Fréttablaðið - 12.04.2017, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 12.04.2017, Blaðsíða 53
iPhone 7 Jet Black / 128 GB 99.990 kr. stgr Fullt verð: 134.990 kr. TAKMARKAÐ MAGN Í BOÐI GLÆSILEGUR KAUPAUKI AÐ VERÐMÆTI 15.000 KR. - Mánaðaráskrift af Fjölvarpi Veröld - Inngöngutilboð í GSM áskrift hjá 365 - Tvö nýjustu tímaritin Það borgar sig að vera hjá 365 Á FRÁBÆRU VERÐI 365.is Sími 1817 Tilboðið gildir í verslun 365, Skaftahlíð 24 og útibúi okkar í Kringlunni. Frank Brosens, stofnandi og eigandi Taconic Capital, í viðtali sem birtist í Fréttablaðinu 20. mars síðastliðinn, á sterka stöðu hagkerfisins og þann mikla viðsnúning sem hefði orðið á undanförnum árum. „Þegar þú lítur á tölur um hagvöxt, mikinn við- skiptaafgang, ört vaxandi gjaldeyris- forða og litlar skuldir ríkisins þá er efnahagsstaða Íslands á pari við það sem best gerist hjá nokkru öðru ríki í heiminum. Efnahagsumhverfið er því mjög gott og núna þegar Ísland er að brjótast út úr höftum virðist það ætla að vaxa jafnvel hraðar en við bjuggumst við,“ sagði Brosens. Hann væri því þeirrar skoðunar, með hliðsjón af styrkleika hag- kerfisins, að gengi krónunnar myndi haldast sterkt og sjóðurinn vilji því fjárfesta í henni. Stór í vaxtamunarviðskiptum Taconic Capital hefur nú þegar notið góðs af gengisstyrkingu krón- unnar á síðustu misserum en sjóður- inn var á meðal þeirra sem stóðu að baki samtals um 80 milljarða inn- flæði gjaldeyris á árunum 2015 og 2016 vegna fjárfestinga í íslenskum ríkisskuldabréfum. Langsamlega umsvifamestu sjóðirnir í þeim við- skiptum, þar sem aðdráttaraflið var ekki hvað síst að hagnast á nærri 4 prósenta vaxtamun Íslands við útlönd, voru fjárfestingasjóðir í stýr- ingu Eaton Vance og BlueBay Asset Management. Fjárfesting sjóða á vegum Taconic Capital í íslenskum ríkisskuldabréfum á þessum tíma nam hins vegar á bilinu 5 til 10 milljörðum, samkvæmt heimildum Markaðarins. Þeir sjóðir sem keyptu ríkis- skuldabréf í gegnum nýfjárfestinga- leið Seðlabankans á seinni helm- ingi ársins 2015, skömmu eftir að stjórnvöld kynntu áætlun sína um losun fjármagnshafta, hafa hagnast verulega á fjárfestingu sinni. Þann- ig mætti taka sem dæmi að ef Taco- nic Capital hefur keypt fyrir um tíu milljarða í löngum ríkisskuldabréf- um – RB31 – í ágúst 2015, jafnvirði um 68 milljóna evra á þáverandi gengi, gæti sjóðurinn selt þau bréf 800 milljarðar eru heildareignir sem vogunarsjóðurinn Tacon- ic Capital er með í stýringu. Taconic Capital var eini fjárfest- ingasjóðurinn sem var á meðal stærstu kröfuhafa bæði Glitnis og Kaupþings þegar ráðgjafar stjórn- valda kynntu fulltrúum slitabúa gömlu bankanna vorið 2015 áform um að koma fram með 39 prósenta stöðugleikaskatt á eignir búanna. Vogunarsjóðurinn var í kjölfarið í hópi þeirra kröfuhafa sem áttu fulltrúa á fundum sem fóru fram með framkvæmdahópi stjórnvalda um losun hafta þar sem þeim var gerð grein fyrir ófrá- víkjanlegum stöðugleikaskilyrðum sem slitabúin þyrftu að uppfylla vildu þau forðast stöðugleika- skattinn. Sá sem sótti þá fundi fyrir Taconic Capital var Keith Magliana, sjóðstjóri í London, en hann – ásamt Frank Brosens, eiganda sjóðsins – eru sagðir hafa gegnt lykilhlutverki í því að fá alla kröfu- hafa bankanna til að samþykkja að lokum stöðugleikaskilyrði stjórnvalda. Það átti einkum við í tilfelli Glitnis en fyrsta tilboð sem kröfuhafar þess settu fram hljóð- aði upp á afhendingu krónueigna að fjárhæð um 70 milljarðar, sam- kvæmt heimildum Markaðarins. Niðurstaðan varð hins vegar að lokum sú að kröfuhafar féllust á að gefa eftir krónueignir upp á um 230 milljarða, miðað við þáverandi bókfært virði, eða sem nam um fjórðungi heildareigna Glitnis. Þau tengsl sem Brosens hafði við eigendur vogunarsjóða sem voru einnig kröfuhafar bankanna, meðal annars Davidson Kempner, sem þá var stærsti kröfuhafi Glitnis, skiptu ekki hvað síst máli við að sannfæra þá um að réttast væri að ljúka uppgjöri slitabúanna í sátt við stjórnvöld í stað þess að fara dómstólaleiðina, að sögn þeirra sem þekkja vel til. Þar horfði Brosens meðal annars til þess að sjóðurinn væri í sterkri stöðu til að nýta sér þau fjárfestingatækifæri sem hann taldi vera fyrir hendi á Íslandi eftir losun hafta, eins og komið hefur á daginn. Taconic Capital hjálpaði við að skera á hnútinn Keith Magliana hefur stýrt fjárfestingum Taconic Capital á Íslandi síðustu ár. í dag og innleyst um 25 prósenta gengishagnað, eða sem nemur um 2,5 milljörðum. Þá væri hann að auki búinn að ávinna sér um einn milljarð króna í vaxtagreiðslur. Slík vaxtamunarviðskipti stöðvuðust hins vegar nánast alfarið í júní 2016 þegar Seðlabanki Íslands kynnti svonefnt fjárstreymistæki í því skyni að stemma stigu við of miklu skammtímainnflæði fjármagns. Seldi allt í skráðum félögum Taconic Capital hóf jafnframt á árinu 2016 að gera sig gildandi á íslenskum hlutabréfamarkaði með kaupum á bréfum í ýmsum skráðum félögum. Þannig átti sjóðurinn í árs- lok 2016 meðal annars hlutabréf í Reitum fasteignafélagi, Icelandair Group, Högum, Marel, Eik fasteigna- félagi og N1. Þrátt fyrir að sú fjár- festing hafi á þeim tíma samanlagt numið milljörðum króna þá voru kaup sjóðsins í hverju félagi fyrir sig ekki af þeirri stærðargráðu að þau skiluðu honum á lista yfir tutt- ugu stærstu hluthafa. Það sem af er þessu ári hefur sjóðurinn hins vegar selt öll bréf sín í skráðum félögum á Íslandi en samkvæmt lista yfir alla hluthafa fyrrnefndra félaga í lok síðustu viku, sem Markaðurinn hefur séð, hafa sjóðir Taconic Capi- tal losað um þá eignarhluti. Við staðfestingu nauðasamninga Glitnis í árslok 2015 var Taconic Capital á meðal tíu stærstu kröfu- hafa gamla bankans. Ári síðar var sjóðurinn búinn að stækka veru- lega hlut sinn en samkvæmt nýjum ársreikningi Glitnis HoldCo, eignar- haldsfélags sem var stofnað á grunni eigna slitabúsins, var Taconic Cap- ital orðið stærsti hluthafi félags- ins með liðlega 23 prósenta hlut. Miðað við áætlaðar heimtur hlut- hafa Glitnis má gera ráð fyrir að hlutur vogunarsjóðsins á þeim tíma hafi verið metinn á um 5 milljarða króna. Ólíkt Kaupþingi, en heildar- eignir þess námu um 400 milljörð- um í lok síðasta árs, hefur Glitnir umbreytt nánast öllum eignum sínum í reiðufé og greitt út til hlut- hafa og að óbreyttu verður því verk- efni að mestu lokið á þessu ári. Valdið í höndum Brosens Sá sem stýrir félaginu sem heldur utan um hlut Taconic Capital í Arion banka – og hefur þar með allt ákvörðunarvald um fjárfestingar þess – er Frank Brosens en hann er jafnframt á meðal endanlegra eig- enda að sjóðnum sem hefur keypt í bankanum. Áður en Brosens stofn- aði vogunarsjóðinn Taconic Capital árið 1999 hafði hann verið um tutt- ugu ára skeið hjá bandaríska fjár- festingabankanum Goldman Sachs, þar sem hann starfaði meðal annars um tíma náið með Robert Rubin og Larry Summers, sem síðar urðu báðir fjármálaráðherrar í stjórnar- tíð Bills Clinton. Brosens heimsótti Ísland síðast, samkvæmt heimildum Markaðarins, í júnímánuði 2016 þar sem hann var meðal annars gestur í boði bandaríska sendiráðsins ásamt ýmsum háttsettum embættismönn- um og áhrifafólki í efnahagslífinu. 48,8 milljarða borguðu vogunar- sjóðir og Goldman Sachs sam- tals fyrir tæplega 30 prósenta hlut í Arion banka. MARKAÐURINN 7M I Ð V I K U D A G U R 1 2 . A P R Í L 2 0 1 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.