Fréttablaðið - 14.03.2014, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 14.03.2014, Blaðsíða 20
14. mars 2014 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 20TÍMAMÓT Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, fósturbróðir, afi og langafi, ERLINGUR NORÐMANN GUÐMUNDSSON Hörðubóli, Dalabyggð, lést laugardaginn 8. mars. Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 17. mars kl. 13.00. Ragnhildur Beatrice Erlingsdóttir Sigurjón Hannesson Kristrún Erna Erlingsdóttir Baldur Kjartansson Guðríður Erlingsdóttir Stefán Hólmsteinsson Líneik Dóra Erlingsdóttir Guðmundur Erlingsson Ninna Karla Katrínardóttir Una Auður Kristjánsdóttir Hjalti Samúelsson barnabörn og langafabörn. Ástkær eiginmaður minn, yndislegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HAUKUR ÓLI ÞORBJÖRNSSON Skarðshlíð 40C, Akureyri, lést á heimili sínu að kvöldi sunnudagsins 2. mars í faðmi fjölskyldu sinnar. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir fá læknar og starfsfólk lyfjadeildar Sjúkrahúss Akureyrar og Heimahlynningar á Akureyri, fyrir yndislega umönnun og alúð. Guð blessi ykkur öll. Sigrún Ragnarsdóttir Ragnar Hauksson Hugrún Hjördís Sigurbjörnsdóttir Þorbjörg Hauksdóttir Valgeir Hauksson Halldóra F. Sverrisdóttir Sigurður Rúnar Hauksson afa- og langafabörn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, DÓRA INGVARSDÓTTIR Stapaseli 13, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 11. mars. Þórunn Ólafsdóttir Marteinn Sigurðsson Berglind Marteinsdóttir Ólafur Marteinsson Okkar ástkæra INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR frá Þiljuvöllum, Berufjarðarströnd, sem lést 7. mars sl., verður jarðsungin þriðjudaginn 18. mars kl. 13.00 frá Háteigskirkju. Kristín Snæbjörnsdóttir Fanngeir Sigurðsson Unnþór Snæbjörnsson Hlífar Már Snæbjörnsson Alda Snæbjörnsdóttir Emil S. Björnsson Þórður Viðar Snæbjörnsson Ásdís Auðunsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÞÓRHALLSDÓTTIR Skúlagötu 44, lést í faðmi fjölskyldunnar mánudaginn 10. mars. Sigurður Árni Sigurðsson Helga Guðbjörg Sigurðardóttir Þórður Ingason Sigríður Lovísa Sigurðardóttir Pétur Pétursson Hallveig Sigurðardóttir Sigurður Oddgeir Sigurðsson barnabörn og langömmubörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ODDNÝ SIGRÍÐUR NICOLAIDÓTTIR Hólabergi 82, Reykjavík, lést miðvikudaginn 5. mars. Útför hennar fer fram frá Fella- og Hólakirkju í Reykjavík, í dag, föstudaginn 14. mars, klukkan 15.00. Jónas Guðlaugsson Ingibjörg Jónasdóttir Gísli Ólafsson Nicolai Jónasson Ásta Bjarney Pétursdóttir Jónas G. Jónasson Jóhanna Vélaug Gísladóttir Guðlaugur Jónasson Guðrún Axelsdóttir Sigurður Jónasson Bjarnþóra María Pálsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. MERKISATBURÐIR 1800 Barnaba Chiaramonti verður Píus 7. páfi. 1828 Friðrik Sigurðsson, Agnes Magnúsdóttir og Sigríður Guð- mundsdóttir myrða Natan Ketilsson og Pétur Jónsson á Illuga- stöðum á Vatnsnesi og kveikja síðan í bænum. 1911 Kristján Jónsson verður ráðherra Íslands. Hann situr í embætti í rúmlega ár. 1950 Steingrímur Steinþórs- son verður forsætisráðherra og situr ríkisstjórn hans þar til í september 1953. 1964 Jack Ruby er sakfelld- ur fyrir að myrða Lee Harvey Oswald, meintan morðingja Kennedys, forseta Bandaríkjanna. 1967 Lík Johns F. Kennedy Bandaríkjaforseta er flutt til frambúðar í Arlington-kirkjugarð. 1969 Söngleikurinn Fiðlarinn á þakinu er frumsýndur í Þjóð- leikhúsinu. Verkið á eftir að njóta meiri vinsælda en nokkurt annað leikverk hafði notið fram að því. 1981 Skyndibitakeðjan Tommaborgarar er stofnuð í Reykjavík. 1987 Þyrla Landhelgisgæslunnar bjargar níu manns af Barðan- um sem hafði strandað við Dritvík á Snæfellsnesi. JOHN F. KENNEDY Þennan dag árið 1991 var „sexmenn- ingunum frá Birmingham“ sleppt úr fangelsi eftir að áfrýjunarréttur sýknaði þá af ákæru um morð á 21 manni. Paddy Joe Hill, Hugh Callaghan, Richard McIlkenny, Gerry Hunter, Billy Power og Johnny Walker höfðu setið 16 ár í fangelsi fyrir morðin þegar þeim var sleppt. Mennirnir voru handteknir árið 1974. Þeir höfðu yfirgefið Birmingham skömmu eftir að sprengjur sprungu í tveimur krám í miðbæ Birmingham. 21 lét lífið í sprengingunum og rúmlega 160 manns slösuðust. Mennirnir játuðu á sig verknaðinn í yfirheyrslum lögreglu en sögðu fyrir rétti að þeir hefðu gert það eftir að hafa verið barðir af lög- reglunni. Seinni tíma rannsókn á málinu leiddi í ljós að margt hafði misfarist í rann- sókninni og sönnunargögnum verið hagrætt og í ljósi þess var mönnunum sleppt lausum. Patrick Hill setti á fót þrýstihóp sem beitir sér fyrir rétti þeirra sem hafa verið fangelsaðir að ósekju. Árið 2012 taldi hópurinn að 4.000 manns í Bretlandi sætu saklausir í fangelsi. Kvikmyndin Í nafni föðurins var gerð eftir sögu sexmenninganna í kjölfar þess að þeir voru látnir lausir. ÞETTA GERÐIST 14. MARS 1991 Sexmenningunum frá Birmingham sleppt Te & kaffi stendur á miklum tímamót- um í ár og fagnar hvorki meira né minna en þrjátíu ára afmæli sínu. Af því tilefni opnaði fyrirtækið sitt tíunda kaffihús í Borgartúni 21a. „Við erum mjög stolt af nýja kaffihúsinu, það er mjög rúmgott og aðgengið er frábært,“ segir Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri kaffi- húsanna. Hann segir mikinn umgang vera á svæðinu í kring um nýja kaffihúsið. „Þetta er stórt vinnusvæði en við erum þó með mikið af bílastæðum. Þetta er klárlega aðgengilegasta kaffihúsið í bænum um helgar,“ segir Halldór glað- beittur. Þar er góð aðstaða fyrir til dæmis hópa sem vilja sitja í góðu umhverfi en nýja kaffihúsið er opið til klukkan 23.00 á fimmtudagskvöldum. Hann segir kaffimenningu Íslendinga hafa breyst mikið á undanförnum árum. „Þetta byrjaði að breytast upp úr alda- mótum. Í dag er kaffi latte vinsælasti kaffidrykkurinn.“ Hann segir einnig að vinsældir drykkjanna fari mikið eftir árstíðum. „Köldu kaffidrykkirnir eru vinsælli á sumrin,“ bætir Halldór við. Nýja kaffihúsið hefur talsverða sér- stöðu og er óvenju háþróað því þar verð- ur uppáhellibar, tebar og landsins mesta úrval af hágæða tei í lausu. „Við ætlum að bjóða upp á „afternoon tea“ þar bráð- lega,“ bætir Halldór við. Vinsælasta útibú Tes & kaffis er á Laugavegi en einnig er Te & kaffi í Eymundsson á Skólavörðustíg og á Akur- eyri vinsælir staðir. Halldór segir að mikið sé á döfinni hjá fyrirtækinu á afmælisárinu. „Við ætlum að gera margt skemmtilegt í ár og er nýja kaffihúsið í Borgartúni bara byrj- unin. Við erum í stöðugri vöruþróun og erum alltaf að bæta þjónustuna okkar.“ gunnarleo@frettabladid.is Afmælinu fagnað með nýju kaffi húsi Te og kaffi fagnar á árinu þrjátíu ára afmæli og hefur af því tilefni opnað nýtt kaffi hús í Borgartúni. Kaffi menning Íslendinga breytist með árstíðunum. AFMÆLINU FAGNAÐ Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri kaffihúsanna og Kristín María Dýrfjörð, markaðsstjóri T&K, eru hér á nýja kaffihúsinu. MYND/EINKASAFN STÍLHREINT Nýja kaffihúsið lítur vel út.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.