHJALLA, VESTURBERGI OG ARNARBAKKA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.