Fréttablaðið - 12.04.2017, Page 80
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Mig langar að tala aðeins um orðatiltæki. Einn tiltekinn málshátt sem er
mér hugleikinn og ég vona að sem
flest ykkar fái í páskaeggi.
Illu er best aflokið.
Ég hef nefnilega þurft að takast á
við alls konar kvíðvænleg verkefni
upp á síðkastið. Í síðustu viku
mætti ég til dæmis löðrandi sveitt
og skjálfandi í leghálsskoðun. Ég
var búin að fresta tímanum tvisvar
og var að íhuga að gera það í þriðja
skipti. Ég held mig hafi aldrei
langað jafn ofsalega lítið að boða
komu mína á nokkurn stað.
Það eina sem ég þurfti svo að
gera var að klæða mig í pastel-
bleikan slopp, valhoppa berrössuð
inn til vinalegs hjúkrunarfræðings,
glenna mig svolítið í sundur og
svo, PLONK, fjórum mínútum
síðar var ég komin út. Þessu illa,
því var aflokið.
Eftir á að hyggja var þetta svo
stórkostlega lítið mál að það er
eiginlega hlægilegt. Og léttirinn
sem fylgdi í kjölfarið, þegar
stöngullinn með gúmmíbursta á
endanum nam ekki lengur við leg-
hálsinn, var guðdómlegur.
Málið er sko, held ég, að þetta
asnalega sem við höfum áhyggjur
af og gerum að risastóru skrímsli
í huganum áður en við förum að
sofa á kvöldin – þetta er oftast
bara smotterí.
Það versta við leghálsskoðun
eða að flytja einhverjum erfið
tíðindi eða að taka skot af grænum
heilsusafa sem svíður í hálsinn er
hreinlega aðdragandinn. Og hann
búum við til sjálf.
Illu er best aflokið. Og svo er það
ekki einu sinni neitt sérstaklega
illt. Kannski meira að segja bara
frekar fínt.
Hið illa og hið
aflokna
Kristínar
Ólafsdóttur
BAKÞANKAR
Í HÖLLINNI
16. SEPTEMBER
MIÐASALA Á TIX.IS/PALLI
*Verð miðast við WOW Basic aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. BRÍETARTÚNI 13 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
BERLÍN f rá
9.999 kr.
T í m a b i l : j ú n í – j ú l í
Willkommen!
*
Fljúgðu til Berlínar með WOW air. Þessi stærsta borg Þýska-
lands hefur verið kölluð listahöfuðborg heimsins og ekki að
ósekju. Þar finnur þú fjölskrúðugt mannlíf, ógrynni listasafna,
kósí kaffihús og tónlist á hverju götuhorni. Ekki klikka á
Currywurst og ískaldri ölkollu með. Berlin ist wunderschön!
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ENGIHJALLA,
VESTURBERGI
OG ARNARBAKKA