Fréttablaðið - 14.03.2014, Blaðsíða 48
14. mars 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 32
BAKÞANKAR
Lilju Katrínar
Gunnarsdóttur
Fyrsta verðlaunaathöfnin fór fram á
Hótel Sögu 1993. Tilnefnt var í fjór-
tán flokkum og voru tónlistarmenn
í popp- og rokkgeiranum aðallega
verðlaunir. Í ár verða veitt verðlaun
í 24 flokkum. Í ár gefst almenningi
í fyrsta skiptið kostur á að mæta
á hátíðina og fer miðasala fram á
miði.is
■ Andrea Gylfadóttir, sem tilnefnd
er sem söngkona ársins í kvöld,
var einnig tilnefnd sem söngkona
ársins þegar hátíðin fór fram í
fyrsta sinn árið 1993.
■ Bubbi Morthens er tilnefndur sem
textahöfundur ársins. Hann var
einnig tilnefndur sem textahöf-
undur ársins árið 1993.
Árið 1999 voru hljóðfæraleikarar
ársins valdir í síðasta sinn, það er
að segja gítarleikari, bassaleikari,
trommuleikari, hljómborðsleikari
og blásturshljóðfæraleikari ársins.
Í ár eru tilnefningarnar í flokkn-
um Bjartasta vonin í popp-, rokk- og
blústónlist:
Vök - Kaleo - Kött Grá Pjé
Grísalappalísa - Highlands
Flokkurinn Bjartasta vonin hefur
ávallt staðið undir nafni en árið
1994 var Emilíana Torrini valin
bjartasta vonin og átti hún heldur
betur eftir að láta á sér kveða.
Bjartasta vonin árið 1995 var
hljómsveitin Botnleðja. Hún átti
Lag ársins 1996, Hausverkun og
var einnig valin hljómsveit ársins
sama ár. Bjartasta vonin árið 2011,
sem var þá valin á Rás 2, var hljóm-
sveitin Of Monsters and Men, en
sveitin er í dag orðin heimsfræg og
hefur til að mynda hlotið platínu-
plötu fyrir plötu sína My Head Is an
Animal í Bandaríkjunum og því selt
yfir 1.000.000 eintaka þar í landi. Þá
hefur platan selst um 27.000 eintök-
um á Íslandi.
Bjartasta vonin í fyrra var Ásgeir
Trausti. Hann hefur unnið marga
sigra að undanförnu og hefur plata
hans, In the Silence, fengið prýðis-
dóma í erlendum miðlum. Hann var
í fyrsta sæti á Billboard Hot Over-
seas-listanum í Japan með smá-
skífulagið King and Cross og vann
einnig Ebba-verðlaunin á síðasta
ári.Það má með sanni segja að björt-
ustu vonirnar hafi orðið enn bjart-
ari í kjölfar viðurkenningarinnar.
Eftirfarandi listamenn koma fram á
hátíðinni í kvöld:
Emilíana Torrini
Hjaltalín
Skálmöld
Mezzoforte
Valdimar Guðmundsson
Egill Ólafsson
Páll Óskar
Rósa Birgitta Ísfeld
Ragnar Bjarnason
Óperan Ragnheiður
Kynnir verður Vilhelm Anton
Jónsson betur þekktur sem Villi
Naglbítur.
➜ Hátíðin í kvöld
Tónlistarverðlaunin
eru tuttugu ára í ár
Íslensku tónlistarverðlaunin verða afh ent í 20. sinn í kvöld við hátíðlega athöfn.
BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR hefur
hlotið flest verðlaun á Íslensku tónlist-
arverðlaununum eða tuttugu alls.
BOTNLEÐJA var valin bjartasta vonin
árið 1995. Hún átti lag ársins 1996 og
var valin hljómsveit ársins sama ár.
UM daginn sat ég í sófanum með dóttur
minni. Við lékum okkur í tölvuleik sem
gengur út á það að klæða brúðhjón í mann-
sæmandi föt fyrir stóra daginn. Ég spurði
dóttur mína hverjum hún vildi giftast og
hún sagði að hún vildi giftast bestu vinkonu
sinni, henni Evu. En hún vildi líka giftast
strák, honum Gesti.
NOKKRUM dögum síðar horfðum við á
viðtal við transkonu í sjónvarpinu. Dóttir
mín furðaði sig á því að þessi kona hefði
einu sinni verið með typpi en núna væri
hún með brjóst og pjöllu. Eftir miklar
bollaleggingar náði ég að útskýra fyrir
henni hvað transfólk væri. Eða svona
næstum því. Held ég.
HÚN er meira að segja farin að
gúddera að strákar megi vera með
naglalakk. Henni finnst það ekk-
ert sérlega smart en er sammála
móður sinni um það að fólk megi
vera nákvæmlega eins og því
líður best sjálfu.
HENNI brá líka í fyrrnefndum
brúðarfataleik vegna þess að hún
gæti ekki valið brúðarkjóla á tvær
stelpur og sett þær saman á mynd í fallegri
kirkju. Leikurinn bauð nefnilega bara upp
á að stilla konu og manni upp saman. Þetta
fannst henni skrítið. Og frekar pirrandi.
Hana langaði nefnilega í mynd af sér og
Evu sinni í semelíusteinaskreyttum rjóma-
tertukjólum.
ÉG er fegin að dóttir mín elst upp á tímum
þar sem allt er leyfilegt. Ég er fegin að
hún óttast ekki að segja skoðanir sínar og
vera trú sinni sannfæringu. Og ég er ekki
síst fegin að hún áttar sig á því hvað það er
fáránlegt að tölvuleikur bjóði ekki upp á að
prúðbúa tvær konur og gefa þær saman í
sýndarveruleikanum.
ÞÓ það virðist kannski ekki vera stórmál
þá er það mikið hjartans mál fyrir fjögurra
ára barn sem dýrkar bestu vinkonu sína út
af lífinu.
ÞVÍ vona ég að hún haldi áfram að láta sig
menn og málefni varða svo lengi sem órétt-
læti ríkir í heiminum. Og ef hún kemst ein-
hvern tímann að þeirri niðurstöðu að hún
sé fædd í röngum líkama eða að hún vilji
taka af skarið og giftast henni Evu mun ég
styðja hana alla leið.
Af hverju má ég ekki gift ast Evu?
THE CONGRESS DARK TOUCH
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AKUREYRI
VARIETY
ENTERTAINMENT WEEKLY
SPARBÍÓ
NEW YORK MAGAZINE
„HUGLJÚF KVIKMYND SEM KÆTIR OG GLEÐUR ÁHORFENDUR.“
-D.R., HOLLYWOOD REPORTER
FRÁBÆR
TEIKNIMYND
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
NÁNAR Á MIÐI.IS
ONE CHANCE
SAVING MR. BANKS
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS 2D / 3D
3 DAYS TO KILL
THE MONUMENTS MEN
NYMPHOMANIAC PART 1
ONE CHANCE
3 DAYS TO KILL
Ý ÍÆVINT RI HR. P BODYS 3D
RIDE ALONG
KL. 5.40 - 8 - 10.20
KL. 6 - 9
KL. 5.50
KL. 8 - 10.30
KL. 10.30
KL. 8
KL. 6 - 8 - 10
KL. 10
KL. 6
KL. 8
ONE CHANCE
300: RISE OF AN EMPIRE 3D
300: RISE OF AN EMPIRE 3D LÚXUS
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS ÍSL. TAL 2D
Ý Í ÍÆVINT RI HR. P BODYS SL. TAL 3D
THE MONUMENTS MEN
RIDE ALONG
ROBOCOP
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2 2D
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2 3D
KL. 5.40 - 8 - 10.20
KL. 5.40 - 8 - 10.20
KL. 5.40 - 8 - 10.20
KL. 3.30 - 5.45
KL. 3.30
KL. 8
KL. 5.45 - 8 - 10.15
KL. 10.30
KL. 3.30
KL. 3.30
Miðasala á: og
ENTERTAINMENT WEEKLY
FRÁ FRAMLEIÐANDANUM ZACK SNYDER,
LEIKSTJÓRA 300 OG MAN OF STEEL
THE BAG MAN 8, 10:20
3 DAYS TO KILL 8, 10:20
THE MONUMENTS MEN 10:25
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS 3D 4, 6
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS 2D 3:45
RIDE ALONG 6
LEGO - ÍSL TAL 2D 3:50
DALLAS BUYERS CLUB 5:45, 8
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
5%
FJÖLSKYLDUPAKKINN
Sparnaðarbylting fyrir íslenskar fjölskyldur. Ef tvö börn eða fleiri
eru í fjögurra manna hópi þá borga allir barnaverð. Allir, alltaf!
Og við lofum því að barnaverðið er alltaf það lægsta í verðskránni.