Fréttablaðið - 14.03.2014, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 14.03.2014, Blaðsíða 8
14. mars 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 E N N E M M / S ÍA / N M 6 18 0 5 BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000 ● Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra flutti Alþingi skýrslu vegna málsins í gær og furðaði sig á vendingum síðustu vikna. Hann fullyrti hins vegar að staða Íslands væri áfram sterk sem fiskveiðiþjóðar, því staðið hefði verið fast við grundvallarhugsun Íslands í fiskveiðistjórnun – sjálfbærni sem ófrávíkjan- lega reglu. Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, hrósaði Sigurði fyrir sína framgöngu í málinu til þessa en lagði sökina í kjöltuna á Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráðherra. Mönnum hafi borist njósn um að ekki væri allt með felldu, en Gunnar Bragi hafi ekkert gert til að andæfa á vettvangi utanríkis- þjónustunnar, og hafi í raun flotið sofandi að feigðarósi. Sjálfur var utanríkisráðherra ekki viðstaddur umræðurnar sem Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylk- ingarinnar, gagnrýndi hart, en hann saknaði mjög að fá ekki upplýsingar um hver viðbrögð Íslands yrðu á næstu dögum. Þeir sem kvöddu sér hljóðs voru sammála um að án tafar yrði mótmælum komið á framfæri við ESB, Noreg og ekki síst Færeyinga. Varla varð það misskilið, og kom fram í máli Steingríms J. Sigfússonar, fyrr- verandi sjávarútvegsráðherra, meðal annars að tvíhliða samningar Íslands við Færeyjar litu öðruvísi út í bjarmanum af hinu nýja samkomulagi. ● Við upphaf þingfundar sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra það „forkastanlegt af hálfu vinaþjóða okkar, og nágrannaríkja, að koma saman, vitandi vits, án aðkomu Íslendinga, og gera með sér samkomu- lag án þess að okkur sé einu sinni hleypt að samningaborðinu. Við eigum að senda ákveðin skilaboð til Norðmanna, til Færeyinga, til ESB, og til annarra sem hafa þóst vera í eiginlegum samningaviðræðum við okkur – skýr skilaboð um það að við kunnum ekki að meta þetta. Og að Alþingi Íslendinga fordæmi þessi vinnubrögð og áskilji sér allan rétt í framhaldinu til eðlilegrar hlutdeildar í makrílstofninum“. „FORKASTANLEG FRAMKOMA VINAÞJÓÐA“ Ljóst er að Ísland stendur eftir einangrað í makríldeilunni. Evrópusambandið, Noregur og Færeyjar undirrituðu samkomulag um skiptingu veiðiheimilda á makríl fyrir næstu fimm ár. Fátt annað liggur ljóst fyrir; hvorki hvað liggur að baki óvæntri þróun mála né hver staða Íslands er í dag og hvernig á að bregðast við því að Íslandi var haldið utan við samkomulagið. „Skýringar“ Þegar samninganefndir strandríkjanna stóðu upp frá borðinu eftir sjöundu umferð samn- ingalotunnar í Edinborg í Skotlandi fyrir rúmri viku, var sú skýring gefin af íslenskum stjórnvöldum að fullreynt væri að samning- ur næðist. Þetta staðfesti Maria Damanaki, sjávarútvegsstjóri ESB, sama dag á heimasíðu sinni. Með það fór íslenska samninganefndin heim, en Norðmenn og ESB sátu eftir til að ræða tvíhliða samninga í fiskveiðimálum sín á milli. Nú vita allir að Færeyingar fóru ekki heim heldur. Nú halda Norðmenn, og fleiri, því fram að slitnað hafi upp úr viðræðum í Edinborg vegna kröfu Íslendinga um veiðar í græn- lenskri lögsögu, og er það reyndar haft eftir Jacob Vestergaard, sjávarútvegsráðherra Færeyja, í fjölmiðlum í gær. Eitthvað er þetta málum blandið en í viðtali við færeyska miðilinn Nordlys segir Vestergaard skýrt að „prinsipp“ Íslendinga um sjálfbærar veiðar í anda ráðgjafar Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) hafi staðið í vegi fyrir samkomulagi í Edinborg. Sigurgeir Þorgeirsson, aðalsamningamaður Íslands, segir það liggja fyrir að John Spen- cer, aðalsamningamaður ESB, sem stýrði við- ræðunum hafi talið fullreynt og slitið fundi „með þeim orðum að ekki væri um frekari samningaviðræður að ræða fyrr en 2015“. Fljótt á litið virðist málið því snúast um heildarkvótann. Samkvæmt samningnum er heildarkvótinn rúmlega 1,2 milljónir tonna, en íslenska samninganefndin hélt sig fast við ráðgjöf ICES frá því í fyrra sem hljóðaði upp á 890 þúsund tonn (en var tilbúin að hækka það eitthvað í Edinborg). Hér virðast því ESB, Noregur og Færeyjar hafa gert samning eftir vilja Norðmanna hvað varðar heildarkvótann, sem gengur eftir þegar Ísland var ekki fyrir hinum strandríkjunum í deilunni. Vissu ekkert Ekkert bendir til annars en að mótaðilum Íslands í deilunni hafi tekist fullkomlega það ætlunarverk sitt að semja án vitundar íslenskra stjórnvalda. Þeir sem næst standa málinu fréttu af því á sama tíma og allur almenningur í fjölmiðlum á miðvikudag. Sjávarútvegsráðherra Færeyja lýsir ferlinu sem háleynilegu í viðtali við Nordlys. Hann segir jafnframt að samningurinn hafi legið fyrir á mánudaginn, en skrifað var undir á miðvikudag eftir að ESB hafði kynnt samn- inginn innan sinna raða. Hann viðurkennir að Færeyingar hafi setið eftir í Edinborg því þeir hafi haft á tilfinningunni að hægt væri að ná samningi um makrílinn, eins og síðar varð. Hvað næst? Bent er á að málið sé þeim mun alvarlegra þegar haft er í huga að Ísland er viðurkennt strandríki frá árinu 2010, og því hefðu ESB, Noregur og Færeyjar aldrei átt að setjast niður án aðkomu Íslands. Þegar allt er talið í upphafi nýrrar makríl- deilu, er kjarni umræðunnar sá að það sem hægt er að gera í augnablikinu er að mótmæla gjörningnum af fullum krafti og íhuga fram- haldið, mögulega í samvinnu við Grænlend- inga. En anda þarf rólega og falla ekki í þá gryfju að ganga fram í veiðum á makríl með gassagangi. svavar@frettabladid.is Ísland einangrað í makríldeilunni Þungum áhyggjum er lýst yfir samkomulagi ESB, Noregs og Færeyja um makrílveiðar. Ásakanir og fullyrðingar ganga á víxl á milli stjórn- málamanna hérlendis og erlendis. Staða Íslands er óljós – í besta falli. Ekki kvikað frá sjálfbærni veiða við Ísland, segir sjávarútvegsráðherra. HEITAR UMRÆÐUR Sigurður Ingi Jóhanns- son sagði ekki koma til greina að makríll yrði veiddur öðruvísi en á sjálfbæran hátt. Steingrímur J. segir stöðuna sem upp er komin grafalvarlega. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.