Fréttablaðið - 14.03.2014, Blaðsíða 42
14. mars 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 26
MENNING
BOSS BOTTLED.
FRAGRANCE FOR MEN
THE NEW FRAGRANCE
FOR WOMEN
ILMDAGAR Í LYFJU
DAGANA 13.-16. MARS
20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM HUGO BOSS VÖRUM DAGANA 13.-16. MARS
Finndu þinn Hugo Boss ilm og fáðu
veglegan kaupauka frítt með*
*á meðan birgðir endast
Hátt í 150 fyrirlestrar í 37 mál-
stofum verða á hugvísindaþingi í
Háskóla Íslands í dag og á morgun.
Á þinginu verður allt mannlegt til
umfjöllunar. Frá tilfinningum til
staðreynda, fortíð til nútíðar og
frá tungumáli til hugsana. Fjallað
verður um söguskoðun valdhafa,
hið síbreytilega íslenska mál,
Biblíuna og búddisma svo eitthvað
sé nefnt.
Þingið er opið almenningi og
hefst klukkan 13 í dag í Aðalbygg-
ingu HÍ. Dagskráin er birt á hug-
vis.hi.is/hugvisindathing - gun
Allt mannlegt
til umfj öllunar
Fjölskyldusöngleikurinn Horn á
höfði verður sýndur í síðasta sinn
á sunnudaginn klukkan 13. „Nú
verður hann sendur upp í himna-
ríki sýninganna,“ segir Víðir Guð-
mundsson, einn þriggja leikara í
verkinu.
Víðir segir tæplega 80 sýningar
að baki fyrir rúmlega sjö þúsund
manns. „Sýningin er orðin ansi líf-
seig og margt búið að gerast í lífi
leikaranna á þessum tíma, meðal
annars hafa nokkur börn komið
undir!“
Horn á höfði eftir Berg Þór Ing-
ólfsson og Guðmund Brynjólfsson,
með tónlist eftir Villa Naglbít, var
frumsýnt í Grindavík 2009 og hlaut
strax frábærar viðtökur. Gagnrýn-
endur lofuðu sýninguna í hástert
og hún var valin besta barnasýning
ársins það ár. - gun
Send í himna-
ríki sýninganna
Íslenskar og erlendar stutt- og
heimildarmyndir verða sýndar
frítt í Nýheimum á Höfn í dag og
á morgun. Það er liður í hátíðinni
Reykjavík Shorts@Docs Festi-
val sem í þetta sinn þjófstart-
ar á Höfn en verður á dagskrá í
Reykjavík 3. til 9. apríl.
Fjórir sýningarflokkar verða í
Nýheimum. Þeir eru; Ungt fólk,
Konur um konur, Jaðaríþróttir og
Úr alfaraleið.
Auk þess verða umræður um
kvikmyndagerð á Kaffi Horninu
á morgun klukkan 15.
Lesendur Movie Maker Magaz-
ine völdu Reykjavík Shorts &
Docs Festival meðal fimm svöl-
ustu stuttmyndahátíða heims
nýverið. - gun
Festival á fl akk
MINNIR Á HORNAFJÖRÐ Sker eftir
Eyþór Jóvinsson er ein myndanna á
hátíðinni.
Á SVIÐINU Brátt heyrir sýningin Horn á
höfði sögunni til. MYND/JÓHANNA ÞORKELSDÓTTIR
„Ég var að læra í Berlín og þar var algengt að það
væru Matiné-tónleikar í hádeginu á sunnudögum.
Þá gat fólk farið í brönsj annað hvort fyrir eða
eftir. Þetta er því dálítið að evrópskri fyrirmynd,“
segir Arngunnur Árnadóttir, klarinettuleikari
og ljóðskáld, um hádegistónleika Kammersveitar
Reykjavíkur í Kaldalóni á sunnudaginn klukkan
12.15.
Þar er Schubert-oktettinn sem fluttur verður
en hann telst til merkustu kammerverka tónlist-
arsögunnar.
„Þetta er mjög glaðleg tónlist, létt og upplífg-
andi,“ segir Arngunnur og kveðst vera að spila
oktettinn í fyrsta skipti. „Mér hefur alltaf þótt
hann áhugaverður og fallegur og það hefur lengi
verið á óskalistanum að spila hann,“ segir hún.
Flutningurinn tekur nærri klukkustund, en býst
Arngunnur við að sveitin spili þetta mæta verk
oftar og víðar? „Það gæti verið. Hugmyndir eru
uppi um að spila hann í vor, eða að minnsta kosti
einhverja kafla úr honum á barnamenningarhátíð.“
gun@frettabladid.is
Létt tónlist og upplífgandi
Schubert-oktettinn verður fl uttur af Kammersveit Reykjavíkur á hádegistón-
leikum í Kaldalóni á sunnudag. Arngunnur Árnadóttir klarinettuleikari veit meira.
KLARINETTULEIKARINN Arngunnur
segir Schubert-oktettinn fullan af gáska.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI