Fréttablaðið - 14.03.2014, Blaðsíða 6
14. mars 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
SVÍÞJÓÐ Síðar í þessum mánuði
halda sænskir stjórnmálamenn til
Rúmeníu til fundar við ríkisstjórn-
ina þar. Tilgangurinn er að finna
lausn á betli rómafólks víðsvegar
í Svíþjóð.
Sendinefnd sex fulltrúa stjórn-
valda í Rúmeníu kom til Stokk-
hólms til þess að gera grein fyrir
því hvað gert er þar í landi vegna
aðlögunar rómafólks. Sendinefnd-
in ætlar einnig að kanna leiðir til
samvinnu við sænsk yfirvöld vegna
rómafólks sem betlar í Svíþjóð.
- ibs
Svíar til Rúmeníu:
Ræða betl
Rómafólksins
EVRÓPUMÁL Samþykkt hefur
verið á Evrópuþinginu að komið
verði upp sérstökum skrif-
stofum í öllum aðildarríkjum
Evrópusambandsins, ESB, sem
eingöngu eiga að upplýsa borg-
ara ríkjanna um réttindi þeirra.
Á fréttavef danska ríkisút-
varpsins er haft eftir þing-
manninum Jens Rohde að til-
gangurinn sé að styrkja innri
markaðinn og frjálst flæði
vinnuafls.
Þörf sé á slíku frjálsu flæði
og þess vegna megi ekki vera
nein mismunun. - ibs
Samþykkt Evrópuþingsins:
Upplýsa verður
um réttindi
1. Hvað kostuðu vatnstjón á síðasta
ári?
2. Hversu oft er sjúkrafl ug seint?
3. Hversu marga landsleiki hefur Dóra
María Lárusdóttir spilað?
SVÖR:
1. Á þriðja milljarð króna. 2. Í tíunda hvert
sinn. 3. 100.
SKIPULAGSMÁL Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks í skipulagsráði
gera alvarlega athugsemd við
ummæli Dags B. Eggertssonar,
formanns borgarráðs, um upp-
byggingu á Hlíðarendasvæðinu.
Dagur segir uppbygginguna
ekki vera lokakafla uppbygging-
ar í Hlíðahverfi, heldur fyrsta
stigið í íbúðauppbyggingu
Vatnsmýrarsvæðisins. Sjálf-
stæðismenn segja ummælin
óvirðingu við störf nefndar sem
skoðar framtíðarstaðsetningu
Reykjavíkurflugvallar. Fulltrú-
ar meirihlutans segja framtíð
flugvallarins ekki háða þessari
uppbyggingu. - jm
Gagnrýni í skipulagsráði:
Flugvallarnefnd
sýnd óvirðing
DAGUR B. EGGERTSSON Formaður
borgarráðs var gagnrýndur í skipulags-
ráði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BANDARÍKIN Í vikunni kom upp á yfirborðið
djúpstæður ágreiningur milli bandarísku
leyniþjónustunnar CIA og þingnefndar, sem
hefur undanfarin ár verið að rannsaka pynt-
ingar á föngum í haldi leyniþjónustunnar.
Dianne Feinstein, formaður leyniþjónustu-
nefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings,
sakar leyniþjónustuna um að hafa njósnað
um þingmenn nefndarinnar.
Leyniþjónustan sakar nefndina á móti
um að hafa brotið lög þegar hún komst yfir
skjöl, sem hún átti aldrei að fá aðgang að.
Nefndin hefur skrifað 6.300 blaðsíðna
skýrslu um pyntingastarfsemi leyniþjón-
ustunnar. Skýrslan hefur ekki verið birt
opinberlega, en meðal annars er þar fjallað
um vatnspyntingar, barsmíðar og aðrar mis-
þyrmingar sem menn, grunaðir um hryðju-
verkastarfsemi, máttu sæta í leynifangels-
um bandarísku leyniþjónustunnar víða um
heim.
John Brennan, yfirmaður CIA, segir
margvíslegar rangfærslur að finna í skýrsl-
unni. Feinstein segir hins vegar að skjölin
umdeildu, sem komin eru frá Leon Panetta,
fyrrverandi yfirmanni CIA, staðfesti það
sem fram kemur í skýrslunni.
- gb
Formaður bandarískrar þingnefndar lét hörð orð falla í þingræðu í garð leyniþjónustunnar CIA:
Segir CIA hafa njósnað um þingmenn
DIANNE FEINSTEIN Formaður leyniþjónustunefndar-
innar var harðorður á þingfundi á þriðjudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKIPULAGSMÁL Sjálfstæðisflokk-
urinn lagði fram tillögu á fundi
borgarráðs í gær um að afstýra
fyrirhugaðri byggingu háhýsis á
Skuggahverfisreit, en að óbreyttu
kemur það til með að skerða mik-
ilvægan sjónás frá Skólavörðu-
holti. Tillagan kvað á um að reynt
verði að ná samkomulagi við
lóðarhafa á reitnum um tilfærslu
eða lækkun byggingarinnar.
Meirihlutinn telur að ekki sé unnt
að afturkalla byggingarleyfið
sem veitt var árið 2006 en leggur
til að skorað verði á Alþingi að
setja fyrningarákvæði í lög, svo
hægt verði að endurskoða skipu-
lagsáætlanir. - jm
Allir ósáttir við háhýsi:
Borgin vill
bjarga útsýninu
SKUGGAHVERFIÐ E kki hægt að hagga
skipulaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Már Guðmundsson seðla-
bankastjóri segir að til greina komi
að endurgreiða málskostnað sinn
vegna málaferla við bankann. Hann
telur sig ekki hafa brotið af sér.
Lögmannsreikningar Más voru
greiddir að fullu af Seðlabankan-
um eftir að hann fór í mál við bank-
ann vegna lækkunar launa sinna.
Bankaráð ákvað í gær að fela Rík-
isendurskoðun að gera úttekt á
greiðslunum og kanna hvort farið
hafi verið að lögum.
Már segir að til greina geti komið
að hann endurgreiði málskostnað-
inn, þó enn sé of snemmt að segja
til um það.
„Það getur verið að niðurstaðan
verði sú að ég eigi að gera það, þó
ég efist um það,“ segir Már.
„En svo getur vel verið að ég eigi
að gera það hvort sem er. Eins og
maður þekkir er eitt að segja að
ekkert hafi verið gert rangt en
enginn vandi að fá almennings-
álitið upp á móti þeim sem eru
taldir hafa eitthvað hærri tekjur
en aðrir.“
Lára V. Júlíusdóttir, fyrrver-
andi formaður bankaráðs Seðla-
bankans, tók ákvörðunina um það
að endurgreiða Má kostnaðinn
vegna málaferla. Í vikunni sagði
hún fréttastofu málið vera „storm
í vatnsglasi“ og að bankaráð geti
ómögulega krafið Má um endur-
greiðslu málskostnaðar.
Már sat fyrsta hluta bankaráðs-
fundarins í gær og lagði þar fram
bréf til ráðsins þar sem hann óskar
eftir því að þeim þætti athugunar
sem snýr að honum sjálfum verði
flýtt.
„Við þurfum að fá niðurstöðu í
það hvað var rétt og rangt í mál-
inu,“ segir Már. Hann segir jafn-
framt að ekki sé gott fyrir einn né
neinn að láta óvissu í málinu hanga
yfir.
„Ég tel mig ekki hafa gert neitt
rangt í þessu ferli en auðvitað kann
öðrum að sýnast annað,“ segir Már.
Ásamt bréfinu lagði Már fram
upplýsingar og gögn frá Seðlabank-
anum til bankaráðs varðandi málið.
„Síðan er gert ráð fyrir því að
það verði fundur á næstunni þar
sem mér mun gefast tækifæri til
að útskýra mjög ítarlega mína hlið
á málinu,“ segir Már. bjarkia@365.is
Már útilokar ekki að
endurgreiða kostnað
Bankaráð Seðlabanka felur Ríkisendurskoðun úttekt á greiðslu málskostnaðar Más
Guðmundssonar seðlabankastjóra. Már segist ekki hafa brotið af sér í málinu.
VILL NIÐURSTÖÐU Már Guðmundsson gengur út af fundi bankaráðs í gær. Í kjölfarið tilkynnti hann fjölmiðlum að hann hefði
beðið ráðið að flýta athugun á þeim hluta málsins sem að honum snýr. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ég tel mig ekki hafa gert
neitt rangt í þessu ferli en
auðvitað kann öðrum að
sýnast annað.
Már Guðmundsson
seðlabankastjóri
VEISTU SVARIÐ?
NÝTT
Loksins á Íslandi!
Nicotinell með Spearmint bragði
- auðveldar þér að hætta reykingum
Nicotinell er samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
Nicotinell Spearmint 2 mg og 4 mg lyfjatyggigúmmí. Inniheldur nikótín. Ábendingar: Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Skammtar fyrir fullorðna 18 ára og eldri: Skammta skal ákvarða út frá því
hversu háður nikótíni einstaklingurinn er. Mælt er með 4 mg lyfjatyggigúmmíi fyrir einstaklinga með mikla nikótínþörf og fyrir þá sem ekki hefur tekist að hætta með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Ef þú reykir fleiri en 30 sígarettur/sólarhring má miða við notkun 4 mg, 20-30 sígarettur/sólarhring er miðað við 2 eða 4 mg eftir þörf en ef reykt er minna en 20 sígarettur á sólarhring er æskilegt að nota
2 mg. Ef þú færð aukaverkanir við notkun stærri skammtsins (4 mg lyfjatyggigúmmí), skaltu íhuga minni skammt í staðinn. Tyggja skal eitt stk við reykingaþörf þar til finnst sterkt bragð. Þá skal láta það hvíla milli kinnar og tannholds. Þegar sterka bragðið minnkar skal tyggja aftur. Þetta skal endurtaka í 30 mín. Venjuleg notkun er 8-12 stk, þó ekki fleiri en 15 stk af 4 mg og 25 stk af 2 mg lyfjatyggigúmmíi
á sólarhring. Meðferðarlengd er einstaklingsbundin en skal í flestum tilfellum standa í a.m.k. 3 mánuði, skal þá draga smám saman úr notkun lyfjatyggigúmmísins. Meðferð skal hætt þegar neyslan er komin niður í 1-2 lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Venjulega er ekki mælt með notkun lyfsins lengur en í eitt ár. Sumir, sem eru hættir að reykja, gætu þó þurft lengri meðferð til þess að forðast að byrja
aftur að reykja. Geyma skal afgangs lyfjatyggigúmmí þar sem reykingaþörf getur skyndilega komið upp aftur. Ráðgjöf getur aukið líkurnar á því að reykingafólk hætti að reykja. Nota má lyfið til að lengja reyklaus tímabil og draga þannig úr reykingum. Ef ekki hefur dregið úr fjölda sígaretta á sólarhring eftir 6 vikur skal leita faglegrar ráðgjafar. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er reiðubúin
til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Frábendingar: Ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju hjálparefnanna, reykleysi. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing því ekki er víst að þú megir nota lyfið ef þú: ert á meðgöngu eða með barn á brjósti, hefur nýlega fengið hjartabilun eða hjartastopp, ert með
hjarta- eða æðasjúkdóm, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, magasár eða verulega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi eða ef þú ert yngri en 18 ára. Einstaklingum með gervitennur og þeim sem eiga í erfiðleikum með að tyggja tyggigúmmí er ráðlagt að nota önnur lyfjaform nikótínlyfja. Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþol skulu ekki nota lyfið. Athuga ber að lyfið
inniheldur natríum og bútýlhýdroxýtólúen (E321). Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Jafnvel lítið magn af nikótíni er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfishafi: Novartis Consumer Health S.A.
Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ